31 May 2006 @ 10:17 PM 
 

Myndir

 

Vá ég steingleymdi myndum frá Eurovision kvöldinu og hérna eru þær. (Aftast í Maí-albúminu)

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 31 May 2006 @ 10 17 PM

EmailPermalinkComments (2)
 31 May 2006 @ 9:11 AM 

Halló ég heiti Rebekka og er súkkulaðifíkill.
2 dagar komnir síðan við Gísli fengum okkur eitthvað sætt og þá var það ís, annars 3 dagar síðan ég borðaði súkkulaði. Þetta hefst hægt og rólega.

Jesú er kötturinn hennar Bjargeyjar og hann kom í gær til að vera í pössun í 2 vikur á meðan hún er í Króatíu með mömmu sinni. Hann er hið mesta óargadýr og urrar og hvæsir af hræðslu! Hann er ekki ennþá búinn að hitta Brand eða Litlu mús og er skíthræddur við Gísla! (höldum að það sé útaf því að Gísli er dimmraddaður en Jesú býr hjá 2 kvk) Hann kúrir bara í búrinu sínu og kom ekkert út í allt gærkvöld, í nótt var hann svo lokaður inn í stofu með pissukassa, mat, vatn og dótið sitt. Hann hljóp undir sófa og lét ekki sjá sig í morgun þegar við kíktum á hann. Brandur og Litla mús fá restina af íbúðinni á meðan á aðlögun stendur. Kannski eftir 1-2 daga kynnum við þau og sjáum til.

Annars erum við Gísli, Salóme og Al að fara norður í Skagafjörð í bústað mömmu og pabba næsta laugardag í eina nótt, ætlum að grilla, fara í sund og leika okkur að hrossunum okkar sem vappa þarna í kring.
Í leiðinni ætlum við að koma við á einum sveitabæ þar sem Maine Coon kettlingarnir fást og skoða þá, þar eru 9 kettlingar en þeir verða tilbúnir til afhendingar í byrjun júlí.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 31 May 2006 @ 09 11 AM

EmailPermalinkComments (3)
 29 May 2006 @ 8:24 AM 
 

Leti

 

Vá ég er blogglöt.

Fór í innflutningspartý á laugardaginn til Salóme og Al, þar voru Þóra og Gummi, Aðalheiður, Kristín, Hjödda og við Gísli. (Hvar var Heimir?) Ég gat ómögulega ímyndað mér að drekka og ég efast um að það gerist næstu mánuðina.
Ég var ekki að vinna í H&M Rowells þessa helgina, vinn eflaust ekkert þar í sumar. Fyrsta helgarfríið mitt síðan fyrir 407 helgum (sirka).
Á sunnudag fórum við Kristín að lyfta í Sporthúsinu, það var fínt, nema þetta er svo sjabbí staður. Þá er nú Nautilus betri. Svo fórum við í Salalaug ahhh hressandi.

Þessi mynd fær að fljóta hérna með því þetta er örugglega fallegasta mynd sem ég hef séð á netinu.
kettlingar

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 29 May 2006 @ 08 24 AM

EmailPermalinkComments (5)
 23 May 2006 @ 9:14 AM 

Jesús!! Farið hér til vinstri í kittens og svo pups, hrikalega sætt.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 23 May 2006 @ 09 14 AM

EmailPermalinkComments (3)
 22 May 2006 @ 2:48 PM 

Ég lenti í því að þurfa að rökræða við Fella og Andrés hvers vegna virkjanaæðið er ekki gott og hvers vegna ég er á móti því NEMA ég gat Það ekki sökum ölvunar! bæði Felli og Andrés urðu æstir og vildu virkja og virkja og virkja allt Ísland!
Svo rakst ég á þetta á netinu áðan:

Vissir þú að…
Kárahnjúkastífla er byggð á virku sprungusvæði og hamfarahlaup eru óhjákvæmileg? (úr skýrslu Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings)

Vissir þú að…
Á Reyðarfirði mátti ekki starfrækja litla fiskmjölsverksmiðju að sumarlagi vegna mengunar en þar má byggja 420.000 tonna álver án þess að hafa löglegt umhverfismat?

Vissir þú að…
Meðalstórt álver losar jafn mikið af koltvísýringi (co2) út í andrúmsloftið og allur bílafloti Íslendinga?

Vissir þú að…
ekki er hægt að fíltera CO2 úrgang frá álverum?

Vissir þú að…
Jökulár á Íslandi draga úr gróðurhúsaáhrifum til jafns á við 25% af ám Afríku (Úr skýrslu Landsvirkjunar)

Vissir þú að…
Með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar munu 80% af framleiddri raforku á Íslandi fara í 3 erlend stóriðjufyrirtæki; Alcan, Century Aluminium og Alcoa?

Vissir þú að…
Raforkuloforð stjórnvalda til stóriðju eru 50 Teravatt stundir á ári. Til að standa við þessi raforkuloforð þarf að virkja allar helstu ár Íslands auk þess að nýta flest okkar fegurstu háhitasvæði

Vissir þú að…
Miðhálendi Íslands er í dag, stærsta ósnortna landsvæði í Evrópu?

