31 Mar 2006 @ 4:38 PM 
 

v?

 

Ég mætti í vinnu í dag og þá var brotist inn þar í nótt… allt á rú og stúi og hurð og peningakassar spenntir upp. Þeir tóku all skiptimynt og sölu gærdagsins held ég… amk nokkur tugi þúsunda ef ekki hundruð þúsunda, okkur var ekki sagt hversu mikið.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 31 Mar 2006 @ 04 38 PM

EmailPermalinkComments (0)
 30 Mar 2006 @ 10:14 AM 
 

Leti

 

Já ég veit ég er löt að blogga.
Það er margt búið að gerast á síðustu tveim vikum svo sem en mest er ég búin að vera dugleg að læra upp á Þjóðarbókhlöðu þar sem ég er akkúrat stödd núna.
Í morgun fór ég með Litlu mús á dýraspítalann, hún grét alla leiðina í bílnum. Ófrjósemisaðgerð og sprauta. Ég sagði lækninum frá blóðinu sem ég hef séð í skítnum hennar síðan ég fékk hana og þau ætla að athuga það.
Ragga, Sunna og Rebekka litla eru á leiðinni frá Barcelona til Íslands og lenda kl 13 í dag. Það verður gaman að sjá litlu grísana :)

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 30 Mar 2006 @ 10 14 AM

EmailPermalinkComments (2)
 28 Mar 2006 @ 11:03 AM 

Langaði aðeins að vekja athygli á þessu:

Hver sá, sem verður var við að dýr er sjúkt, lemstrað eða bjargarlaust að öðru leyti, skal veita því umönnun. Skal hann gera lögreglu eða dýralækni viðvart, eins fjótt og unnt er.

Náist ekki til þeirra og ætla má að sjúkdómur eða meiðsl séu banvæn, er heimilt að deyða dýrið, ef það þjáist mjög en tilkynna skal það til lögreglu, strax og færi gefst.

Hver sá, sem hefur grun um að aðstæður eða aðbúnaður dýra sé þannig, að brjóti gegn lögum um dýravernd skal tilkynna það lögreglu, héraðsdýralækni eða Umhverfisstofnun. Einnig getur hann haft samband við búfjáreftirlitsmann hjá sveitarfélaginu eða ráðunaut hjá viðkomandi Búnaðarsambandi.

Ég hef nefninlega misst tvo ketti beint fyrir framan húsið mitt og í báðum tilvikum var ekki látið vita þegar keyrt var á dýrin. Báðir merktir í bak og fyrir.
Þetta er tekið af www.dyraverndarinn.is

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 28 Mar 2006 @ 11 03 AM

EmailPermalinkComments (1)
 22 Mar 2006 @ 1:11 PM 

Við Salóme fórum í smá roadtrip til Sandgerðis í gær og sóttum Litlu Mús :) Ég er búin að hafa þau Brand aðskilin en þau hafa þó hittst smá með tilheyrandi urri, en þetta kemur allt.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 22 Mar 2006 @ 01 11 PM

EmailPermalinkComments (12)
 21 Mar 2006 @ 12:10 PM 

Jæja, við Gísli erum hægt og rólega að jafna okkur á áfallinu. Við söknum Svína alveg óskaplega. Mér finnst ég stundum sjá hann útundan mér….
Okkur var ráðlagt að fá leikfélaga handa Brandi fljótlega áður en hann venst að vera eini kötturinn á heimilinu. Svo að við hófum leit að kettling á svipuðum aldri og Brandur (hann er 7 mánaða) og höfum skoðað á tveimur heimilum. En rakst svo á þessa sætu mús í gær, hún á heima í Sandgerði og við fáum að skoða hana á morgun. Hún er hálf norskur skógarköttur eins og Brandur og það er mikill leikur í henni.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 21 Mar 2006 @ 12 10 PM

EmailPermalinkComments (3)
 17 Mar 2006 @ 9:40 AM 
 

:(

 

Svíni minn er dáinn.
Það var keyrt á hann hérna fyrir utan seint í gærkvöldi og Gísli kom að honum lifandi. Við brunuðum á dýraspítalann og þar svæfði dýralæknirinn hann. Hann var gersamlega í maski að aftan, fætur, mjaðmagrind og mæna kramin :( Hann var svo hræddur í bílnum að hann klóraði mig í andlitið og á læknaborðinu beit hann mig svo fast í puttann að það ætlaði aldrei að hætta að blæða, greyið kisinn minn var svo kvalinn og með óráði.
Ég er alveg frá hérna og get ekki hugsað um annað en að svínabarnið mitt er farið…. merkilegt hvað maður getur elskað lítið kríli mikið.
Hann Brandur veit ekkert hvað er á seyði hérna, hann finnur ekki litla bróður, hann mjálmar og talar við okkur og skimar eftir Svína…..

