Mamma Mía!!!
Var að enda við að horfa á Mamma Mia og afleiðingarnar voru katastrófískar!!!!
Sat ein í sófanum alla myndina með bros sem lýsti skærar en jólaseríurnar í kringum mig… Alveg þangað til seinasta lagið í myndinni kom…. Alveg í endann syngja þær stöllur Waterloo með miklum tilþrifum og var það nóg til að skrúfa frá krananum. Málið er að Waterloo minnir mig alltaf á mömmu, af því að þegar ég var lítil hélt hún svo mikið upp á það… Allavega, um leið og fyrstu tónarnir skullu á hljóðhimnuna (í eintölu muniði) þá hrúgaðist í einni gusu fram í dagsljósið allur söknuðurinn eftir elsku fallegu mömmu minni, fallegustu systurinni minni í heiminum og besta pabbanum sem nokkur getur beðið um. Blandað saman í þessa romsu var svo nístandi jólasöknuður eftir elsku elsku guðdætrum mínum og pabba þeirra…. Ég rauk inn í herbergi, í fangið á eiginmanninum sem átti á einskins ills von og grét svo sárt og kraftmikið að ég fékk blóðnasir í bolinn hans.. Ég er ekki að grínast, ég fékk í alvöru blóðnasir!!! Ég held að kauði hafi nú samt verið búinn að bíða eftir þessu kasti mínu í nokkra daga núna….
En Mamma Mia er dásamleg mynd- DÁSAMLEG!!! Meril Streep er stórkostleg í henni og manni langar endalust að syngja með. Þessi mynd er sko þokkalega nýja uppáhaldsmyndin mín, ásamt Across the Universe! Það er samt eitt atriði í henni sem er svo algjörlega óvart fyndið að það drap mig næstum úr hlátri. Það er þegar Meril Streep og Pierce Brosnan eru að tala saman og öllum að óvörum brestur á með söng hjá Pierce, og það ekki af lakari endanum! Það er eiginlega ekki hægt að útskýra þetta atriði, þannig að ég gróf upp klippu á youtube. Takið eftir að þarna er Meril búin að tala í kannsi hálfa mínútu, og plís sjáið hvað það er fyndið þegar Dobbúló seven byrjar að syngja- það er alveg á fyrstu sekúndunum bara:
Annars eru jólin að bresta á með látum, öllum að óvörum, bara alveg hreint á morgun sko (tæknilega séð, það er yfir miðnætti 22 des hérna núna). Seinasta vika hefur liðið hjá í þoku bara, þannig að það kom algerlega aftan að mér þegar ég fattaði það fyrr í kvöld að Þorláksmessa er handan við hornið. Einkunnirnar fyrir haustið komnar í hús líka, fékk A fyrir golf, leiklist og sögu, og B fyrir ensku og Spænsku… B reyndar ekki alveg ásættanlegt eins og fyrri daginn, verð að reyna að koma sjálfri mér betur í skilning um að B er sirka 8.5 og að það sé bara fínt!
Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, reyni að blogga aftur annað kvöld (þorláksmessukvöld.. Því það er nú einusinni hátíð út af fyrir sig
Ást og nístandi söknuður til ykkar heima á klaka!!!!
Hrafnhildur- Pínkuponsulítil í sér núna!!!
7 comments so far
Leave a reply