Ok, here goes :)
Er kannski kominn tími á nýja færslu?
Seinasta færsla takk fyrir takk skrifuð á seinasta ári!!!
Hérna kemur öppdeit:
*Ég tók mig til í Janúar og lét klippa mig, þannig að núna í staðinn fyrir að vera endalaust að festa hárið á mér í beltinu mínu, þá nær það niður á öxlum. Voða lekker, ég er alveg hæstánægð með þetta og viðtökur hafa verið góðar
*Öll mánudags-föstudagskvöld frá 18-22 síðan 5 Janúar hef ég setið niðri í leikhúsi á æfingum fyrir “Stones in his pocket” (Íslensk þýðing: “Með fulla vasa af grjóti”). Ég er aðstoðarleikstjóri og hljóðhönnuður, og það sem ég hef aðallega lært á þessum tíma er að ég er leikkona!!! Ég er ekki þessi týpíska “ábakviðtjöldin” manneskja, ég vil vera í sviðsljósinu, og stundum langar mig svo að stökkva upp á svið á miðjum æfingum og sýna þeim hvernig á að gera þetta haha. Ég er samt sem áður fegin að hafa ekki fengið hlutverk þar sem þetta er hálfpartinn einleikur, og leikararnir þurfa að læra utanað sirka heilt handrit! En þetta er geggjað flott leikrit, frumsýning á fösudaginn og ég er svo stolt að vera partur af þessu!!
*Átakið mitt gengur frábærlega, er búin að ná af mér 18 kílóum, bara tvö eftir og þá er ég sátt
Og þið sem hugsið: “vó, ætlar hún að missa 20 kíló, verður eitthvað eftir??”, ykkur vil ég minna á að það var orðið af NÓGU AÐ TAKA!! En nú er ég orðin mjög sátt við sjálfa mig, og ætla að halda mér svona- Bikini season verður mjög ánægjulegt þetta árið
Ég mun þruma inn fyrir og eftir mynd fljótlega
*Ég á ammæli á laugardaginn. 29 ára ung, spáið í það!!!! Af hverju líður mér ekki eins og ég sé 29 ára?? Mér líður eins og ég sé ekki degi eldri en 21……
*Við hérna í 3553B höfum verið í óðaönn að taka við herbergispöntunum. 12 Mars koma tengdó í heimsókn og verða hjá okkur í 10 daga (held ég…) og 22 Júní koma Sibbi og Bára í heimsókn til okkar- ég get ekki beðið. Svo hefur Margrét systir boðað komu sína í Júlí… Þar sem mágur minn er sjómaður, þá geta þau ekki strax nelgt niður dagsetning, en hafa LOFAÐ mér að þau komi í júlí- og sú hugsun er gjörsamlega það sem heldur mér gangandi núna!!!!!
*Áheyrnarprufur á mánudaginn fyrir leikrit sem heitir “Mother courage and her children”. Ég ÆTLA að fá hlutverk í þessu leikriti takk *heyriru það, þú þarna uppi!!!*. Æfingar fyrir það verða ekki jafn hektískar og fyrir “Stones”, miklu fleiri hlutverk, og maður þarf ekki að mæta á allar æfingar.
*Örugglega mikið meira að frétta síðan ég bloggaði síðast, en ég man ekki eftir fleiru í bili
Lofa að blogga með styttra millibili héðan í frá
Hrafnhildur- Bloggari ársins
4 comments so far
Leave a reply