30 Apr 2006 @ 7:42 PM 

Hérna sést hvað Litla Mús er orðin góð í að labba með beislið.

Litla mús

BRandur

Trampolínkettir

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 30 Apr 2006 @ 07 42 PM

EmailPermalinkComments (2)
 29 Apr 2006 @ 10:31 AM 

Úff undirmeðvitundin mín er greinilega að taka námsefnið til prófs inná sig… Ég fékk martröð um mann sem var að pynta mig með hrikalegum hætti en á endanum stakk ég hann í hálsinn að framan með kjöthníf og hringdi á 112, áður hafði ég reynt að drepa hann með glösum (??!!) og skærum en það gekk ekki.

Svo hefur Brandur greinilega heyrt mig emja því að ég vaknaði og þá var Brandur kominn á koddann og var að sleikja á mér ennið og augun.
Awww mann er alveg góður við mamís.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 29 Apr 2006 @ 10 31 AM

EmailPermalinkComments (2)
 28 Apr 2006 @ 5:14 PM 

“Dogs come when they’re called; cats take a message and get back to you later.” – Mary Bly

“Thousands of years ago, cats were worshipped as gods. Cats have never forgotten this.” – Anonymous

“There are two means of refuge from the miseries of life: music and cats.” – Albert Schweitzer

“As every cat owner knows, nobody owns a cat.” – Ellen Perry Berkeley

…… Þetta er orðið meira kattarbloggið……

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 28 Apr 2006 @ 05 14 PM

EmailPermalinkComments (0)
 28 Apr 2006 @ 11:45 AM 

Jæja ég byrjaði formlega að lesa undir próf í gær og fyrsta prófið er á þriðjudag en það er “ofbeldi og vanræksla gagnvart börnum”.
Hrikalegar sögurnar af vanræktum og misþyrmdum börnum í bókinni :( Maður fær alveg sting í hjartað af að lesa þetta.
Ein sagan var um 6 ára strák sem fór til pabba síns þegar foreldrarnir skildu, svo deyr pabbinn af krabbameini og mamma hans fékk hann, nema hvað að hún hafði verið alkóhólisti og eitthvað og þegar lögreglan fann drenginn ári seinna dáinn á heimilinu þá viðurkenndi mamman að hafa grýtt honum í steinvegg og hann lést við það, á barninu voru brunablettir, marblettir ofl. Hún lét hann borða hægðir sínar og “skúraði” gólfið með hausnum á honum.

ÚFF

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 28 Apr 2006 @ 11 45 AM

EmailPermalinkComments (0)
 26 Apr 2006 @ 6:21 PM 

1) An Indoor Cat Is Relatively Safe from Communicable Disease

2) Indoor Cats Do Not Get Hit by Cars

3) Indoor Cats Are Safe From Predators and Dog Packs

4) Indoor Cats Don’t Create Neighbor Problems

5) Indoor Cats Rarely Get Abscesses From Fighting

6) Indoor Cats Are Safe From Human Abuse

7) Indoor Cats Can Get Plenty of Exercise
8) Indoor Cats Are not a Danger to Wildlife

9) Indoor Cats Don’t Get Lost

10) Indoor Cats Are Not Stolen

Meira hér

og hér

og hér

*All cats should be kept indoors, for their own safety, that of wildlife, and to keep peace with the neighbors. The CFA holds this belief. They state inequivacobly that “if you truly love your cat, you will keep it indoors.”, and, “A cat which has never been outdoors will have no desire to go out.”

*The average life of pet indoor cats exceeds that of kitties who are allowed outdoors.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 26 Apr 2006 @ 06 21 PM

EmailPermalinkComments (8)
 25 Apr 2006 @ 6:07 PM 

Gísli keypti þetta áðan

Nú verður kátt í höllinni… Fleiri myndir í albúminu.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 25 Apr 2006 @ 06 07 PM

EmailPermalinkComments (5)
 24 Apr 2006 @ 1:07 PM 

HAHAHA JEIJ!!!!!
Við Gísli erum búin að vera að kynna okkur útikattarbúr/afgirt svæði fyrir ketti á netinu eða eins og það útleggst á ensku “Cat enclosure”. Þetta er alþekkt meðal kattareiganda erlendis að byggja svona leiksvæði fyrir dýrgripina :)

Hérna er dæmi um eitt búr.
Hérna er annað dæmi.

