20 Jan 2009 @ 9:47 AM 

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 20 Jan 2009 @ 09 47 AM

EmailPermalinkComments (3)
 14 Jan 2009 @ 12:53 PM 

Jæja við Helga ætlum á Wacken í ár, 20 ára afmælishátíð. Hammerfall og allskyns. Þorsteinn K á miða til sölu í svona pakkaferð.
Sjá á töflunni ferðina.

Við fljúgum til köben, gistum eina nótt, rútuferð til Wacken, svo sömu leið til baka og flug heim 3. ágúst.
Skoðaði flug (icelandexpress) ca 37.000 kr. Pakkinn 1900 DK (rúta og eitthvað fleira).

Fleiri með??


Hópferð á Wacken – Mekka Metalsins í 20 ár!
Wacken 2009 hátíðin er hvorki meira né minna en sú 20. í röðinni og því verður haldið uppá það með pompi og prakt.

RestingMind Concerts hefur haldið utan um hópferð Íslendinga á þessa hátíð síðustu fimm árin þar sem farið er frá Kaupmannahöfn með rútu beint á Wacken svæðið. Árið 2004 nýttu 25 metalhausar sér þessa ferð, 2005 var hópurinn kominn upp í 40 manneskjur, 2006 náði hópurinn 50 manna markinu, 2007 fóru 60 manns með og 2008 fóru 80 metalhungraðar sálir með í ferðina.

RestingMind ætlar að endurtaka leikinn í sumar, enda hafa náðst samningar við veðurguðina um alveg einstakt veður í ágúst – Alveg satt! Um er að ræða hópferð með rútum frá Kaupmannahöfn og beint á Wacken svæðið. Þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér til Danmerkur.

Hátíð með um 80 hljómsveitum
Eftirtaldar hljómsveitir eru staðfestar fyrir festivalið núna í ár enn sem komið er, en ballið er bara rétt að byrja, því það verða um 80 sveitir á Wacken og síðustu sveitirnar verða líklega ekki staðfestar fyrr en nokkrum mánuðum fyrir festivalið eins og gengur og gerist með svona festivöl.

CONFIRMED ACTS:

AMON AMARTH
AXEL RUDI PELL
BORKNAGAR
BULLET FOR MY VALENTINE
CALLEJON
CATHEDRAL
DRAGONFORCE
EINHERJER
EPICA
GWAR
HAMMERFALL
IN EXTREMO
IN FLAMES
KAMPFAR
KINGDOM OF SORROW
KORPIKLAANI
MACHINE HEAD
MOTORHEAD
NAPALM DEATH
NEVERMORE
TRISTANIA
VOLBEAT
WALLS OF JERICHO

RUMOURS:

METALLICA
RAMMSTEIN

Aldeilis fínt line-up sem dekkar svo til allar tegundir þungarokksins.

Betrumbætt tónleikasvæði og hámarksfjölda tónleikagesta náð
Fyrir hátina 2007 var tónleikasvæðið stórlega betrumbætt þegar aðalsviðin þrjú voru aðgreind betur og þriðja stærsta sviðið, hið svokallaða Party Stage, var flutt á sérsvæði, hinu megin við aðalsviðin tvö. 2008 var þetta skipulag allt bætt enn til muna og svæðið opnað betur og inngöngum á tónleikasvæðið fjölgað og sett á fleiri staði. Einnig datt tónleikahöldurum það snjallræði í hug að bæta við einum risaskjá með sínu eigin hljóðkerfi fyrir utan tónleikasvæðið, þannig að þreyttir metalhausar gátu plantað sér þar, jafnvel með stólana sína, og tékkað á böndum sem þeir kusu ekki að fara í troðninginn fyrir framan sviðin. 2007 gerðist líka að hátíðin náði hámarskfjölda gesta. Uppskar hátíðin svolítin troðning fyrir vikið en 2008 hafði bætt örlítið við fjöldann, en troðningurinn var þrátt fyrir það mun minni vegna breytinga á skipulagningu svæðisins. Frábær þróun.

