



Jæja, ég talaði við Sævar í gær, eftir samtal við Sigga litla, að fá bloggið mitt gangandi aftur, Sævar er svo merkilegur maður að hann bara skellti þessu upp á 1 mínútu. Takk kærlega fyrir Sævar, þú átt inni hjá mér amk einn bjór og eitt knús. Ég ætla mér hægt og rólega að breyta útliti síðunnar á næstu dögum/vikum, plata kannski Iðunni tölvunörd í það með mér.
Hvíta músin mín (kisa) varð fyrir bíl á mánudag og dó og ég sakna hennar ofsalega mikið, skrýtið hvað hægt er að sakna dýrs svona mikið. Þetta er reyndar ekki fyrsta sinn sem ég missi gæludýr heldur þriðja, Táta og Hildibrandur voru líka tekin frá mér á sínum tíma. Ég bara bjóst ekkert við að Hvíta mús væri næst, hún var svo ung, ég hélt frekar að Suddi minn væri næstur því hann er orðinn gamall huuundur. Gísla langar í aðra kisu, mig líka, einn góðan veðurdag. En ekki til að koma í stað Hvítu músar. Gísli var farinn að tala um að fá tvo kettlinga en við sjáum bara til.
Ég sit hérna í Árnagarði í tómri stofu að bíða eftir næsta tíma, það er svona að vera í strætó og geta ekki bara keyrt út og suður, annars langar mig að kaupa mér vespu, sá tvær til sölu á bilakassi.is í gær, ætla að skoða málið. Það kostar ekki nema 38 þús á ári að tryggja 2 ára vespu. En ég hafði hugsað mér að nota hana til að komast í leikfimi og snattast innan Kópavogs, ekki kannski að fara á henni í Háskólann…. ég veit það þó ekki, fer eftir krafti vespunnar og umferð. Veit einhver um vespu til sölu? Hafðu samband við mig!
Og já annað…verið óhrædd við að commenta, sama hversu ómerkileg athugasemdin er þá finnst mér alltaf gaman að sjá hver er að kíkja á mig ![]()






More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 
JEiiiii loksins
Alltaf gaman að lesa það sem þú bloggar tala nú ekki um þegar maður er desperat housewife
go go girl
*prufi*
Það er alltaf vont að missa gæludýrin sín :/ þessvegna ákvað ég fyrir mörgun árum eftir að ég missti hana Tinnu mína(sem var blendingur af Labrador og Golden Retriever) að fá mér aldrei aftur gæludýr. Og ég veit ekki um vespu, en þetta hljómar sneddí, þú verður að fá mótorjólapróf að ég held örugglega til að vera lögleg á þessu.
æj það þýðír ekkert að hætta að fá sér gæludýr! þau eru ómissandi í lífinu.
En með vespuna, ég ætla að fá svona sem þarf ekki próf á, bara 50 kúbik.
Hvort það hafi ekki verið 7 kettir sem hlupu fyrir bíl í minni bernsku, svo ég gerði það alltaf til einföldunar að skýra þá alla sama nafni óháð kyni “skuggi”, og þurfti ekki að leggja á mig að læra ný nöfn þegar einn hvarf og annar kom…
Hehe þú hefur ekki verið mjög “attached” dýrunum þá.
jeij, velkomin aftur:D
leiðinlegt að heyra með tisann þinn þó.. alltaf ósanngjarnt þegar dýr eru tekin svona frá manni.
Siggi _litli_?!?! Hva, hva, hva, hvaaaaað?!
Sjaldan tjái ég mig vel og allra síst akkúrat núna. Því segi ég asalama laykum og sjáumst í næsta stríði… og velkomin aftur
“Ertu þá byrjaður að blogga aftur?”
já úttípúttí litli kúturinn Siggi
)