Okkar búr yrði ekki svona stórt, það yrði um 8 rúmmetrar, og við ætlum að hafa það beint fyrir utan svefnherbergisgluggann, kettirnir geta þá labbað beint inn í búrið frá glugganum.
Inní búrinu verða svo hillur og göngustígar, hús, klifrudót og klórur.

Mig langar svo að búrið verði komið upp í Maí en Gísli verður erlendis alveg í 2 vikur þá svo að ég veit ekki hvenær þetta gæti risið upp. Fyrst þurfum við náttúrulega að kaupa efni í þetta, við og net.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 24 Apr 2006 @ 01 07 PM

EmailPermalinkComments (3)
 23 Apr 2006 @ 3:34 PM 

Jamm ég keypti mér kort um daginn og fór í einkaþjálfun, gaurinn útbjó prógram sem ég er að fylgja og er búin að fara þrisvar að lyfta. Lyfti annan hvern dag og reyni að fara annan hvern dag út að hlaupa, á hlaupabretti, skíðatæki eða í sund.
Mér gengur svo illa að hætta að borða súkkulaði, mig langar ekki í súkkulaði allan daginn en á kvöldin er ég eins og villidýr og fæ sterka löngun. Kann einhver ráð við því? Mér dugir ekki að fá mér ávexti í staðinn… æj vonandi kemur þetta! Ég finn amk að ég er orðin sterkari á þrem skiptum !

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 23 Apr 2006 @ 03 34 PM

EmailPermalinkComments (14)
 21 Apr 2006 @ 11:49 PM 

Ég var í apóteki í dag og við kassann sé ég undarlegar teikningar á pakkningu en það er mynd af konu með eitthvað drasl við klofinu á sér og þegar ég fer að lesa hvað þetta er þá hlæ ég upphátt!!! Guð minn góður!!! Þá er þetta svona pappírstrog sem konur geta sett upp að sköpum sér til að míga í standandi!!! bwhahahahaha “for the ultimate hygene” Er til eitthvað hlægilegra!?

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 21 Apr 2006 @ 11 49 PM

EmailPermalinkComments (8)
 19 Apr 2006 @ 2:42 PM 

Á að vera að læra….
En draumurinn er að eiga hús sem er næstum í sveit en samt ekki langt frá Rvk. Tveggja hæða, með stóru útisvæði fyrir hunda, já ég myndi vilja hunda, og kettina náttúrulega og hænur í hænsnagirðingu.
Ég myndi fá mér Pomeranian hund og einhvern stærri hund t.d. Stóra Dan eða Rottweiler, Main Coon náttúrulega, hvítan Norskan skógarkött, náttúrulega Brand og Litlu Mús og íslenskar landnámshænur. *dreym*
Hesta líka? því ekki það! nóg er plássið!
Svo myndi ég flytja inn sundkattartegundina Turkish Van og hafa vatn í garðinum fyrir hann til að synda…. rækta jafnvel svoleiðis þar sem þessi tegund er ekki til á Íslandi!
Birman eru reyndar ekki til á Íslandi heldur og þeir eru rosalega sérstakir í útliti og mjög sjaldgæfir, spurning með að flytja þá inn hmmm…
Í draumnum fá öll dýrin að leika úti á daginn þegar þau vilja.

já þetta eru háleitir draumar… *dæs*

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 19 Apr 2006 @ 02 42 PM

EmailPermalinkComments (5)
\/ More Options ...
Change Theme...
  • Users » 4
  • Posts/Pages » 712
  • Comments » 2,879
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.