Archive for May, 2008
Alltaf fjör í Alabama
Í nótt var reynt að brjótast inn hjá henni Arndísi minni!!!! Frekjan alltaf!!!! (Mamma: slappensí áfen, þau búa í útjaðri íbúðaklasans, við inni í miðjunni, það kemst enginn inn í miðjuna til að brjótast inn… Þau flytja hingað í húsið við hliðina á okkur eftir 2 vikur). Kl 1 í nótt fékk ég ss símtal frá henni Dísu minni, og ég sverða að hún titraði svo mikið að síminn mitt nötraði þegar hún talaði. Ég út í bíl með það sama, vopnuð stönn-gönninu og bjór þar sem mér datt í hug að þetta tvennt væri það sem hún þarfnaðist aðallega á þessari mínútu. Hún vafði sig utan um stönn-gönnið og stútaði 2 bjórum á 5 mínútum. Seinna, eftir að ameríski löggimann hafði komið og yfirfarið aðstæður dró ég hana með mér inn í hjarta íbúðarklasans og lét hana sofa úr sér hræðsluna. Við erum að fatta það smám saman að við erum víst ekki á Íslandi lengur…..
Annars erum við búin að kynnast óttalega næs fólki sem býr hérna í oft áðurnefndum íbúðarklasa. Hjón sem eru allt það sem Albemskur redneck stendur fyrir. Seinustu vikur eru þau búin að vera að kynna fyrir okkur hvað það þýðir að vera redneck. Fórum í veiðiferð á laugardaginn að tjörn hérna rétt utan við bæinn. Það eina sem ég veiddi voru allnokkrir bjórar upp úr kæliboxinu….. Afli sem eiginmaðurinn yrði mjög stoltur af… Svo í gær var memorial day, og þau drógu mig upp í annann bæ hérna rétt hjá til frænda hans og haldiði ekki að þau hafi keyrt mig inn í þennann fína trailer park. Reyndar fattaði ég ekki að þetta var trailer park fyrr en ég sá skilti á veröndinni sem stóð á “fuck with me, you fuck with the whole trailer park”, þar sem þetta leit engann veginn út fyrir að vera hjólhýsi, heldur bara ágætis hús. Þau tóku ótrúlega vel á móti mér, gáfu mér grillaðann svínsrassvöðva sem ég verð að viðurkenna að er besta….. allrabesta svínakjöt sem ég hef á ævinni sett inn fyrir mínar sólbrunnu varir. Með þessu gerðu þau ekta púðurssykurs-beikon bakaðar baunir og svo grilluðu þau maís. Þetta var DE-LISS-Í-USSS!!!!
Í sumar ætla þau svo að taka okkur fantastic 4 með sér í útilegu og kajakferðir og nefndu það…. Þetta verður skemmtilegt sumar!!!
Hrafnhildur- í lamandi hita