Archive for August, 2008
Ameríka
Já, það er augljóst að ég bý í Ameríku.
Fór inn í uppáhaldsbúðina mína í byrjun Ágúst… Hvað haldiði að ég hafi séð í þessari fínu uppstillingu? Þeir sem giskuðu á útrunna laxerolíu höfðu rangt fyrir sér…. Í einu horninu var semsagt komin upp þessi fína jólaútstilling!!! Jóla!!! Í byrjun ágúst!!! Fór í fleiri búðir, og sjá… Í sambland við hrekkjavökugrasker og nornir á kústum mátti finna mistilteina, jólasveina og glitrandi dútl!!! Aftur, Jóla… í byrjun ágúst!!!! Ég hef ekki þorað inn í búðir síðan… Ég meina, ég er yfirleitt komin í jólaskap um miðjann september og farin að hlusta á jólalög um miðjann október… en það er bara ég, ég er líka kolmígandigeðveik!! En greinilega ekki nálægt því jafn geðveik og Ameríka!!!
Tveir dagar eftir af fríi og svo aftur í skólageðveikina! Tíminn er alltof fljótur að líða hérna… Leiklistarkennarinn minn gaf mér heimaverkefni áður en önnin byrjaði, á að lesa 4 bækur áður en ég byrja í tímanum… Er byrjuð á fyrstu… Þarf að henda mér í hraðlestur næstu 2 daga…
Horfði á einhverja svona systraástarmynd um daginn, ein heima uppi í rúmi. Systurnar voru voða elskulegar við hvor aðra. Saknaði allt í einu Margrétar systur svo svakalega að ég grét með ekkasogum í korter!!! Alein heima, hágrenjandi… Mig vantar systur mína!!!
Hrafnhildur- Talar frá Alabama