Flytur til DK - Staðfest :D

Júlí 22nd, 2010

Ég gerði ráð fyrir því í upphafi sumars að ég þyrfti að bííííða eftir því að flytja út. Núna er sumarið bara að verða búið og sléttur mánuður í flutning. Og ég á eftir að gera ALLT! Smá stresshnútur kominn..

Við erum s.s. komin með íbúð á Vognporten 14 í Albertslund í Kaupmannahöfn. Pínu lítil og mega langt frá skólanum (Finnur þarf að ferðast í klukkutíma í strætó, frábær lestrartími ;) ), en sleppur alveg þangað til við fáum eitthvað nær skólanum.. og stærra takk!  Uppsagnarfresturinn er tiltölulega stuttur þannig að þetta er alveg hreint ágætt :) Við förum s.s. út 22. ágúst, eftir mánuð, og Finnur byrjar svo í skólanum 24. ágúst. Allt að gerast! Vá mig hlakkar svo til að fara út og gera eitthvað nýtt!  Læra dönsku í eitt skiptið fyrir öll og leita mér að vinnu :) Bara spennandi!

Svo er náttúrulega Þjóðhátíðin eftir 8 daga. Það verður nú eitthvað. Hún Þóra mín ætlar að koma á Þjóðhátíð í fyrsta skiptið og hún er alveg að verða útskrifuð í þjóðhátíðarfræðum :)

En ég nenni eiginlega ekki að hafa þetta lengra.. en við skrifum vonandi meira þegar við verðum komin út og setjum inn myndir og eitthvað (http://picasaweb.google.com/steinunnhodd).. þið þurfið reyndar að vera með gmail til að kommenta.. en gmail er náttúrulega bara awesome ;)

Sumar

Júní 27th, 2010

Ég elska sumarið!  Jafnvel þó að við fáum bara málamynda sumar þá er það best í heimi.  Að labba heim um miðja nótt með fuglasöng í eyrunum og blómalykt í nefinu er bara einfaldlega best!  Sumar vinnan mín er líka bara æði.  Úti eins mikið og ég vill að gera það sem ég vill. Það er ekki hægt að hugsa sér neitt betra.

Núna eru líka bara 2 mánuðir þangað til skólinn hans Finns byrjar. Sem þýðir að það eru rétt tæpir 2 mánuðir þangað til við flytjum til DK.  Ég er svona að reyna að halda ró minni, en það er voðalega erfitt.  Við erum reyndar ekki komin með neina íbúð.. en við tökum bara íslensku leiðina á þetta.. þetta reddast ;) Við bíðum bara róleg eftir íbúðinni okkar á Gammelmosevej :)  Það sem mig hlakkar til að komast aftur í MÍNA íbúð.  Það er æði að búa á S13, en vá hvað mig hlakkar til að komast í mitt drasl!  Þessa dagana þarf ég náttúrulega alltaf eitthvað sem er í geymslunni.. týpískt!

En frá því að ég skrifaði síðustu færslu hefur ýmislegt gerst. Ísland tapaði Eurovision, árgangsmót 1986 árgangsins á Höfn (awesome), ég útskrifaðist sem kennari, Finnur Freyr og Leó Snær komu í heimsókn og ég tók þátt í kvennahlaupinu. S.s. allt að gerast!

En næst á dagskrá á þessu æðislega sumri eru að sjálfsögðu Humarhátíð um næstu helgi og svo árgangsmót hjá eðal árganginum í Eyjum.  Það ætti nú að verða eitthvað fjör.. og svo bara styttist í Þjóðhátíðina! Vikurnar líða svo hratt, mér finnst alltaf vera annað hvort mánudagur eða föstudagur!

it’s alive…

Maí 29th, 2010

Jæja. Nú er það nokkuð ljóst að það verði að vekja upp þetta blessaða blogg.. allavegana svona þegar líða tekur á sumarið.  Finnur Smári (þessi elska) komst nefnilega inn í skóla útí Danmörku! Þannig að við erum að fara að flytja :D  Ég veit ekki hvort okkar er spenntari..

