



JEIJ ég vissi það!
Tekið af mbl.is
Ný rannsókn, sem birt verður síðar í vikunni, bendir til þess að konur með ?stundaglasavöxt” séu búi yfir meiri gáfum en aðrar konur og þær eignist einnig gáfaðri börn. Ástæðan sé sú, að í mjöðmum kvenna séu omega-3 fitusýrur, sem næra heila bæði móður og barns meðan á meðgöngu stendur. Fita á kvið inniheldur hins vegar omega-6 fitusýrur, sem hafa engin áhrif á þroska heilans.
Ég er með alveg ágætis mjaðmir sem einmitt eru kjörnar fyrir barneignir ![]()





Smá léttir, ég prentaði út tvö verkefni sem ég á að skila í vikunni, alltaf gott þegar kemur að skilum.
Nú er bara eftir smá lokaorð á hópverkefnin tvö og skila!
Svo er skýrslan fyrir rannsóknina mína due í lok nóvember og svo bara 2 próf í desember.
Jíha Orlando og Tenerife here I come!
Þessa dagana er ég að pæla í að gera úttekt á Kvennasmiðjunni sem lokaverkefni. Eflaust sem rannsókn, viðtöl og/eða spurningalistakönnun til þátttakenda. Spennó.
Ég keypti í fyrsta sinn Gingsen, rándýrt helvíti, en ég er búin að vera þreytt og athyglislaus undanfarið en nú verður því aldeilis snúið við!
Er einhver enn að lesa þetta blogg? ég hef verið svo ódugleg undanfarið. þakkir til þeirra sem nenna að “mæta á svæðið”
Þessa dagana erum við mamma að passa hestana hans pabba. Það eru þeir Kormákur (1vetra) og Blakkur (eitthvað eldri). Kormákur er bara beibís og er alger api
mann er bara apahestur.
Við förum til skiptist niðrí hesthús að gefa, moka og hleypa þeim út. Pabbi er í Verahvergi á heilsudótaríinu þar.





JÆJA! það er komið að því. Helvítis stress ![]()
Á næstu önn kem ég til með að byrja á ritgerðinni minni, er að reyna að brainstorma þessa dagana og finna mér eitthvað efni.
Held ég geri heimildaritgerð frekar en rannsókn, en útiloka ekki neitt.
Hef farið í tvö viðtöl til kennara í skorinni og það hjálpaði mér ekki baun.
Helena og Anna eru líka að kúka á sig með þetta
Ég stefni á að útskrifast í júní 2008 en útiloka ekki möguleikann á að skrifa ritgerðina í sumar og útskrifast þá í október 2008, þar sem ég er í 3 öðrum fögum ásamt því að skrifa ritgerð þá væri sweet að dunda sér bara við ritgerðina í sumar og ekkert annað.
Erfiðast er að byrja… ég þarf að afmarka mig, það er tuggið ofan í mann. Ég fór að brainstorma áðan og greip á lofti:
Fjölmenning: aðlögun innflytjenda og þjónusta við þá.
Alkóhólismi (afmarkað hvernig? hmmm).
Aldraðir (afmarkað hvernig? hmmm).
Geðfatlaðir og húsnæðismál.
Sjitt… stress stress stress



More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 