



Mín deild eru skurðlæknar… hérna er hluti af okkur í múnderingunni





Þvílíkur munur !!! fékk nýja tölvudótaríið mitt í gær, á núna 1tb aukalega pláss!
:D og hátalararnir eru snilld! ahh er svo glöð
Talaði við Sylvíu sys í Noregi í gær, það er Norway Rock Festival með Manowar, Nightwish, WASP, Arch Enemy, Sonata Arctica, Testament, Doro og fleirum í júlí. FOKK gengið er svo hrikalega óhagstætt að það kostar hvítuna úr augunum að fara þetta, mig langar að grenja langar svo!!!!!!!!




Jarðarför á föstudaginn kl 13… úff. Elsku Guðrún og fjölskylda, þið eigið alla mína samúð :*
Óskar fer í endajaxlatöku sama dag. Hann er búinn að vera sárkvalinn greyið í nokkra daga útaf þessu. æjæj ætli ég verði ekki í því að hjúkra hundamanninum mínum og gefa honum fljótandi fæðu.
Í Bootcamp í gær var spilaður playlistinn minn, sem samanstóð aðallaga af Manowar og Hammerfall hehe snilld \m/
Ég er þjökuð af harðsperrum í dag, hef ekki verið nógu aktíf síðustu vikur í Bootinu vegna veikinda og páskafrís. En þetta er að koma núna ! Mig vantar félaga til að æfa með mér, Tinna er að fara að hætta. Núna er sumartilboð sem gildir maí til sept á 35.000 kr.




Ég ætla aldrei aftur að kaupa matvörubúðarsjampó! Undanfarna mánuði hef ég verið að spara og keypt þannig, og hárið á mér er búið að vera flókið og ógeðslegt. Ég fór því í gær á hárgreiðslustofu og keypti Matrix hárnæringu og sjampó.
ÞVÍLÍKUR MUNUR. Shit.
Ég var orðin hrædd um að hárið á mér væri að fara í fokk, að ég þyrfti að klippa það. Ég hef alltaf verið með fullkomlega slétt og mjúkt hár, líklega því ég hef oftast átt góðar hárvörur.





Þessi helgi var jafn róleg og páskarnir, ég gerði ekkert nema sofa og horfa á þætti. Nennti ekki út að skokka vegna rigningarþunglyndisins.
21.-24 maí er ég í fríi og þarf að plana eitthvað að gera, annars mygla ég við rúmið mitt!
Óskar er búinn að vera að tala um að fara suðurlandið og gista í Vík, skoða jafnvel jökulsárlón og það allt saman. Ætlum að stefna að því þessa daga.
Brandur er fyndinn köttur, hann er búinn að læra að opna hurðir utan frá, með því að teygja sig í húninn. Undanfarið er hann farinn að opna hurðir að innan líka, en það er aðeins erfiðara og heppnast ekki alltaf.
Ég fékk hjartaáfall eitt miðnættið um daginn, þá heyri ég að einhver er að hamast á útidyrahúninum! þá var Brand að reyna að opna (samt kemst hann alltaf inn um kattalúguna þvottahúsmegin). En hurðin var í lás og það tókst ekki í það sinnið. Svo opnaði hann útidyrahurðina um daginn og skilur hana náttúrulega eftir opna bara….


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 