En út í aðra sálma.. Eurovision og kosningar í dag. Ég hef góða tilfinningu fyrir hvoru tveggja - íslandi og Hornafirði.  Það verður nú fínt þegar kosningarnar eru afstaðnar.. þoli ekki aðdraganda kosninga. Það finnst öllum (eða mörgum) það mikilvægara að drulla yfir hina flokkana heldur en að segja frá því sem þeir sjálfir hyggjast gera.

Svo ég tali nú ekki um áróðurinn og í rauninni áreitið sem maður verður fyrir svona síðustu dagana fyrir kosningar. Það verður því bara fínt þegar þetta er búið.

Áfram Ísland og setjið X við það sem ykkur sýnist.. ég setti að minnsta kosti X við S-teinunni ;)

2. mars

Mars 2nd, 2010

Fyrst maður er nú byrjaður aftur að blogga, er þá ekki við hæfi að henda inn færslu á sirka mánaðar fresti.. ég tala nú ekki um ef maður er veikur og hefur lítið annað að gera en að láta sér batna.

Fyrsta mál á dagskrá: Það er allt á blússandi siglingu í Danmerkurmálum! Umsóknin í DTU er farin af stað og okkur hefur verið boðin ein íbúð.  Við fengum hana reyndar ekki, en ég hef fulla trú á því að okkur verði boðin önnur áður en við flytjum.  Er annars ekki málið að taka secretið á þetta?  Svo er ég alltaf að æfa mig í dönsku.. gagnvirkar málfræðiæfingar rokka!!  Planið er að setja inn heila bloggfærslu á dönsku, 100% málfræðilega rétta, um miðjan ágúst!

Annars er voða lítið að frétta.. Finnur er bara farinn heim á Höfn að vinna í frystihúsinu, enda nauðsynlegt að safna smá pening áður en mðaur heldur út í heim ;)  Ég varð bara eftir í höfuðborginni til þess að klára skólann en stefnan er nú sett á Hornafjörð 1. maí. Sem þýðir að það styttist óðfluga í sumarið :)  Það sem ég get nú ekkið beðið eftir því að klára skólann og komast til kallsins og  fara að vinna.

hey já, og ef einhver veit hver þessi leifur er sem kommentaði í færslu hérna fyrir neðan þá er ég svaka forvitin..

Strákarnir okkar

Janúar 30th, 2010

Dagsdaglega er ég manneskja sem hefur ekki nokkurn áhuga á íþróttum. Jájá, allt í­ lagi að horfa á¡ íþróttirttir sem taka fljótt af, eins og spretthlaup, en hópíþróttir eru ekki í uppáhaldi. Nema þegar í­slenska karlalandsliðið í ­ handbolta er að spila. Þá sit ég, rólega manneskjan, límd fyrir framan sjónvarpið með öndina í hálsinum og loka augunum þegar ég get ekki meir. Einu sinni á ári (því,­ thankfully, þá eru stórmót í­ handbolta á hverju ári) kem égg sjálfri mér á óvart og gerist stuðningsmaður landsliðsins numero uno!

Soldið fyndið. Ég veit við hverja við vorum að keppa, hvernig leikurinn fór, hvað við þurfum að vinna næsta leik með mörgum mörkum til þess að komast upp úr riðlinum.  Ég veit líka hverjir aðrir eru að spila, og hvernig þeirra leikir verða að fara svo við komumst upp.  Ég, eins og svona 80% af þjóðinni, breytist í handbolta maniac. Soldið spes.

En “við” erum s.s. að fara að keppa um bronsið á morgun.. og eins og við vitum þá er gott brons betra en ekkert ;) Strákarnir okkar eru búnir að standa sig gríðarlega vel og það er klárt mál að ég fer á HM í Svíþjóð á næsta ári til þess að styðja við bakið  á þeim!

Búin að taka meðvitaða ákvörðun..

Janúar 21st, 2010

..ég ætla að byrja aftur að blogga.  Sérstaklega af því að fólk býst alls ekki við því og því á enginn eftir að koma inn á þetta blogg í langan, langan tíma.

Okey, ein játning.  Mér finnst mega gaman að lesa gömul blogg hjá mér.  Ég var öfga fyndin.. án gríns.  Ég er klárlega ekki jafn fyndin í dag.

