Archive for October, 2008
Happy Halloween!!!
Þessi orð biðu mín á 3 skilaboðum á símanum mínum í morgun þegar ég vaknaði. Bandaríkjamenn greinilega að missa sig í gleðinni hérna. Í kvöld verður leikæfing, og höfum við í öll ákveðið að mæta í búningum á hana. Ég og Kleópatra höfum skilið að skiptum og í staðinn verð ég German milkmaid. Elegant og flott
En að aðalatriðinu. Í enda Júlí ákvað ég að fara í megrun, komin með ógeð á bandarísku fitunni sem var farin að flapsa í allar áttir út frá mér. Sagði ykkur frá því að 31 október yrði frumsýning á fyrir og eftir myndum. Mér hefur gengið bara nokkuð vel í þessari megrun, hef náð af mér 12 kílóum og er bara sátt. Hefði reyndar getað náð meiru af mér þar sem ég hef ekki verið neitt sérstaklega dugleg í ræktinni seinustu 3 vikur þar sem ég er búin að vera alveg einstaklega upptekin. Allavega….. Þó ég sé að drepast úr stressi yfir því að setja þessar myndir hérna inn, þá lofaði ég því og ætla að standa við það, þannig að verið blíð við mig
Hérna koma myndirnar

