31 Mar 2007 @ 4:31 PM 

Þetta er nú meiri dagurinn. Ég vaknaði snemma til að fara á Bootcamp æfingu og tók VEL á því. Brunaði svo upp í Jsb þar sem boðið var í brunch. Svo var ratleikur upp í Öskjuhlíð þar sem við hlupum um eins og brjálæðingar með drasl á hausnum (eyrnaskjól, grímur ofl) í klukkutíma!! (SVITI) Svo var keila og ég vann næstum því!!! ooooo!!!…… en djöfull er ég góð í keilu!
Svo er fordrykkur í kvöld og matur á Hótel Loftleiðum.

Skál!

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 31 Mar 2007 @ 04 31 PM

EmailPermalinkComments (4)
 30 Mar 2007 @ 11:28 AM 

oj ég verð svo reið!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Sylvía benti mér á þetta blogg þar er verið að tala um að á Íslandi sé verið að blóðtæma merar….. þær deyja oft af þessu.


Blóðmagn hryssu er 25-35 lítrar og má því segja að hryssan sé blóðtæmd á þessum fimm til sjö vikum. Blóðtökurnar hefjast venjulega í ágúst og lýkur eftir tæpa tvo mánuðui en þá er hryssan um það bil hálfgengin með og framundan er erfiðasti hluti meðgöngunnar og köldustu mánuðir ársins. Enginn vafi leikur á því að blóðtaka þessi er mikið álag á bæði hryssu og folald, eins og mörg sorgleg dæmi sýna. Talið er að nokkrar hryssur drepist árlega vegna blóðtökunnar og þær hníga iðulega niður við blóðmissinn og láta jafnvel folöldum.

Úr blóðinu er ekki framleitt lyf til lækninga, heldur hormón sem stillir gangmál dýra svo hægt sé að slátra á hvaða tíma sem er og menn geti fengið nýslátrað allt árið.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 30 Mar 2007 @ 11 28 AM

EmailPermalinkComments (6)
 29 Mar 2007 @ 1:28 PM 

Það er búið að vera skemmtilegt að passa hestana meðan ma og pa eru utan.
Ég fer daglega og hleypi út, moka og gef þeim.
Um daginn kom fjörutíubarnafjölskyldan í heimsókn að klappa og svo kom Aðalheiður með sína stelpu að gefa pulsubrauð :)

Frábær þessi mynd sem Helga náði af Kóp og Maríu.
kopur

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 29 Mar 2007 @ 01 28 PM

EmailPermalinkComments (6)
 29 Mar 2007 @ 12:57 PM 

Voðalega á ég frægan kærasta…. um daginn hringdi blaðamaður moggans sem skrifar um tónlist í Gísla og vildi fá hann í viðtal fyrir heimildamynd um dauðarokk, hann fór og á eftir að fara meira í viðtal til hans.
Svo hringdi blaðamaður Fréttablaðsins í Gísla í gær og tók við hann viðtal um dauðarokk, Changer og af því að þeir eru að hita upp fyrir Cannibal Corpse í sumar. Svo kom ljósmyndari heim og tók mynd af honum.
Svo hringdi Bjössi í Mínus í hann og tók viðtal við hann sem birt verður í Ísafold.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 29 Mar 2007 @ 12 57 PM

EmailPermalinkComments (5)
 26 Mar 2007 @ 12:47 PM 

Changer voru að gera nýja boli og þið getið keypt þá af Gísla eða niðrí Dogma, Elvis og Geisladiskabúð Valda á 1500 kall.

changer

S / M / L / XL

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 26 Mar 2007 @ 12 47 PM

EmailPermalinkComments (9)
 25 Mar 2007 @ 1:41 PM 

Afhverju auglýsir X-ið sig vera með stækkun Álversins í Straumsvík?
Er þetta pólitísk útvarpsstöð? Ég er ekki að fatta þetta.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 25 Mar 2007 @ 01 41 PM

EmailPermalinkComments (3)
 24 Mar 2007 @ 2:24 PM 
 

s?tt

 
Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 24 Mar 2007 @ 02 24 PM

EmailPermalinkComments (2)
 23 Mar 2007 @ 12:03 PM 

Whoooooo !!!! tónlistin!!! og þessar undur fögru hreyfingar!!!

Video

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 23 Mar 2007 @ 12 03 PM

EmailPermalinkComments (1)
 23 Mar 2007 @ 10:22 AM 

Jæja, var að skrá mig í síðustu námskeiðin, haust 07 og vor 08. Námið mjakast!

Haustmisseri:

Tómstundafræði
Frjáls félagasamtök og sjálfboðavinna
Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum
Fjölmenning og fagstörf
Samfélagsvinna og verkefnisstjórnun

Vormisseri:

BA-ritgerð í félagsráðgjöf
Stjórnun
Félagsmálalöggjöf III: Barnavernd og sifjaréttur
Brautskráning í júní

hahahah1!! brautskráning í Júní !!

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 23 Mar 2007 @ 10 22 AM

EmailPermalinkComments (6)
 22 Mar 2007 @ 12:54 PM 

Hvenær á maður að eignast börn? tja maður spyr sig.

Er að læra um “career disease” sem er að æ fleiri konur yfir þrítugt geta ekki eignast börn, þær hafa verið að mennta sig og vinna og eitthvað sem verður þess valdandi (minni frjósemi ofl) að þær geta svo ekki eignast börn þegar þær loksins hafa tíma og efni á.

Kennarinn vill meina að maður eigi að eignast börnin fyrst svo mennta sig og vinna.

Svo var ég að lesa grein um fæðingarstyrk sem námsmenn fá.. 93 þúsund krónur! fáránlegt, fæðingarorlof miðast við hvort þú hafir verið á vinnumarkaði síðustu 6 mánuði og því ekki fyrir skólafólk. Svo þarf maður að vera skráður í skóla í 1/2 ár sem þýðir að maður þarf að borga heilt skólaárgjald + þetta telst til tekna og því skerðast námslánin!

babies

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 22 Mar 2007 @ 12 54 PM

EmailPermalinkComments (8)
\/ More Options ...
Change Theme...
  • Users » 4
  • Posts/Pages » 712
  • Comments » 2,879
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.