29 Jun 2009 @ 10:26 AM 
 

Barca

 

Það var æði í Barcelona og ennþá meira æði í Sitges. Þessi vika leið náttúrulega alltof fljótt. Það var allt mjög dýrt þarna (eða dýrt fyrir íslendinga) og stundum alveg blóðugt.. t.d. 500 kr fyrir kókdós. En við reyndum að halda að okkur höndunum eins og við gátum og ferðin heppnaðist bara mjög vel. Fyrstu 2 dagana vorum við á hóteli í Barcelona, næstu tvo daga vorum við á Hosteli í Sitges og síðustu dagana vorum við hjá Röggu í Valldoreix. Og eins og í fyrra fékk ég MASSÍF moskítóbit (er greinilega með ofnæmi dauðans) blöðrur og sár og hryllingur. En það er byrjað að gróa núna.
Rebekka petita og Sunna Björk komu með okkur Óskari heim og þær eru núna hjá ömmu og afa að hrella kettina og hænurnar :) friðurinn er úti hehe

5193_101832391021_534526021_2525879_8127594_n

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 29 Jun 2009 @ 10 26 AM

EmailPermalinkComments (2)
 18 Jun 2009 @ 5:40 PM 

Ætlaði bara að fá þrjár stjörnur en sofnaði úbbbbbssss og vaknaði með 56 stjörnur

5140_98489731021_534526021_2467605_4793811_n

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 18 Jun 2009 @ 05 40 PM

EmailPermalinkComments (2)
 12 Jun 2009 @ 8:44 AM 

14 dagar í nýju plötuna frá Korpiklaani!! Jíhaaaaaa!!!!
Hérna er lagið Vodka og vidoeið!

Vodka

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 12 Jun 2009 @ 08 44 AM

EmailPermalinkComments (0)
 10 Jun 2009 @ 3:01 PM 

Hér er linkurinn

clam

Og þar stendur: Icelandic scientists have found a 400-year-old clam, nearly twice as old as any other animal in history.

Huh, afhverju hef ég ekki heyrt þetta áður? í íslenskum miðli?

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 10 Jun 2009 @ 03 02 PM

EmailPermalinkComments (0)
 05 Jun 2009 @ 3:00 PM 

4593_105832979281_670384281_2752081_4519224_n

Starri í heimsókn hjá Sjúkratryggingum
Lítill Starri villtist af leið í gegnum opnar svaladyr á kaffistofu starfsfólks á Laugavegi 118. Starrinn var nú í engri kurteisisheimsókn og var auðvitað dauðskelkaður. Hann rembdist eins og rjúpan við staurinn að komast í gegnum kaffistofuglugga en það tók Rebekku Magnúsdóttur, starfsmann á fjármála- og rekstrarsviði, ekki langan tíma að handsama greyið og koma honum til bjargar. Hún sést hér handleika fuglinn og er klárt mál að Rebekka er ýmsu vön á þessu sviði. Fuglinn flaug sína leið feginn að halda lífi.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 05 Jun 2009 @ 03 00 PM

EmailPermalinkComments (1)
 04 Jun 2009 @ 2:30 PM 
 

Gleði

 

Var að fá mjög svo glaðlegan flugmiða og hótelstaðfestingu fyrir Barcelona ferðina okkar Óskars 19. júní. aðeins 15 dagar í þetta!!!

Ég heyrði í Röggu systur í gær og hún sagði mér að það væri búið að opna 4 hæða RISAstórt H&M á Plaza Catalunya! SÆLL! mjög svo boðlegt!!!
Ég bara get ekki beðið!!! langþráð frí frá kvíða og þunglyndi!
Við verðum á hóteli í 2 daga í borginni, svo Sitges (strandarbær) í 2 daga, svo síðustu 2 dagana hjá Röggu.
Hótelið er rétt við La Sagrada Familia og því fylgir morgunmatur.
sagrada

Ég sótti um í gær diplómanám í afbrotafræði, fer líklega í það í haust (komin inn). En ætla að taka það í fjarnámi/með vinnu. Þeas ef ég verð í vinnu, er að leita á fullu, annars bara atvinnul.bætur.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 04 Jun 2009 @ 02 32 PM

EmailPermalinkComments (3)
 03 Jun 2009 @ 12:42 PM 

Fékk synjun á kennslufræðina…..

Ég ætla að sækja um í kennslufræði í Háskólanum á Akureyri á morgun og sendi mail áðan á námsráðgjöf HÍ og spurði hvað í fjandanum ég gæti lært hjá þeim.. og annað á Félagsráðgjöfina og gá hvort ég geti gert eitthvað til að hækka meðaleinkunnina frá 7,11 upp í 7,25.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 03 Jun 2009 @ 12 42 PM

EmailPermalinkComments (0)
 02 Jun 2009 @ 1:24 PM 

Ég er búin að vera með fjörfisk í auganu í marga daga núna, óvissa framundan hvort ég sé með vinnu hjá SÍ eða hvort ég komist í skóla í haust. Fæ alltaf svona fjörfisk þegar ég er undir álagi/kvíðin/streita.

Í dag kom svo í ljós að SÍ getur ekki lofað mér neinu, og samningurinn minn rennur út 31. ágúst. Ég fór yfir til TR og þar var sama sagan, ekkert verið að ráða. En starfsmannastjórar á báðum stöðum “vita af mér”. Samt var mér lofað vinnu í fyrravor þegar ég byrjaði.

Ég er búin að vera að skoða vinnur, sá heilar tvær sem mögulega geta hentað mér og sótti um þær.

Ég fékk synjun á Náms- og starfsráðgjöf í HÍ því ég er ekki með fyrstu einkunn. Á ennþá eftir að fá svar frá Kennslufræðinni.

Við Óskar ætlum að fara að leigja saman í haust, veiii, þegar það á að vera gaman og spennó þá eru það líklega atvinnuleysisbætur sem ég þarf að fleyta mér á…. finn bara húsgögn í gefins dálkum og í Góða hirðinum.

Æhj… helvítis, nú er víst best að spara

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 02 Jun 2009 @ 01 24 PM

EmailPermalinkComments (0)
\/ More Options ...
Change Theme...
  • Users » 4
  • Posts/Pages » 712
  • Comments » 2,879
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.