



ahahahah!!!! HELVÍTI ER LOKIÐ ! Prófaviðbjóður!!!! og þetta er sko pynding! því skv. skilgreiningu er pynding:
Verknaður sem vísvitandi er veitt manni er veldur líkamlegum eða andlegum sársauka í því skyni að fá hjá honum eða þriðja manni upplýsingar eða játningu
Bjór á morgun! TSSS glúgglúgglúggg!!!




Kósíheit par exelans – Baggalútur
Afsakaðu allan þennan reyk inni,
ég var barað líta til með steikinni.
Hún er meir og mjúk – hún er eins og hugur manns.
Loksins ertu kominn hingað á minn fund;
finn svo gjörla – þetter töfrastund.
Úti vindur og fjúk – kósíheit par exelans.
Smakka sósuna – því mér finnst hún í það þynnsta.
Hún þarf korter enn – í það allra minnsta.
Og við setjumst að borðum – ha-ha.
Já við setjumst og borðum – ha-ha.
Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
Hvernig smakkast svo? – Þetter yndislegt.
Jahá, en mest er þó gaman – ha-ha
að við skulum vera saman – ha-ha.
Góða veislu má ei skorta eftirrétt.
Eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt.
Fáðér rúsínubrauð
-nær algerlega fitusnauð.
Allir þurfa jú að passa línurnar.
Viljum ekki enda eins og svín – er það?
Fokkitt – skítt með það – fáum okkur ögn meiri rjóma.
Viltu sérrítár? Eða kamparí í órans?
Æ, manstu vikuna okkar í Flórens?
Er við drukkum það saman – ha-ha.
Æ, hvað það var nú gaman – ha-ha.
Smökkum sörurnar, mömmukökurnar,
makkarónurnar – eplabökurnar.
Hvernig smakkast svo? Þetter dásamlegt!
Jahá, en mest er þó gaman – ha-ha
að við skulum vera saman – ha-ha.
Meira laufabrauð? Eða marensfrauð?
Hvar er konfektið? Er það upp urið?
Hvernig smakkast svo? Þetter æðislegt!
Jahá, en mest er þó gaman – ha-ha
að við skulum vera saman – ha-ha.
Hvar er beilísið? Hvar er sjampeinið?
Bættu toffíí æriskoffíið!
Hvernig smakkast svo? Þetter unaðslegt.
Jahá, en mest er þó gaman – ha-hah
að við skulum vera saman – ha-hah.




Við Helena fórum á fund í gær með kennara sem kennir fjölmenningu í félagsráðgjafarskorinni í gær og upp kom snilldar hugmynd að BA:
Gera eigindlega rannsókn á flóttamönnum sem komu síðast til landsins 2005, skoða eftirfylgni eftir þeirra fyrsta ár ef einhver er og leggja áherslu á konur. Hvernig þeim gengur eftir þessa hjálp sem flóttamenn fá á fyrsta árinu sínu hér.
Við sendum inn umsóknina rétt áðan og er þungu fargi af manni létt! allt þetta í miðjum prófalestri! púff.





Líf mitt er alveg einstaklega leiðinlegt þessa dagana.
Ég vakna kl 7 og er komin upp á bókasafn í Öskju rúmlega 8. Les og glósa til kl 16. með pásum auðvitað. Fer heim, borða, horfi á tv eða spila wow í 2-3 tíma, fer svo aftur upp í Öskju til 22-23.
Skelfilegt.
Er að lesa fyrir verkefnastjórnunarpróf núna…. kostnaðaráætlun, efndir, tímaáætlun og fleira spennandi :/
Er alltaf annað slagið að tékka á veðrinu í Orlandi, en núna fyrir nokkrum mínutum var 20 stiga hiti og það er nótt í Orlando. 11 dagar í það!





Heimir og Salóme heimtuðu partý, ég get bara haldið það fimmtudaginn 20.des því ég fer svo út 22.
Allir velkomnir





Jæja styttist í pyntingar enn einu sinni.
Í þetta sinn fer ég aðeins í tvö próf en önninn var þung í staðinn, mörg verkefni og þá sérstaklega viðbjóðsleg hópverkefni dauðans. Annað með 7 manna hóp! sem var erfitt.
Fyrra prófið sem ég fer í er Samfélagsvinna og verkefnastjórnun. og er það dauði mikill. Ég er akkúrat að lesa undir það núna og rétt áðan íhugaði ég að taka líf mitt. Neeeiiii ekki alveg en svona næstum því. Þetta er það leiðinlegasta á þessari önn. Prófið er 15. desember.
Seinna prófið er Fjölmenning og fagstörf. Það er skárra að læra undir það. Er mikið um fordóma, innflytjendur, mansal, útlendingahatur ofl. Prófið er 19. desember.
Við Helena, Aðalheiður og Salóme höldum til í Öskju. Tökum reglulega kaffipásur og tölum um hvað það er ömurlegt að vera í prófum og hvað við hefðum átt að læra meira á önninni, klassískt.

16 dagar í síðasta próf.
19 dagar í Flórída.
5 vikur í Tenerife.
Svo tekur alvara lífsins við aftur og hefst þá BA ritgerðarvinna og þunglyndi mikið.


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 