Brandur fær aldrei aftur að fara út. Hann er inniköttur núna.
svin

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 17 Mar 2006 @ 09 40 AM

EmailPermalinkComments (13)
 15 Mar 2006 @ 4:24 PM 

Jæja ég fór s.s. í dag, sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum í Kópavogi, fór með Helenu og Freyju sem eru memm í Félagsráðgjöf (þær eru búnar að vera sjálfboðaliðar í allan vetur). Í rútu komu krakkarnir sem allir eru í Hjallaskóla og í sömu “deild” sem er bara asnalegt því að þau eru á mismunandi aldri og öll nýbúar En allaveganna..þá var ferðinni heitið í útvarps-og sjónvarpshúsið í Háaleiti. Þar var akkúrat verið að taka upp Stundina okkar og við fengum að kíkja á það, svo sáum við allskonar sviðsmyndir eins og fyrir fréttirnar, formúluþáttinn, Kastljósið ofl og örugglega 20 fréttamenn sem allir voru að missa sig yfir Baugsmálinu sem var akkúrat í fréttum. Þetta var allt voðalega gaman og krakkarnir virtust hafa gaman af, ein stelpan fékk að ýta á takka hjá útvarpsmanni sem er með þátt frá 14-16 á rás2 þá fóru í gang auglýsingar og svo aftur ýtti hún á takka og þá byrjaði lag :) Þetta eru sirka 10-15 krakkar á aldrinum 6-15 ára frá hinum ýmsu heimshornum og mér sýndist flestir tala íslensku. Það voru frekar margir sjálfboðaliðar en ég vona að það sé pláss fyrir mig komandi miðvikudaga.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 15 Mar 2006 @ 04 24 PM

EmailPermalinkComments (4)
 15 Mar 2006 @ 11:06 AM 

YESSS !! Motörhead spila á Íslandi í sumar og HAM hita upp!! líklega 30. júní :D

ps: Subway, Culiacan, Serrano, Quiznos og Booztbar eru ekki skyndibitar.

CRAZY CAT LADY
Insane Cat Lady: Yes, you are insane but your cats

are probably happier than any other cats on

the planet! Maybe you should try interacting

with some HUMANS once in awhile…

What kind of Cat Parent are you?
brought to you by Quizilla

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 15 Mar 2006 @ 11 06 AM

EmailPermalinkComments (2)
 14 Mar 2006 @ 5:56 PM 

Jæja gott fólk þá er komið að átaki! Ég vil losna við 10 kg takk fyrir!

Ég ætla að fara lágmark 3 sinnum í viku í leikfimi
Ég ætla ekki að borða nammi (nema eitt nammi á nammidegi)
Ég ætla ekki að borða skyndibita (nema einu sinni á nammidegi)
Ég ætla ekki að drekka gos
Ég ætla að takmarka sykur- og fituinnihald þess sem ég borða
Ég ætla að borða á þriggja tíma fresti
Ég ætla að drekka 1-2 ltr af vatni á dag
Ég ætla að borða mikið grænmeti

En til þess að ég standi við þetta næstu 3 mánuði þarf ég þinn vitnisburð (þú skrifar nafnið þitt í athugasemdir hér að neðan) svo plííís ef þú lest þetta hver sem þú ert, kvittaðu endilega í athugasemdir, þannig stuðlaru að grennri og heilsusamlegri Rebekku!

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 14 Mar 2006 @ 05 56 PM

EmailPermalinkComments (12)
 14 Mar 2006 @ 12:15 PM 

Ég ætla að vera sjálfboðaliði á morgun og eins marga miðvikudaga og ég get :) En ég mun vera með nýbúabörnum frá 5-15 ára og gera eitthvað skemmtilegt með þeim :) segi meira frá þegar ég veit meira.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 14 Mar 2006 @ 12 15 PM

EmailPermalinkComments (1)
\/ More Options ...
Change Theme...
  • Users » 4
  • Posts/Pages » 712
  • Comments » 2,879
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.