



æjæjæj ég fór með svínarassana mína til dýralæknis í morgun og sótti þá áðan. Þeir voru bólusettir, eyrnamerktir og geltir. Þeir eru svo vankaðir núna og geta ekki hoppað upp á rúm og stóla, liggja bara einhvern veginn á gólfinu. Ég vorkenni þeim svo mikið að ég tipla á tánnum hérna heima til að þeim bregði ekki.




Ef þú verður vitni af að foreldri reyki í kringum barnið sitt t.d. í sama herbergi eða í bíl þá á að tilkynna það til Barnaverndastofu.
Þetta lærði ég í dag.




Ég heyrði kjaftasögu um daginn um að ACDC væri að spá í að koma til landsins þegar þeir tour-a eftir næstu plötu og ef þeir koma þá ætla ég að mæta! Vonandi taka þeir gamla stöffið.




Við vorum að vakna eftir partýstand gærkvöldsins og Gísli fer á klósettið, svo rekur hann upp öskur og ég rýk fram, þá hafði Gísli opnað klósettið og litið eitthvað frá í augnablik og akkúrat þá stekkur Svíni ofan í klósettið! haha hann hefur haldið að það væri lokað. Gusugangurinn og slettur um öll gólf. Sem betur fer var Gísli ekki búinn að pissa í klósettið. Svíni fékk samt bað hjá mér eftir á.




Ég er búin að vera í svo miklu stuði í dag, labbaði uppá strætóstöð með Ipodinn minn og með Tenacious D og ACDC til skiptis í botni.
Það eina sem vantaði var bleikur Citroen, landabrúsar, Helga undir stýri og Katla í aftursætið ![]()
Ég var í það miklu stuði að ef einhver hefði boðið mér á djammið þá hefði ég slegið til og farið á fimmtudagsdjamm! þá sjaldan maður lyftir sér upp.
Ég ákvað að halda partý á laugardaginn og ef þú ert vinur minn þá ertu velkomin/n í partý
Þetta salat gerði ég svo áðan *kráááámmmm* 




Ég byrjaði að hlusta á þá fyrir 5-6 árum og elskaði þá strax, Jack Black er svo ógeðslega fyndinn og snilldar rokkari. Var að hlusta á diskinn áðan í nýja podinum og ég er búin að vera hlæjandi og syngjandi með alla leiðina heim úr Háskólanum, hélt svo áfram að syngja og hækkaði aðeins í mér þegar ég kom heim og kettirnir eru ekkert að skilja hvað mamís er að gera hehe.
Fyrir þá sem ekki þekkja Tenacious D þá mæli ég með að þið sækið diskinn og hlustið!
Hérna er svo smá dæmi af texta:
Kielbasa
I love ya baby but all I can think about is
Kielbasa sausage, your butt cheeks is warm.
I check my dipstick, you need lubrication honey,
My kielbasa sausage has just got to perform.
Now get it on!




Ofbeldi og vanræksla í fjölskyldum er áfangi sem lítur út fyrir að vera skemmtilegur. Var að koma úr fyrsta tímanum, reyndar er 100% próf í vor sem er ömurlegt.
Gísli er allur út í flóabitum og ofnæmisviðbrögðin eru þvílík hjá honum, það myndast risa kýli á stærð við miðlungs tyggjókúlu og massívur kláði, við verðum að kaupa eitthvað flóafælandi á kettina. Fyndið að sjá hann sofa í náttfötum, en hann heldur að það hjálpi svo hann fái ekki fleiri bit.
Sit hérna inní þjóðarbókhlöðu í eyðu og áðan hitti ég Óla úr mosó (Óla Hilmars) en þann mann hef ég ekki séð í 10 ár! Hann er víst oft að læra með Bjarna Ingvari og ég held ég joini þeim bara í lestur í vetur




Jeij Gísli gaf mér ipod til að lina þjáningar mínar þegar ég ferðast í strætó. Er að setja það besta úr metalsafninu í hann núna.
Annars var fyrsti skóladagur í dag, smá stress svona fyrsta daginn, mikið að lesa, kaupa dýrar bækur, kaupa rauðakortið, skipuleggja sig ofl.




Halló, ég heiti Rebekka og ég er fíkill!!
Keypti mér svona bók í gær og ég gat ekki lagt hana frá mér!
Annars er ég komin heim í skaflana. Það voru eilífar seinkanir vegna veðurs í gær svo að ég var ekki komin heim fyrr en kl 1:30, með hálsríg og fínerí eftir að hafa kuðlast í flugvélum.


More Options ...
Categories
Tag Cloud
Blog RSS
Comments RSS

Void « Default
Life
Earth
Wind
Water
Fire
Light 