



Fólk hlýtur bara að vera á sýru þegar það er að nefna börnin sín! …tekið af: www.rettarheimild.is
Dæmi um drengjanöfn samþykkt:
Náttmörður
Neptúnus
Bryntýr
Ljósálfur
Mýrkjartan
Steinmóður
Úlfgeir
Vápni
Vöggur
Þrúðmar
? og margt margt meira
Dæmi um stúlkunöfn samþykkt:
Mjaðveig
Súla
Tryggvína
Ormheiður
Loftveig
Konkordía
Skarpheiður
Skuld
Tala
Asía
Kormlöð
Brák
Húngerður
?.. og margt margt meira




Ég vaknaði kl 6 við það að Brandur liggur ofan á bringunni á mér og Bangsi þar ofan á hehe þá voru þeir tveir að budda saman og mála hátt.
og annað ÚFFFFFFFF
Ég var að afgreiða gamlan mann sem var svo ljótur og ógeðslegur að hann var eins og hann væri að rotna! húðin gróf, brotnar tennur og allur skakkur og skældur. Neglurnar á honum voru eins og á skepnu… svona beast, langar og brúnar af reykingum og gulnaðir fingur… lengstu neglur sem ég hef séð….svo snerti hann hendurnar á mér!!!!!! OJJJJJ GUBBBBB ég var ekki lengi að fara og spritta !




leikfimi, leikfimi,leikfimi, átak, átak, átak….
Ég get aldeilis æft fjölbreytt núna í JSB, Sporthúsinu, Baðhúsinu, Þrekhúsinu, Betrunarhúsinu…




Er að reyna að sjóða saman hugmynd að ritgerð í þessum kúrs. Fór á bókasafnið og fann nokkrar heimildir; Tilfinningalíf karlmanna, Karlmennska og jafnréttisuppeldi, Gegnum súrt og sætt: um íslenska karla í fæðingarorlofi o.fl. en mig vantar aðal bókina sem heitir Masculinities. Ég bara tími ekki að kaupa hana…. á hana einhver ?
Sendi mail á kennarann og var svona að fiska eftir kannski betri eða bættari hugmynd að ritgerðinni (sem á að vera 18-24 bls):
1. Myndi tala almennt um karlafræði, karlmennsku og ímynd karla fyrr og nú.
2. Fara nánar í feður, uppeldi og heimilisstörf.
3. Enda á ímynd karla í sjónvarpsþáttum og auglýsingum (dæmi Homer Simpson ofl)(sleppa
því kannski og hafa bara tvískipt?)
Reyna að tvinna þessu saman í heildarmynd um ímynd karla á íslandi.
æj ég er búin að sitja hérna og googla og pæla í nokkra klst núna….






Til þess að manni geti í raun heppnazt að hjálpa annarri manneskju að komast úr einum stað á annan, þá verður maður sérstaklega að hyggja að því að mæta henni þar sem hún er stödd og byrja þar. Þetta er leyndardómurinn að baki allri hjálparlist. Hver sá sem ekki veit þetta er haldinn sjálfsblekkingu ef hann telur sig geta hjálpa öðrum. Því að í sannleika sagt, til að geta hjálpað öðrum þá verð ég að skilja meira en hann, en þó fyrst og fremst að skilja það sem hann skilur. Ef mér mistekst það þá hrekkur allur minn skilningur ekki til að hjálpa honum. Vilji ég samt koma þessum mikla skilningi mínum á framfæri, þá er það af hégóma eða hroka, þannig að í stað þess að verða honum að liði er ég þegar allt kemur til alls að sækjast eftir aðdáun hans. En öll sönn hjálp hefst með auðmýkt: Hjálparinn verður fyrst að auðmýkja sig gagnvart þeim sem hann vill hjálpa og þar með að skilja að það að hjálpa er ekki hið sama og að drottna, heldur að þjóna, það að hjálpa er ekki að hafa völd og stjórn, heldur þolinmæði, það að hjálpa er vilji og fúsleiki til þess að viðurkenna það að geta haft rangt fyrir sér og viðurkenning á því að maður skilur ekki alltaf það sem hinn skilur.
Søren Kierkegaard





Bústaðurinn var snilld! Elduðum geðveikt góðan mat, sungum, drukkum, rugluðum og bulluðum og fórum í helvítis pottinn! ég held að ég sé veik vegna þess! ![]()
Er í dag með kvef frá helvíti, það rennur úr augunum á mér, stíflað nef, auman háls og hósta. Búin að vera svona í þrjá daga og liggja upp í sófa eins og kartafla og það stefnir í að morgun dagurinn verði eins.
Ég setti inn myndir… úfff bara þær skástu, flestar voru skelfilegar.