Ferðatilhögun
Lagt er af stað frá Köben að morgni þriðjudagsins 28. júlí!! Þetta var líka gert 2008 en fyrir það höfðum við lagt af stað á miðvikudeginum. Bæði 2006 og 2007 mynduðust langar biðraðir á þjóðvegunum að Wacken og menn þurftu að bíða í rútum í langan tíma af þeim sökum (sem er svosem ekkert slæmt með kaldar veigar við hönd og metal í græjunum). Slíkt var miklu mun minna af 2008, þar sem fjöldinn allur af fólki var kominn á staðinn þegar á þriðjudeginum þó svo að tjaldsvæðið á Wacken opni ekki formlega fyrr á miðvikudeginum. Wacken skipuleggjendur gerðu undantekningu fyrir okkur og nokkra aðra útvalda og getum við tjaldað í ró og næði strax á þriðjudeginum og myndað tjaldbúðir okkar.

Þetta þýðir auðvitað að fólk verður að vera komið til Köben á mánudeginum í síðasta lagi! Brottför frá Wacken er á sunnudeginum, 2. ágúst og áætlaður komutími í Köben er um 20-21 leytið.

Wacken Metal Battle Iceland – Íslenskt band á Wacken 2009
Í fyrsta skipti verður haldin Wacken Metal Battle keppni á Íslandi. Þessi keppni er live hljómsveitakeppni, þar sem sigurhljómsveitin fær réttinn til að spila á Wacken og taka þar með þátt í lokakeppni Metal Battle. 20 þjóðir munu taka þátt í Metal Battle í ár, en sigurvegar lokakeppninnar munu hljóta m.a. hljómplötusamning, trommusett, magnara og annað að launum. Frekari upplýsingar um keppnina er að finna á http://www.metal-battle.com

Verðið
Boðið er uppá einn sameiginlegan pakka fyrir bæði rútuna til Wacken og miðann inná festivalið. Fyrir þá sem þegar hafa tryggt sér miða á festivalið býðst mönnum að panta bara pláss í rútunni. Rútuferðin í Danmörku er skipulögð af Livescenen, og stendur einnig Dönum til boða, þannig að það verða eldhressir Danir með í rútunum til og frá Wacken. Athugið að flugið til Kaupmannahöfn er fyrir utan þennan pakka og á ábyrgð hvers og eins fyrir sig, enda flugframboð þangað mikið og ódýrt fyrir og mismunandi hvað fólk vill vera lengi í Köben fyrir/eftir festivalið.

Innifalið í pakkanum er þetta:
* Miði á Wacken hátíðina (augljóslega ekki fyrir þá sem panta bara rútuferðina).
* Rútuferð frá Köben beint á Wacken svæðið og til baka.
* Grillveisla á þriðjudeginum í tjaldbúðum Íslendinga (fólk kemur með sinn eigin mat á grillið, hægt að kaupa á leiðinni í rútuferðinni þegar stoppað er á landamærum Danmerkur og Þýskalands).
* Partýtjald (áður voru nokkrir sem lögðu í púkk til að kaupa slíkt tjald, en núna verður þetta innifalið). 2007 og 2008 var fjárfest í risa 6 x 9 metra tjaldi sem kom mjög vel að notum. Verður slíkt gert aftur.
* Full Metal Service sem samanstendur m.a. af eftirfarandi:
- Tjaldsvæði og kostnaður vegna rusls.
- Aðgangur að sundsvæði Wacken. Skutla ferjar fólk að Schenefeld sundlauginni.
- Engin takmörkun á þeim mat og drykk sem fólk hefur með sér á tjaldsvæðið.
- Eingöngu græn svæði fyrir tjaldsvæðin.
- Wacken festival límmiði.
- Full Metal Bag, bakpoki sem verður fullur af goodies…
- Geisladiskur (takmarkað upplag)

Verðið sem þetta kostar allt saman er 1900 danskar krónur (DKK). Þetta er hækkun um 100 DKK frá því í fyrra en bara miðinn á Wacken hefur hækkað um 30 Evrur (220 DKK) frá því í fyrra og því er hækkunin samt sem áður mun minni. Það er vegna hagstæðari rútusamninga.

Verðið fyrir bara rútuna er 950 DKK!

