



Gaman að segja frá því að ég var sú fyrsta sem skipti penna yfir í bréfaklemmu og þá var þetta litla verkefni komið af stað: http://aflitlumneista.blogspot.com/
Það verður gaman að fylgjast með þessu og sjá hvað úr verður.
Hérna er gamla færslan mín.









Fyrir ykkur sem eruð tv-series nördar þá eru Chuck snilldar þættir, hef bara séð fyrsta þáttinn reyndar en hann lofar góðu! spennu/drama/grín/ástar.
![]()




æjæjæj úffff…. í gærdag kom Litla Mús með fugl inn. Við Gísli heyrðum skrítin hljóð koma frá baðherberginu. Ég henti kettinum fram og tók fuglinn, sem blæddi. En hann orgaði svo HÁTT eins og stunginn grís!!! að ég vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga, fór með hann út í garð, þar sem hann slapp úr höndunum á mér bak við ruslatunnurnar en ég náði honum aftur og hann orgaði og orgaði að mamma Gísla heyrði ólætin og kom út! nágranna konan var komin útí glugga og hafði þá heyrt lætin í litla fuglinum! úfff sjitt!!! ég vissi ekki að það gætu komið svona mikil læti úr einum fugli!!
Ég smalaði restinni af köttunum inn og setti fuglinn í runna.
Hann var með langan gogg og reyndi að bíta mig. Veit ekki hvaða tegund þetta var.
Greyið litla




Í hús er komin ný myndavél sem Gísli gaf mér í afmælisgjöf (sys kom með hana frá USA í gær).
Canon Powershot SD750

Og svo fór Gísli og keypti tvö stykki tölvur!! Eina fyrir mig og aðra fyrir hann, alveg eins. Geðveikt öflugar og góðar tölvur sem ekki þarf að endurnýja næstu 3 árin amk
Nú þarf bara tvö stykki LCD widescreen 22″ skjái!









Ég hef verið að æfa Bootcamp síðustu 6 mánuði, hef farið 2 sinnum í viku og stundum þrisvar (sem er ekki nóg, þrisvar er lágmark). Ég hef étið það sem ég vil, sælgæti og pizzur og ekkert passað mig með það. Var að koma úr fitumælingu og hef misst 3,5 cm af lærum og 4 cm af mjöðmum!!! fituprósentan fór niður um 2% í heild.
Þetta er hvatning fyrir mig og nú ætla ég að taka mataræðið í gegn !



More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 