Frumsýning
Frumsýningin gekk eins og í sögu.
Í allann gærdag var ég með mjög þægileg fiðrildi í maganum og vissi eiginlega ekki hvernig ég ætti að höndla þau. Hringdi í mömmu og hún sagði að það boðaði gott sem það greinilega gerði… Þoli ekki hvað mannekskjan hefur alltaf rétt fyrir sér
Þegar ég sat baksviðs og var að bíða eftir að fara inn á sviðið beið ég í óþreyju eftir rosastressinu…. Beið og beið og beið. Svo kom mitt kjú- og ekkert stress! Ég sigldi inn á sviðið, laus við allar taugar og skilaði Ethel af mér- Ekkert stress. Kom út af sviðinu, beið í 5 mínutur…. OG ÞÁ KOM STRESSIÐ!! Ég titraði svoleiðis frá hvirfli til ylja og naut þess að finna adrenalínið þjóta um æðarnar á mér. Þetta var æðislegt!! Sama gerðist fyrir mig í stóra áheyrnarprófinu sem ég fór í um daginn… Ég verð að viðurkenna, að þetta er heldur betur góður eiginleiki, þarf semsagt ekki að hafa áhyggjur af stressi fyrr en eftir að allt er yfirstaðið.
Eiginmaðurinn skemmti sér konunglega í leikhúsi, og aðspurður sagðist hann jafnvel hafa áhuga á að sjá leikritið aftur. Sem þýðir að leikritið er GOTT!! Enda er þetta líka leikrit sem hefur unnið Pulitzer verðlaun, þannig að það ætti að vera gott!!!
Eftir sýninguna var smá veisla með áhorfendum og leikurum, og þó svo að hlutverkið mitt sé með því minna í sýningunni, leið mér eins og ég væri stjarnan!!! Þetta var algjörlega mín stund!!! Ég ELSKA lífið mitt!!! Eftir veisluna fórum við heim, og eiginmaðurinn, þessi yndislegi maður sem ég elska svooooo mikið að stundum finnst mér eins og hjartað á mér sé að springa, hafði bara upp á sitt einsdæmi ákveðið að kaupa blómvönd sem beið mín á eldhúsborðinu þegar ég kom heim. Hann á ekki að kunna svona lagað
Hann hefur aldrei verið giftur leikkonu áður, og á ekki að hafa hugmynd um að auðvitað langar manni í blóm eftir frumsýningu
Samt vissi hann það!!! Bogga og Svenni- ÞIÐ STÓÐUÐ YKKUR VEL Í UPPELDINU
Ohhh það er svo gott að vera til
Hrafnhildur- Ennþá í smá vímu bara, svei mér þá!
12 comments so far
Leave a reply