Klukkan er rúmlega 10 og ég er búin að sitja hérna ein í bústaðnum frá kl 8 í morgun, allir steinsofandi í bústaðnum.
Í gær komum við um hálf átta og ég byrjaði strax á að gera mexíkanskt lasagna með kjúklingabringu, lauk, papriku, salsa, hrísgrónum og fajitas, smá rjómalufsa út í.
Svo var spilað á gítar, smá actionary og loks farið í heita pottinn brrrr!!! kalt úti!! og potturinn bara 32 stiga heitur! Ég dýfði mér bara stutt en hinir voru heillengi! og lúðarnir skildu eftir bjórflöskur við pottinn og lokið opið! Jæja þau hljóta að fara að vakna
haha það eru 4 kanínur beint fyrir utan gluggann!!! ég gaf þeim brauð og núna eru þær að slást um það! feitar kúkakanínur!
Ég var að browsa netið um hesta. Monty Roberts er frægur tamningamaður og “hestahvíslari”. Hann kom til Íslands í fyrra og pabbi, mamma og Ragga fóru minnir mig. Hann er búinn að gefa út allskyns efni og bækur og ég ætla sko ho að kaupa dvd en leigi bókina bara á bókasafni. Hann er ótrúlegur þessu maður! hvernig hann “hlustar” á hesta og lætur mestu ótemjur hlýða sér og jafnvel sest á bak eftir 15 mín kynni! Ég þarf endilega að kynna mér þetta og láta Kóp óþekka fara að hlýða mér betur.





JESSS!
Tryggvi hennar Helgu kom henni á óvart því hún á afmæli um helgina og leigði sumarbústað í Ölfusborgum. Hann bauð mér og Gísla og Sirrý og Jim líka.
Fokk já! Bjór, spil, tónlist, pottur, matur, nammi, gos, pönnukökur, leti, svefn, spjall, hlátur !!!
Á laugardaginn ætla ég að hafa pönnukökur, rjóma og kaffi, svo að þeir sem vilja geta kíkt í heimsókn! Sal, Al og Jack ? Bústaðurinn er í Verahvergi.. stutt að skreppa !

Brand, Mús, Bangsi og Svíni verða heimakettir…. ohh Músin vill ekki kúka inni, mann er útiMús. En þau verða bara öll inni og svo hleypum við þeim út á Sunnudag. Tengdó og Nanna hreinsa kassa og gefa mat og vatn.




Er hægt að vera ástfangin af köttunum sínum?
Ég er alltaf að leika við þau, budda, knúsa, kyssa og tala við þau og ég fæ ekki nóg. Svo þegar ég er ekki heima þá er ég alltaf að hugsa til þeirra og langar oft heim til að hitta þau, budda, knúsa, kyssa og tala við þau.





Jæja þá er skólinn byrjaður aftur og allt komið á fullt.
Ég er skráð í eftirfarandi áfanga:
Aðferðafræði III: Framhaldsefni í tölfræði
Öldrun og málefni aldraðra
Lífsskeiðakenningar og þroskaferli
Félagsmálalöggjöf II: Um málsmeðferð og réttindi skjólstæðinga
Karlar og karlmennska
Ég verð að vinna á þriðjudögum í TR og aðra hverja helgi í JSB.
Gísli fór í gær og keypti sitthvoran World of Warcraft leikinn og ég er alveg að komast inn í þetta, við spilum saman sem Blood Elves heheheh NERDS!!!
Þetta er screenshot af okkur áðan:



More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 