Nánari upplýsingar og skráning – deadline 24/12 fyrir öruggan miða!
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Þorsteini Kolbeinssyni.
MSN: restingmind “at” msn.com
Email: thorsteinnk “at” hive.is (nota það frekar en msn meilinn)
Sími: 557-5599 og 823-4830

Ef menn vilja skrá sig, þá senda menn email á mig með eftirfarandi upplýsingum:

Nafn
Heimilisfang, póstnr og staður
Kennitala
Heimasími og GSM
Email og
MSN login (ef annað en email). Og ég svara um hæl með upplýsingum um hvernig er hægt að borga.

ATHUGIÐ! Vegna gríðarlegrar eftirspurnar í miða á festivalið er skipulögðum rútuferðum tryggðir miðar á festivalið fram til 24.12.2008! Þær hafa s.s. frest til þessarar dagsetningar til að leggja inn pantanir. Eftir það er staðan skoðuð og ef miðar verða enn eftir eftir það, þá verður auðvitað hægt að panta eftir það. En, þetta þýðir samt að til þess að vera alveg 100% viss um að fá miða, þá ættu menn að leggja inn pöntun fyrir þann tíma.

Tekið af: http://www.taflan.org/viewtopic.php?t=39419

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 14 Jan 2009 @ 12 53 PM

EmailPermalinkComments (6)
 14 Jan 2009 @ 8:32 AM 

gahhhhh hressandi!!!!!! góða helvítis lagið!! og geðveikt corpse paint! :o )

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 14 Jan 2009 @ 08 32 AM

EmailPermalinkComments (0)
 12 Jan 2009 @ 1:16 PM 

Crap, það er uppselt á 20 ára afmælishátið Wacken í Þýskalandi. En það er þó smuga að kaupa miða af einhverjum á netinu, kemur í ljós.
Annars er það Manowar á Hellfest í Frakklandi 19.-21. júní eða Magic Circle Festival (sem ekki er enn búið að staðfesta). Þetta þarf að skoða betur.

Mig langar mest af öllu til að sjá Manowar, Hammerfall, Iced Earth, Edguy, Kamelot. En líka margt annað.

Óskar er að hugsa um að fara á Kilimanjaro í Afríku, úff ég fæ bara smá kvíðasting að hugsa út í það, en það er samt mjög spennandi eflaust!

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 12 Jan 2009 @ 01 16 PM

EmailPermalinkComments (1)
 09 Jan 2009 @ 1:04 PM 

* Byrjaði á að fagna árinu í Flórída, kom heim og fór með stelpunum til Tenerife á Kanarí.
* Flutti upp í Mosó um vorið.
* Kláraði BA ritgerðina “Félagsráðgjöf og flóttamenn: eigindleg rannsókn á móttöku flóttamanna á Íslandi”
* Byrjaði í Bootcamp aftur í maí. Á árinu hef ég grennst um 11,3 kg og misst 7% fitu
* Útskrifaðist með BA í félagsráðgjöf úr HÍ í júní
* Suddi deyr.
* Ég kynni mér allskyns powermetal, þ.á.m. Manowar, Edguy, Iced Earth, Kamelot, Hammerfall. ofl. HOOKED á því.
* Skellti mér í Þórsmörk með ölkonunum Helgu og Ósk og svo Snorra, Gísla E, Ómari ofl. Þannig byrjaði hrikalega skemmtilegt og hressandi sumar!
* Fór með Snorra til Barcelona, gistum m.a. í Sitges ofl.
* Ölkonur skelltu sér á Þjóðhátíð! HRIKALEGA gaman og fyndið! Ómar og Snorri líka.
* Ölkonur skella sér til London á metaltónleika, Unholy Alliance (Slayer, Amon Amarth, Mastodon, Trivium).
* Litla Mús deyr.
* Við Óskar kynnumst (dásamlegi hundamaðurinn minn :*)

—————————————————————————————–
Allskyns nýyrði komu upp á árinu frá okkur stelpunum, sem við ítrekað notum við ýmis tækifæri! Hrikalega fyndið. Hér koma nokkur:

