30 Dec 2005 @ 4:37 PM 

Þessi brandari er bestur

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 30 Dec 2005 @ 04 37 PM

EmailPermalinkComments (4)
 28 Dec 2005 @ 8:15 PM 
 

v?…

 

vá hvað er í gangi… ég setti upp myndaalbúm í gær og núna er búið að skoða það 53 sinnum ! Ég veit að Iðunn, Helga og Ragga kíktu en guð minn góður… hvaða fólk er að skoða ?
Hver ert þú?

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 28 Dec 2005 @ 08 15 PM

EmailPermalinkComments (14)
 27 Dec 2005 @ 8:42 PM 

* Ég ætla að fá hjólið hennar Sylvíu að láni það sem af er vetri og hjóla á því í Sporthúsið lágmark 3-4 sinnum í vetur, ég ætla að kaupa mér átaksnámskeið og vera geðveikt dugleg.

* Einnig ætla ég að lesa námsefnið jafnt og þétt en ekki bara rétt fyrir próf eins og ég gerði á þessari önn.

ps: setti nokkrar nýjar myndir í albúmið

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 27 Dec 2005 @ 08 42 PM

EmailPermalinkComments (1)
 25 Dec 2005 @ 10:08 PM 
 

J?l

 

Aðfangadagur: vaknað kl 9, vinna kl 10- 13. Pakkaskutl með Gísla og systkinum út um allan bæ. Mosó jólamatur og pakkar. Heim.

Jóladagur: vaknað eftir 13 tíma svefn. Harry Potter. Göngutúr. Jólaboð hjá afa og ömmu Gísla. Heim að horfa á video. Sofa.

Annar í Jólum: frá kl 12 er Lord of The Rings extended version maraþon ! Eitthvað lið mætir.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 25 Dec 2005 @ 10 08 PM

EmailPermalinkComments (0)
 24 Dec 2005 @ 8:42 AM 

Gleðileg jól kæru lesendur :*

Ragga: þú ert svo klár í photoshop, geturðu lagað bannerinn minn ? (sjá færslu fyrir neðan) eða Siggi eða Ómar? help?

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 24 Dec 2005 @ 08 42 AM

EmailPermalinkComments (9)
 23 Dec 2005 @ 2:59 PM 

Jólafrí en samt ekki… var að vinna í gær, í dag og á morgun. En það var aldeilis hressandi að vinna í gær samt, fékk jólagjöf: 2ja hæða konfektkassa og 5000 kr. ekki slæm gjöf. Svo komu svo margir sem ég þekki í vinnuna; Sylvía, Katla, Kristján og svo kom Gísli að sækja mig. Svo í kvöld ætla Helga, Kristín og Iðunn kannski að koma jeij.
Á morgun er það svo svín og brúnaðar með waldorfsalati hjá aldurhnignum foreldrum mínum *krááámmm*

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 23 Dec 2005 @ 02 59 PM

EmailPermalinkComments (3)
 22 Dec 2005 @ 2:59 PM 

Amerískar súkkulaðibitakökur II

1,25 bolli hveiti
1 tesk. matarsódi
1/2 tesk. salt
1/2 tesk. kanill
1 bolli smjör
3/4 bolli sykur
3/4 bolli púðursykur
2 egg
1 tesk. vanilludropar
3 bollar haframjöl
340 g. brytjað súkkulaði, best að nota gott ekta súkkulaði

Smjör, sykur, púðursykur, egg og vanilludropar er þeytt saman og þurrefnunum (nema haframjöli) bætt smám saman úti. Að lokum er haframjöli og súkkulaði blandað útí degið. Sett með teskeið á bökunarplötu (með pappír) þarf að hafa gott bil á milli því þær renna út. Bakað við 200 gráður í 8 mín, alls ekki lengur! þær eiga að vera mjúkar!

Ég mæli með þessari uppskrift, ég er búin að baka 5 sortir af smákökum og þessi er lang lang best… ég nota reyndar 200 gr súkkulaði en ekki 340 gr, Það er feikinóg.

Gísli says:
þú mátt baka meira af þessum smákökum sem þú bakaðir í gær, þær eru fáránlega góðar

Gísli says:
þetta eru grínlaust með allra bestu smákökum sem ég hef smakkað

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 22 Dec 2005 @ 02 59 PM

EmailPermalinkComments (3)
 22 Dec 2005 @ 12:26 PM 

JESSS!! við Gísli bættum við einni nóttu við ferðalagið okkar í Janúar. Förum út 5. jan í staðinn fyrir 6. jan og gistum 2 nætur í Brussel. Þaðan förum við svo til Barcelona.

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 22 Dec 2005 @ 12 26 PM

EmailPermalinkComments (6)
 21 Dec 2005 @ 7:19 PM 

Þetta eru kúkasvínin mín, Iðunn kom um daginn og tók þessa sætu mynd af þeim.

kukasvin

Og mikið andskoti er ég góður bakari!! sjæsse! er að hakka í mig mjúkum, heitum súkkulaðibitakökum *HRÁMMMM KRÁMMM*

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 21 Dec 2005 @ 07 19 PM

EmailPermalinkComments (9)
 21 Dec 2005 @ 10:59 AM 

JESS !! síðasta prófið búið! sálfræðipróf og mér gekk vel, sem ég lærði ekki einu sinni fyrir, ég nebblega var búin að læra þetta allt saman í Borgó SÁL103, 203 og 303. Næst er skóli 17. janúar 2006 !!!! AHHHHHHHHHH

Tags Categories: Daglegt raus Posted By: Rebekka
Last Edit: 21 Dec 2005 @ 10 59 AM

EmailPermalinkComments (1)
\/ More Options ...
Change Theme...
  • Users » 4
  • Posts/Pages » 712
  • Comments » 2,879
Change Theme...
  • VoidVoid « Default
  • LifeLife
  • EarthEarth
  • WindWind
  • WaterWater
  • FireFire
  • LightLight

Um mig



    No Child Pages.