



Heyrði í fréttum áðan af manni sem var tekinn fyrir kynferðisbrot gegn 4 börnum, þar af nauðgaði hann 4 ára stúlkubarni, lífsýni var tekið úr barninu og sent til Noregs í greiningu, og staðfest að það var hans. Brotin gerðust í fyrra.
Hann gæti verið dæmdur í 12 ár mest en líklega verða þetta max 4 ár.
Ef ég fengi að ráða þá myndi ÉG höggva af honum helvítis viðrinis-liminn!!!!!!!!!
Djöfull er maður reiður þegar maður heyrir svona.









Þá er síðustu ritgerð þessa misseris lokið!
Er þá búin að gera 20 bls um karla og karlmennsku, 20 bls um innflytjendur og 10 bls um starfslok.
Nú get ég farið að einbeita mér að prófum.




Í dag eru 2 ár síðan ég kom heim frá Barcelona og byrjaði því með Gísla ![]()
Í gríni og gamni sendi ég blómvönd til hans í vinnuna og núna segja strákarnir í vinnunni hans að það sé komin pressa á hann að toppa þetta.
Við ætlum í kvöld á Tapas veitingastaðinn að borða.

Sylvía systir á líka afmæli í dag, til hamingju með daginn !




sjitt, stress!
Ég er búin að vera að skoða Háskóla erlendis undanfarna daga. Spurði Margréti félagsráðgjafa TR hvað hún myndi gera ef hún væri að fara í mastersnám og hún sagði að hún myndi fara til Edinborgar. Ég hringdi svo í lektor í HÍ og hún sagði að það væri gott fyrir mig að fara til USA og þá Chicago.
Við Helena (félagsráðgjafapíka) fórum svo á Alþjóðaskrifstofu að athuga málið og fá upplýsingar, þá er hægt að búast við að þurfa að taka 1-2 inntökupróf (GRE og TOEFL) í háskóla í USA og borga 2 milljónir á ári í skólagjöld ofl. Bretland er ekki mikið ódýrara en þó styttra heim til Íslands þaðan.
Hægt er að sækja um allskyns styrki, til þess þarf ég að skrifa kynningaritgerð og selja sjálfa mig og senda út um allt……. t.d. þarf að sækja um Fulbright styrkinn í okt 2007 ef ég ætla í mastersnám haust 2008. Þannig að ég þarf að fara að hugsa um þetta!!
SJITT hvað á ég að gera?? *PÆL*
Gísli vill ólmur flytja út, helst til London, sáttur við Chicago en síst Edinborg.
Mamma??? tekur þú börnin mín á meðan? æjjjjjjjj





Ómar var að senda mér frábæra frétt af ketti sem tekur strætó reglulega til að spara sér sporin! haha merkilegt!
—————
Ég er með laktósaóþol = þoli illa mjólk. Nema ég hef sloppið með að forðast mjólkina og fengið mér skyr, jógúrt og ost nema undanfarið er ég búin að vera slæm svo að ég fékk mér ekkert slíkt yfir páskana og prófaði svo að fá mér eina skyrdós í dag, helvísk! ég fékk í magann!
svo að skyrið er úr myndinni. Skyr er í snilld!!! og ég er svo fúl! maður getur gripið þetta með sér og reddað sér máltíð hér og þar. Hvað á ég nú að éta??
—————————-
Úff Bootcamp… æfingin byrjaði inni, froskaæfingar dauðans og svo var farið út, hlupum í Laugardalinn og gerðum þar æfingar á blautu grasinu… mmm andarskítur…. skárri en mannaskítur! Djöfull var þetta erfitt, en hressandi!
——————————————-
Björk í Laugardalshöll í gær, snilld! tók nokkur gömul og nokkur ný lög, alveg eins og það á að vera. Björk er svo ógeðslega kúl!!!










1007 2007 27
Hvað þýðir þetta?


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 