Vissir þú að…
Kárahnjúkastífla og Hálslón eru stærstu umhverfisspjöll Íslandssögunnar í einni aðgerð af mannavöldum?

Vissir þú að…
Til að endurvinna ál þarf eiungis 5% af þeirri raforku sem þarf til að framleiða nýtt?

Vissir þú að…
Bandaríkjamenn urða 750.000-800.000 tonnum af áldósum á ári sem ekki fara í endurvinnslu?

Vissir þú að…
Hálslón verður 57 km2 að stærð – jafnstórt Reykjavík?

Vissir þú að…
10.000 gæsir verða heimilislausar með tilkomu Hálslóns?

Vissir þú að…
Gróður myglar í uppistöðulónum og upp gufa gróðurhúsalofttegundir?

Vissir þú að…
Steinefni jöluláa bindast kalki í sjónum og mynda efnasamband sem dregur úr gróðurhúsalofttegundum?

Vissir þú að…
Frá jarðvarmavirkjunum rennur Arzenikmengun og ekki er vitað hvort sú mengun sem kemur frá Hellisheiðarvirkjun renni í átt að Gvendarbrunnum?

Vissir þú að eftirfarandii örnefni eru á leið undir höggstokk stóriðjunnar?

Torfajökulssvæðið
Landmannalaugar
Skjálfandafljót
Skaftá
Jökulsár Skagafjarðar
Kerlingafjöll
Brennisteinsfjöll
Krísuvík
Langisjór
Þjórsá
Aldeyjarfoss
Lagarfljót
Þeistareykir
Gjástykki
Töfrafoss
Lindur
Jökla

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 22 May 2006 @ 02 48 PM

EmailPermalinkComments (16)
 22 May 2006 @ 8:40 AM 

Úff, Þvílíkt fyllerí :/
Vaknaði í gær og leið eins og trukkur hefði keyrt yfir mig, er að drepast hægra megin í mjöðminni (sama hlið og ég datt af hestbaki á fyrir nokkrum árum) og með þvílíkan hálsríg. Hvað kom fyrir?? Mig grunar samt að ég hafi sofið á sömu hliðinni í einhverja tíma…
Ómar var góður að keyra mig heim um kl 4 og ég ældi á hringtorgið á Hamraborg og þegar ég kom heim þá reif ég hurðarhúninn af útidyrahurðinni óvart, æj þetta er bilað drasl.
Það eru margir mánuðir síðan ég djammaði síðast og nokkuð ljóst að það verða nokkrir mánuðir þangað til ég djamma næst!

Þetta var fínt partý, Ósk, Salóme, Al, Kristín,Gísli Eiríks, Felli, Andrés, Bjarni Ingvar og Ómar mættu. Við fórum blindfull á trampolínið og allt en svo datt Gísli Eiríks af því og beint á nefið! ááts. Það var ógeðslega kalt í bænum.

Nú má maðurinn minn fara að koma heim úr tónleikaferðalagi, ég sakna hans voða mikið.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 22 May 2006 @ 08 40 AM

EmailPermalinkComments (3)
 20 May 2006 @ 1:19 PM 

lordi

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 20 May 2006 @ 01 19 PM

EmailPermalinkComments (0)
 19 May 2006 @ 1:03 PM 

Jæja…. þá er ég búin að vera 3 daga í nýju vinnunni, það er rosa fínt og gengur vel.
Sylvíu Nótt gekk hins vegar ekki vel svo að við verðum að styðja Lordi (Hard rock haleluja) eða Lettana (we are the winners!! haha) á morgun í partýinu.

Ætlar þú ekki örugglega að koma?

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 19 May 2006 @ 01 03 PM

EmailPermalinkComments (5)
 17 May 2006 @ 9:54 PM 

Það er að koma einhver mynd á þetta herbergi hjá mér, ætlaði að kaupa 2 hillur til að setja fyrir ofan rúmið en þær voru auðvitað ekki til í Ikea svo að það verður að bíða ásamt kommóðunni stóru. Svo set ég myndirnar hennar Emilie í ramma og hengi upp við tækifæri.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 17 May 2006 @ 09 54 PM

EmailPermalinkComments (6)
 16 May 2006 @ 7:51 PM 

Ég ákvað að kaupa handa mér próflokagjöf og keypti tvær litlar kommóður til að hafa sitthvorum megin við rúmið, ætlaði að kaupa stóra fjögurra skúffna kommóðu líka en hún var ekki til í bili.
Var svo 2 klst að böggla þessu saman með hamri og skrúfjárni og ekki hjálpuðu kettirnir heldur stálu öðru skrúfjárninu og ég fann það að lokum inn í stofu! og stálu líka einum naglapokanum og Brandur opnaði hann og fór með inní svefnherbergi og þar fann ég alla naglana á víð og dreif! Þetta er eins og að vera með óþekka krakka!

kommoda

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 16 May 2006 @ 07 51 PM

EmailPermalinkComments (1)
\/ More Options ...
Change Theme...
  • Users » 4
  • Posts/Pages » 712
  • Comments » 2,879
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.