This entry was posted
on Fimmtudagur, Apríl 24th, 2008 at 20:15 and is filed under hið daglega líf.
You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed.
You can leave a response, or trackback from your own site.
*Mæli með að skella klassískri tónlist á fóninn fyrir lesningu þessarar athugasemdar. Ég er ekki frá því að ég þurfi að gráta eftir að hafa skrifað hana.*
Þegar ég var skiptinemi fór ég oft á sunnudögum með yngri systur minni og fósturpabba í bíltúr til höfuðborgarinnar (í u.þ.b. 30 mínútna akstursfjarlægð) til að kaupa í matinn í risastórri verslun sem seldi matvörur og bókstaflega allt til heimilisins, líka garðsláttuvélar. Vorum við systur eins konar burðardýr og hjálpuðum til við að setja í pokana og þess háttar. Hljómar örugglega mjög óspennandi en þetta var fastur liður í lífi fjölskyldunnar og eftir á að hyggja þykir mér mjög vænt um stundir sem þessar.
Eftir þessar búðarferðir var síðan hápunktur ferðarinnar. Að minnsta kosti í augum systur minnar og þar sem ég er þannig að guði gerð að ég myndi helst vilja deyja með tóma ísdollu í annarri þá get ég ekki sagst hafa verið pirruð yfir þessum hluta ferðarinnar. Þá fórum við á McDonalds gagngert til þess að kaupa McFlurry með Crunch súkkulaði. Það var nammigott. Á Íslandi er ekki hægt að fá McFlurry með Crunch útí. Það finnst mér að vissu leyti gott vegna þess að ég er með nógu stóran rass fyrir, einnig vegna þess að það var meira stemningin sem skapaðist í bílnum sem gerði allt svona þægilegt og gott frekar en bragðið af ísnum sem var þó unaðslegt svo ekki sé meira sagt. Út af þessu Crunch-vanti hef ég ekki vanið ferðir mína á McDonalds á Íslandi og er ég að vissu leyti þakklát, æðri máttarvöldum eða kannski bara innkaupastjóranum hjá íslenska McDonalds.
Því spyr ég - algjörlega miður mín eins og kannski sést í augljósri einlægni þessarar athugasemdar/pistils, hvers vegna í ósköpunum má maður ekki borða McFlurry með daim??!!
eins og ég sagði í kommentinu sem ég eyddi óvart út.. ÞÁ DEYRÐU! Það festist daim í hálsinum á þér og þú hóstar og hóstar en daimið er með hvassar brúnir og er fast í slímhúðinni í hálsinum. Þú hóstar og hóstar þangað til sá sem er með þér þarf að stoppa bílinn þú þú ert búin að hósta svo mikið að þú kúgast og ælir. Og svo er þér illt í hálsinum lengi lengi á eftir.
þetta hefur samt ekki komið fyrir mig :S
GODDAMN!!!! Ég sem var nýbúin að fatta ís í boxi með karamellu og daim kúlum…EN þá er í lagi með daimKÚLURNAR eins og í ísbúðunum en ekki daim-súkkulaðistykkin VÚHÚ!!! Ég get tekið gleði mína á ný, ég sá fram á ömurlegt sumar… hehe

=o - gapandi broskall mínus bros plús uppglennt augu.

ohh já bleikur ís í boxi með heitri karamellusósu og daim er best í heimi! Sérstaklega á Olís á Höfn.. mmmmmm
hmmm… ég ekki skilja. Ekki nóg með að maður DEYI heldur er manni illt í hálsinum lengi lengi á eftir…. ???
Jaa hérna…
Já helga mín.. þetta er alveg hræðilegt, og mjög flókið! þér er samt velkomið að prófa og sjá hvernig þetta fer í þig, en ég mæli ekki með því