



Sæl Rebekka.
Ég vil byrja á að þakka þér fyrir að taka þátt í að taka á móti
erlendum stúdentum sem koma til náms við HÍ.
Hluti af því sem felst í því að vera tengiliður er að aðstoða
skiptinemana við praktísk atriði á borð við að útvega sér kennitölu á
Hagstofu Íslands, aðstoða þá við innritun í HÍ, stofna bankareikning,
kaupa strætókort og annað tilfallandi.
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins hefur nú þegar úthlutað öllum
skiptinemunum húsnæði og sent þeim upplýsingar um það. Samt sem áður
þurfa stúdentarnir að verða sér úti um kennitölu sem þeir gera, eins og
áður segir, á Hagstofu Íslands. Kennitöluna þurfa þeir til að geta skráð
sig inn í Ugluna en lykilorðið inn í Ugluna fá stúdentarnir uppi á
Nemendaskrá sem er í aðalbyggingu HÍ.
Skiptinemarnir munu eflaust vera með margvíslegar spurningar varðandi
t.d.skólann, félagslíf o.fl. Fyrir utan að svara þessum
grundvallarspurningum sem þeir hafa um daglegt líf á Íslandi þá felst
ákveðin samvera einnig í starfi tengiliðs. Hér er t.d. verið að tala um
ferðir á kaffihús, í bíó, Kringluna eða jafnvel skoðunarferð á Gullfoss
og Geysi en þetta fer bara eftir stemmningu hvers og eins.
International Student Association (ISA) er nemendafélag erlendra nema við
HÍ þar sem skiptinemar sitja sjálfir í stjórn og skipuleggja félagsstarf
yfir veturinn. Endilega bentu þínum skiptinema á að kynna sér félagið.
Stjórn félagsins hefur mikinn hug á að fá einnig Íslendinga inn í félagið
og til að mæta á viðburði þannig að ég hvet þig að sjálfsögðu til þess.
Þann 1. september nk. (á föstudaginn) verður fundur í stofu 101 í Odda
fyrir íslensku tengiliðina. Ég hvet þig eindregið til að mæta en á
fundinum verður farið yfir nokkra punkta sem gott er að hafa í huga og
þeim spurningum svarað sem koma upp. Fundurinn hefst kl. 14:00 og varir í
u.þ.b. klukkutíma.
Skiptineminn þinn er Patricia von Maravick frá Austurríki. Póstfangið
hennar er patriciavm@gmx.net. Hún hefur einnig fengið póstfangið þitt
svo þið getið sett ykkur í samband sem fyrst.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi verkefnið ekki hika við að
senda mér póst.
Bestu kveðjur,
Sunna Kristín, formaður alþjóðanefndar SHÍ.




Jæja, margir sem þekkja mig vita kannski að ég fæ orð á heilann af og til…
Núna þessa dagana er það orðið “Unit”
dæmi:
“Hvar er hamarinn?”
“hann er þarna… æji.. þarna hjá öllu verkfæraUnitinu”
Svo er ég með setninguna “og hvað eina…” á heilanum
dæmi:
“Ég er eitthvað svo sjúskuð í dag, ómáluð, illa greidd, með bólur, bauga og hvað eina !”
Önnur orð sem ég hef haft á heilanum síðustu ár er “dæmi” en Unit hefur mikið til leyst það orð af hólmi… “dæmi” getur samt átt við meira en hluti, t.d: ” og það var bara hávaða rifrildi og DÆMI !”
Helga, er ég að gleyma einhverju?




Helga heimtaði blogg…. hérna hefurðu blogg Helga.




Bjór er góður…..
og við Gísli ætlum að bjóða þér að koma í partý á laugardaginn næsta, ekkert tilefni, bara gaman!

Hver ætlar að koma?




Ég sit hérna og læri við skrifborðið mitt… Hef opið út í garð meðan kettirnir eru að leika… svo heyri ég skrítið hljóð.. eins og eitthvað sé dregið eftir gólfinu… lít aftur fyrir mig… þá er Snúður, kettlingur bróður Gísla, að STELA rottuleikfanginu hans Brands!!! hahaha hann dregur það eftir gólfinu og hleypur út!!
Eins og þið sjáið er Brandur ekki par sáttur…. og fylgist með í fjarska….