* jú
* það er ómögulegt að segja
* ræ ræ ræ
* dauði
* hryllingur (hryllingur og dauði)
* neitun, neitunarvald, 5.grein hegningarlaga
* gerum ekkert slíkt, styðjum ekki slíkt… etc
* hví?
* Unit
* svarthol
* blóm í rauninni
* Hvað er í gangi hérna??
* limur og vagína
* hár á stangli
* þú þekkir það, við þekkjum þetta öll.. etc
* Gaman af því
* Þá sjaldan
* öl er gott fyrir beinin
* svona bara…
* vinalegt
* Það þarf stundum að gera það
* ZIP IT – I like silence
* ….ekki?
* bólga, vöðvabólga, limabólga, fitubólga.. etc
* allskyns
* og hvaðeina
* grufl og garf
* Mannpíka (mannfýla)
* það er það
* og hvaðeina
* Þetta er ekki boðlegt
* Murka, merja, berja og blóðga
* Þetta er bara misskilningur
* gleði… gleðin er mikil
* stingur (stingur í hjarta)
* Ást og ávextir
* túða
* móða (þoka) það eru til allskyns fólk í heiminum sem er ekki með kynfæri, heldur bara móðu

Svo kynntist ég náttúrulega allskyns nýju fólki í sumar og það er bara snilld!! Mikið í gegnum facebook og aðra vini náttúrulega :)

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 09 Jan 2009 @ 01 04 PM

EmailPermalinkComments (10)
 09 Jan 2009 @ 12:04 PM 

Í gegnum árin hef ég heyrt texta í allskyns lögum um þennan blessaða Pied Piper, þetta er saga af manni sem blæs í flautu og fælir rottur útí á, með tónlistinni þar sem þær drukkna, fyrir bæjarbúa, sem borga honum ekki, Pied Piper reiðist, hann spilar þá á flautuna og tælir í þetta sinn börn bæjarins inn í helli þar sem þau sáust aldrei aftur. sjá wiki

Folk singer Donovan, who starred in the 1972 film The Pied Piper as the title character, recorded the song “People Call Me the Pied Piper” which was included in his album Pied Piper, released on the Music for Little People label (another version of this song was included in the film).
Stairway To Heaven by Led Zeppelin contains the Lyric – “the piper is calling you to join him”, as well as “the piper will lead us to reason”.
Pied Piper” is a song composed by Ian Anderson, released on Jethro Tull concept album Too Old to Rock ‘n’ Roll: Too Young to Die! (1976).
Italian singer and songwriter Edoardo Bennato recorded the album E’ arrivato un bastimento based on the Pied Piper fairy tale.
The Megadeth song “Symphony of Destruction” contains lyrics referencing the piper, in the lines “Just like the pied piper led rats through the street.”
The Radiohead song “Kid A” contains clear references to the Pied Piper tale, including the lyrics “Rats and children follow me out of town” and “Come on, kids.”
The Jason Webley song “Broken Cup” contains lyrics referencing the piper in the lines, “After so many pipers have played in these streets, who is missed more? The children or the rats?”
In the song “Lose Yourself” by the rapper Eminem, he says “Best believe somebody’s payin’ the Pied Piper”.
1970’s pop group ABBA recorded a song called ‘The Piper’ influenced by the Pied Piper of Hamelin.
Crispian St. Peters had a 1966 hit calling for us to follow him as ‘The Pied Piper’
The Supper’s Ready by Genesis contains the line: “the Pied Piper takes his children underground…”
In the Queen song “My Fairy King”, writer and lead vocalist Freddie Mercury borrowed some lines from the poem.[26]
The song “Ogre Battle”, also by Queen, makes a reference to the story “Now once upon a time, An old man told me a fable, When the piper is gone, And the soup is cold on the table.”
In Extremo have recently put Goethe’s verse to music in their song, “Der Rattenfänger” on their album, Sünder ohne Zügel.
The Demons & Wizards song “The Whistler” from their self-titled debut album.
R. Kelly often refers to himself as the Pied Piper.[27] (In 2002, R. Kelly was indicted on charges of child pornography[28])
The Piper Never Dies“, the second track from the German power metal band Edguy’s Hellfire Club album.
Dune song “Let’s go hand in hand”.
The Hooters song “Where do the Children Go?” asks “..and who’s that deadly piper, who leads them away?”
Bob Dylan’s song “Tombstone Blues”, released on the 1965 album Highway 61 Revisted says the king of the Philistines “Puts the pied pipers in prison and fattens the slaves”

piper

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 09 Jan 2009 @ 12 04 PM

EmailPermalinkComments (1)
\/ More Options ...
Change Theme...
  • Users » 4
  • Posts/Pages » 712
  • Comments » 2,879
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.