



hahahah!!!! JEIJ!!!!!!!!

Við Gísli fórum og keyptum okkur Playstation 2, Guitar Hero II og Crash Bandicoot: The Wrath of the Cortex. (líka minniskubb og auka stýripinna) JESSS!!!
Svo fengum við að láni Eyetoy hjá Bjargey og leikinn Kinetic frá Nike. Fokking snilld!!






Ég vaknaði með Brand og Svína ofan á mér og Bangsa ofan á koddanum. Bara notalegt




Jólin voru bæði slæm og góð. Amma hans Gísla dó á þorláksmessumorgun, við fórum upp á líknardeild að kveðja, mjög sorglegt. Kistulagning í dag.
Jólaboðin voru nokkur: útá Álftanesi hjá tengdó, hjá tengdó (mömmu Gísla), hjá systur pabba Gísla, og upp í Mosó hjá ma og pa.
Ragga, Mario, Sunna og Rebekka eru á landinu.
Í gær fórum við Ragga á hestbak í Víðidalnum. Svo fórum við Sylvía, Sigurður, Ragga, Mario og Sunna í sund. Eftir sundið fórum við til Sægreifans í humarsúpu, eftir allt kjötát jólanna.
Ég fékk haug af gjöfum og þar á meðal borðuppþvottavél frá tengdó á Álftanesi ! nú getur gísli farið að setja í uppþvottavél! aldeilis.
Gaman að segja frá því að ég náði helvítis stjórnmálafræðinni! JEIJ!
Og já… ég vil þakka góðu fólki fyrir jólakortin, við Gísli fengum alveg sæg af kortum en sendum ekki eitt einasta. Takk takk









Ég er að DEYJA úr þreytu hérna. Er búin að vera að vinna eins og svín undanfarna daga eða frá 8-16 hjá TR og svo 18-22 hjá Fólk. *GEISP*
Setti inn nokkrar myndir frá partýinu.




Hvern þekki ég í Köben sem ég gæti fengið gistingu hjá í Mars ?




Skv núverandi lifnaðarháttum (gróflega) þá verð ég 90 ára. Fyllið út og sjáið hvað þið verðið gömul.




The secret er rosalega góð mynd! ég fylltist spenningi, vellíðan, bjartsýni og hvað eina þegar ég horfði á hana.
Ég ætla að lána hana öllum sem vilja !




HAHAHAAHHAHAAAH Taugaspenna!!!!!!! Búin í helvítis prófum!
Gekk ekkert smá vel í Aðferðafræði II. JÖSS!
Klipping og litun kl 3.
Mosó að hitta Röggu og co í kvöld.
Jólahlaðborð í hádeginu á morgun.
Partý og fyllerí annað kvöld hjá Helgu!!!!!!


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 