Talandi um rottur……
Gísla var gefin þessi HUGE rotta um daginn! Hrikalega fyndið… þetta er víst leikfang/klóridót fyrir ketti nema hvað að Brandur og Músin voru skíthrædd við þetta og líta ekki við þessu… þetta liggur því bar hérna á gólfinu heima. Þið getið séð stærðina á þessu ef þið miðið við dyragættina…. fokking HUGE
Kvöldmaturinn (fyrir Helgu)




Jæja ég er í “fríi” í dag frá vinnu, er s.s. að læra undir prófið á miðvikudaginn. *sötrikaffi*
Ég lærði ekkert alla helgina eins og hálfviti…. þreif í gær hátt og lágt, hékk, drakk kaffi, bakaði köku, hringdi í Helgu og ætlaði að ræsa þau í kaffi og köku en ekkert svar, hringdi í Salóme og Al. Salóme kíkti og kom með nokkra góða pointara um það hvernig væri hægt að gera íbúðina vistvænni/flottari. Það er bara svo erfitt þegar maður á ekki pening! mig langar t.d. í sófa og sófaborð. Get svo sem sjálf málað og komist upp með það ódýrt, en verst þykir mér helvítis ljósin! það eru s.s. rússaperur í eldhúsinu, stofunni og svefnherberginu því að það er eitthvað dæmi að hengja ljós, snúrur og eitthvað sem lafir bara út og ég kann ekkert á þetta. Helga… má ég fá Tryggva lánaðan??
Svo er annað.. við eigum engin verkfæri!! ef maður ætlar að gera eitthvað hérna þá þarf maður að fá allt lánað eða kaupa það… t..d erum við með borvél í láni, ég keypti hillur, skrúfur og tilheyrandi og aldeilis átti að fara að hengja þær upp.. but nooooooo þá vantar bor! og hallarmál! helvítis hillurnar eru búnar að vera í kassa á gólfinu í 4 vikur!!
Ég keypti reyndar um daginn þrjú skrúfjárn.. það er byrjun, en vantar hamar ofl.




Helga er forvitnasta manneskja sem fyrir finnst… þegar maður talar við hana í síma og er kannski að borða eða að fara að borða þá ÞARF hún að spyrja mann hvað maður sé að éta…
dæmi:
Ég: já ég er að fara að borða sko…
Hún: hvað ætlarðu að borða?
Ég: brauð bara…
Hún: með osti?
Ég: já og smjöri
Hún: hvað drekkurðu með? vatn bara?
Ég: já stundum djús kannski…
wtf??
annað dæmi um forvitni:
Hún: ertu að vinna?
Ég: já…
Hún: siturðu við tölvu? eru svona skilrúm milli þín og hinna? blebleble? blebleble? blebleble?
Þegar maður kemur í heimsókn þá eru maaargar spurningar sem bíða manns um hitt og þetta. Þá er hún búin að safna spurningum yfir tíma og heimsóknin verður eins og yfirheyrsla hahaha.

Steikt grænmeti, kjúklingabaunir, karrí, mango chutney
stappaðar kartöflur, laukur, ostur inní ofn.
smábrauð með.




Ég er voða þreytt þessa dagana… erfitt að vakna á morgnana og kaffið heldur mér gangandi seinni part dags til að ég dragi í leikfimi. Það versta er að eftir vinnu + leikfimi þarf ég að fara að læra fyrir sumarprófið! úff KAFFI!
Ragga, Mario, Sunna og Rebekka fara heim í dag. Það var þvílíkt gaman í gær, mamma setti á sig apagrímu og loðhúfu og hljóp um allt hús á eftir Sunnu sem var skíthrædd! hahaha
Chrome-ið góða sem ég keypti á 1500 kall (mánaðarskammtur) svínvirkar! Það er alveg að minnka sykurlöngunina og ég er þvílíkt hissa!! Ég hef varla borðað nammi í 2 vikur(fékk mér einn ís á laugardegi og næsta laugardegi smá súkkulaði) Mæli með því!
Annars er ég farin að boosta, kaupi skyr (ekki með sykri eða aspartam) og ávexti og set í blandarann, banana, peru, jarðaber, bláber… fer eftir hvað ég á í ísskápnum og smá klaka. *slurp* tekur merkilega stuttan tíma, ég var eldsnögg að þessu í morgun.
Þær sem ætla að kaupa árskortið í ISF hjá “mér” þá verður það að vera staðgreitt 25. þús, millifært yfir á reikning. Ég held ég gangi frá því um mánaðamótin bara. Hver er með aftur?




Ég nenni ekki að blogga….. er að læra fyrir próf þessa dagana.
Við Gísli fórum upp í mosó áðan og pabbi pompaði af stól hahaha það var bara snilld, hann var eitthvað að tala:
“blablabla maður á bara að fara útí Bónus og kaupa köku..”
*POOOOMP*
stóllinn bognaði afturábak.
Allir í hláturskast.
Mario og Ragga og co eru á landinu, vorum öll þarna að sötra púrtvín og maula á hnetum.
Mamma kom inn með garðálf og á auganu á honum var KRÖKKT af köngulóarbörnum!!!!! hún otaði þessu 15 cm frá andlitinu á mér!!! og ég vissi ekki hvert ég ætlaði!! helvítis ógeð!!!
Mig fór að klægja í bakið og hausinn eftir að hafa séð þetta. Svo fór mamma út með sykur og gaf þeim að éta!! Ég leit á veggina og kringum húsið að utan og það var ekkert nema köngulær!!
Helga þú heldur að þú hafir vandamál?


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 