



Getur einhver lánað litlu frænkum mínum þríhjól í sumar? þær eru að koma frá Spáni á föstudag.

ps: Bangsi enn týndur




Elsku Bangsa beibís….
Hann er búinn að vera týndur í viku núna og ég er búin að leita um allt hverfið og víða í Kópavogi. Hengdi upp auglýsingar í búðina, sundlaugina, sjoppu og á nokkra ljósastaura. Sendi auglýsingu á barnaland.is, dyraland,is, kattholt.is og víða… Í dag kemur auglýsing í Velvakanda.
Í gær barst okkur ábending um að hann væri í Lindarhverfi svo að við Gísli og Nanna rukum af stað og fínkembdum hverfið, svo bættist í leitina Sunna og Bára (takk stelpur). En við fundum hvergi Bangsa.
Æj þetta er svo erfitt.
Hann er bara 10 mánaða bjánaköttur og ratar ekki heim… kannski er hann læstur inni einhvers staðar?
Hjálp !!
Ps: þessi mynd er soldið gömul, hann er stærri í dag og miklu loðnari.





Nei ég er ekki látin…. bloggið er bara í sumarfríi.


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 