En þar sem enginn á eftir  að koma inn á þetta blogg, allavegana ekki fyrr en ég fer eitthvað að auglýsa að ég sé byrjuð aftur að blogga, þá get ég sagt “upphátt” aaaaað.. við Finnur erum að fara að flytja til útlanda.. jeij! Stefnan er sett á DK í ágúst :) Umsókn um íbúðina fer í póst í dag og umsóknin hans Finns í DTU fer í póst um leið og meðmælabréfin eru tilbúin.  Ég er orðin vandræðilega mikið spennt. Ég get ekki sofnað á kvöldin því ég er að “dekkoreita” íbúðina mína í huganum. IKEA all the way!  Þannig að núna er góður tími til þess að leggjast á bæn og vona að við munum flytja inn á Gammelmosevej í ágúst.

Annars er voða lítið að frétta. Skólinn gengur, vinnan gengur og já, lífið gengur bara sinn vanagang!  Á planinu í dag er að fara í vinnu og horfa svo á landsleikinn kl. 17.. Í síðasta leik tapaði ég mér á ikea.dk þannig að ég missti eiginlega af leiknum.. en ekki í dag, ónei!

ef þið hafið slysast hingað inn, þá mættuð þið gjarnan skilja eftir spor :)

Nei halló halló..

Október 29th, 2009

Ég á bara blogg. Er það aftur orðið  “inn” að blogga, eða ætti¡ maður bara að láta facebook duga? Spurning, spurning..

Ætlað sof’áessu..

Já sæll

Janúar 14th, 2009

Spurning um að blogga? Ég er samt ekki alveg að nenna því, enda gerist ekkert merkilegt í lífi mínu.. eða.. jú hann Finnur eignaðist litla sæta frænku um daginn sem hefur fengið nafnið Karítas Björg.. algjör mús!  Svo er skólinn byrjaður og allar einkunnir komnar, ég var nú bara nokkuð ánægð með þær, hækkaði meðaleinkunina töluvert.  ú já.. ég er byrjuð að prjóna peysu.. geggjó flott..

Annars held ég að ég sé bara hætt að blogga, nema eitthvað svakalegt komi upp á ;) ég meina, að blogga er svooo 2008.. þið getið bara nálgast mig í á Eggertsgötunni eða á Facebook :Þ

bless í bili..

Jólin jólin..

Desember 25th, 2008

Aðfangadagur í gær… VÁ þetta var algjört æði!! Við fengum svo hrikalega flottar gjafir, við Finnur fengum samtals  7 bækur hvorki meira né minna, og allt bækur sem okkur dauðlangaði í. Sannkölluð bókajól.  Síðan fékk Eydís Abba singstar, þannig að Super truper og Mama mía hafa fengið að óma alveg síðan í gærkvöldi!

Jólagjöfin til mömmu og gumma tókst hrikalega vel, þau fóru meira að segja að gráta sem var náttúrulega best ;)  ég er búin að seta vieoið inn á facebook.  En við systkynin öll, hvorki meira né minna en 6 stykki, fórum í myndatöku hjá ofur ljósmyndaranum Þóru Geirlaugu.  Síðan bjó ég til myndband og við gáfum þeim það í jólagjöf og líka stækkaða mynd af okkur.  Ótrúlega skemmtilegt!

En já.. síðan fékk ég leðurstígvél, náttbuxur, kjól, nærföt og bara fullt! Síðan gaf ég finni flottustu jólagjöf í heimi!! Heimatilbúna sock bunny! Tölvan er rosalega hæg núna þannig að myndir koma inn seinna! Ég er farin í singstar ;)

Exskjúsmí!

Desember 9th, 2008

Hvar fást piparkökumót í eðlilegri stærð hérna á höfuðborgarsvæðinu??

Ikea? Nei..
Bónus? Nei..
Krónunni? Nei..
Byko? nei..
Europris? Nei..

þetta er hvergi til!! Hef séð á 2 stöðum svona huge stór mót en hvergi eðlilega stærð!
Mér finnst þetta bara ekki eðlilegt!