



Jónína Ósk Lárusdóttir vinnur að listsýningu þar sem brjóst verða í aðalhlutverki, en yfirskrift sýningarinnar er Ein-stök-brjóst.
?Ég verð með eitt hundrað svarthvítar ljósmyndir af kvenmannsbrjóstum á sýningunni. Þetta
verða bara fallegar myndir, teknar rétt yfir barminn og alveg nafnlausar,? segir Jónína Ósk Lárusdóttir,
grafískur miðlari, um listsýningu hennar þar sem brjóst verða í aðalhlutverki. ?Konurnar verða á öllum aldri, þó að ég vilji ekki fara of neðarlega í aldri. Sú elsta sem hefur tilkynnt þátttöku sína er áttræð og
alveg fjallhress með að koma til mín,? segir hún og brosir. Myndataka verður í höndum ljósmyndarans
Írisar Jóhannsdóttur og mun Matthildur Lárusdóttir aðstoða við tökurnar.
Myndirnar verða til sölu og vonast Jónína til að geta notað fjármagnið sem þannig safnast í tækjakaup
fyrir Landspítalann og í fræðsluefni.
Tekið úr Fréttablaðinu í dag bls 45. Sjá líka vísir.is
Ég s.s. skráði mig í þetta og Sylvía systir líka, brjóst okkar munu s.s. prýða listasal á næstunni




Nýtt lag með Metallica – úffff góða helvítis lagið!!
Einnig er komið lagið Cyanide og My apocalypse… en þetta er best af þessum þrem að mínu mati




Elsku dásamlegi guðdómlegi á þriggja ára afmæli í dag
(tók þessar myndir í gær) mmmmmmmmmmmmmmmmmmm dásamlegt.






Jæja, fitumæling í gær, 6 vikur síðan síðast.
Tek fram að ég hef verið drykkjukona hverja helgi og misst soldið úr Bootcamp sökum Þjóðhátíðar og veikinda…. en hérna koma tölurnar!
Í heildina síðustu 6 vikur hef ég misst:
1,5 % af fitu.
1 cm af handlegg
2 cm af maga
2 cm af mjöðmum
2 cm af lærum
og 3 kg af vigtinni.
Síðan í maí eru þetta:
7 kg
5% af fitu
2 cm af handleggjum
5 cm af maga
5 cm af mjöðmum
5,5 cm af lærum
Sjæsse!! Ég er alveg að nálgast markmið sumarsins!




Þetta er of fyndið til að deila þessu ekki með öllum!!!
BOAT!!!! LIME!!!




Jæja Þjóðhátíð var bara gargandi, krampakasts, argandi snilld!! Sjaldan skemmt mér jafn vel og grenjað úr hlátri!! En sögurnar eru svo margar að ég nenni ekki að segja frá því hér.

Anyways, næst á dagskrá er Slayer í London 31.október. En það er Unholy alliance tour þeirra og Mastodon og Trivium. Ég rakst á setlistann þeirra í gær og skrifaði diska með lögunum handa Helgu og Ósk, til að getað fílað sig betur á tónleikunum \m/
Þetta er setlistinn:
01. South of Heaven
02. Silent Scream
03. War Ensemble
04. Blood Red
05. Cult
06. Disciple
07. Mandatory Suicide
08. Seasons in the Abyss
09. Chemical Warfare
10. Dead Skin Mask
11. Hell Awaits
12. Raining Blood
13. Antichrist
14. Angel of Death
Ég er mjög svo sátt við þetta !!
Salóme eins gott að þú verðir komin með íbúð!! og Guðný þú verður að koma og hitta mig!!


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 