Archive for April, 2008
Aumingja Paula
American Idol í gær…..
Fyrir mér er American Idol trúarbrögð. Ég ELSKA þessa þætti. Svo bíð ég alltaf eftir því að Paula Abdul fokki einhverju upp, bílslysið sem hún er greyið. Sá draumur minn varð að veruleika í þættinum í gær. Þátturinn var frekar pakkaður, 5 keppendur að syngja 2 lög hvert á einum klukkutíma og hafa tíma fyrir fimmhundruðþúsund auglýsingahlé gerði það að verkum að dómararnir fengu ekki að dæma hvern og einn í fyrri umferð, bara svona yfirferð á alla í einu eftir umferðina…. Það var þá sem það gerðist!!! Við sjáum (video)myndi:
Greyið…. Ég tók fyrir munninn og muldraði óneióneióneiónei… Mér leið eins og þegar ég sá myndbandið af fréttaviðtalinu við hana hérna í den… Mig langaði eiginlega bara að slökkva á sjónvarpinu….. Maður getur ekki annað en vorkennt henni…
Ástæða bloggleysi seinustu daga: Hausinn á mér er búinn að vera veggfóðraður ofan í bækur, til að klára skrímsli það er ritgerðin mín var!!! En hún er kláruð, skiluð og léttrinn er engu líkur. Áttaði mig samt á því að ég hefði eiginlega átt að skrifa ritgerð um Auschwitz út frá sjónarmiði Nasista, það hefði verið meira inni á áhugasviði nornarinnar sem er að kenna mér…. En hey, þetta er búið!!!!
Næst á dagskrá: LOKAPRÓF!!!
En hey!!! Manni getur nú sárnað þó maður gráti ekki!!! Enginn búinn að boða komu sína til okkar svo langt sem augað eygir!!!! Og Margrét (Já syss, ég er að tala við þig!!!): Hvar er kassinn góði með harðfisknum og íslenska namminu sem þú ætlaðir að senda mér strax eftir páska? Nammið er reyndar eitthvað sem ég get lifað án, en guð minn góður hvað ég er í miklum harðfiskfráhvörfum!
Elsk, sakn, knús og kiss til ykkar allra!!!
Hrafnhildur- Á haus í prófalestri