Archive for March, 2008

31
Mar

Viðbjóður!!!

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Í kvöld rættist mín allra versta martröð!!!

Þarna rölti ég mér semsagt í mesta sakleysi út á verönd, þegar hjartað í mér stoppar, stekkur út úr líkamanum á mér og argar á mig að hlaupa til að bjarga lífi mínu!!! Ég hlustaði ekki… Ég var alveg frosin, og í þessu frosti mínu horfði ég inn í glyrnurnar á viðbjóðskönguló!!!! Minningin vill halda því fram að hún hafi verið allavega fermeter á stærð, þó að hún hafi nú örugglega ekki verið stærri en svona 2 sentimetrar, ef það… En þarna sat hún í makindum sínum á MÍNUM vegg, og lét eins og hún ætti allt!!!

Ótrúlegt en satt, þá steig ég einu skrefi nær (veit ekki hvað í hinni risastóru veröld fékk mig til að gera það!!!). Þá sá ég að hún var ekki bara svört, hún var skrautleg, með sína eigin fatalínu, þarna til að prómóta nýja ilmvatnið sitt og veifaði stolt framan í mig óskarsverðlaunastyttunni sinni!!! (Allavega sé ég þetta svona í hausnum á mér núna…)

Kristján greyið vissi ekkert hvað á sig stóð veðrið, enda löngu sofnaður ræfillinn, þegar konan hans kemur í loftköstum inn í svefnherbergið og rífur hann upp á rassgatinu. Án þess að geta komið út úr sér samhangandi setningu brasar hún orðunum “litrík”, “of stór” og “eitur á borðinu” á milli móðursýkislegrar samfléttu af “helvítis suðurríki” og “Alabama á eftir að fá að sjá eftir þessu!!!”….  Honum stóð nú heldur betur ekki á sama þegar hann sá ástandið sem eiginkonan var í, rauk fram úr og bjóst við að þurfa að kljást við feitlagna svertingjakonu með attítúd, íklædda röndóttum gammósíum, þó að hann skildi reyndar ekki hvar eitrið passaði inn í myndina….

Allavega, ég læðist út á eftir Kristjáni til þess eins að sjá manninn sem ég elska í blóðugum bardaga við djöfuls köngulóna (lesist: Hann spreyjaði skordýraeitri á kvikindið þangað til hún limpaðist niður og trampaði svo á henni þangað til ekkert var eftir….). Þegar orustunni var lokið stökk ég upp um hálsinn á honum og þakkaði honum fyrir að bjarga mér frá ævilangri fangavist hjá viðbjóðskvikindi á powertrippi, sem myndi örugglega láta mig ganga daglega í gullbikiníi, svipuðu og princess leia þurfti að vera í….. Kristján sagði mér að kæla mig á dramanu, þetta var ponsulítil könguló, þó að hann viðurkenndi reyndar fúslega að bikiníið væri ekki svo vitlaus hugmynd…

Og allt þetta þurfti að gerast akkúrat þegar friðarviðræður milli mín og hrossaflugufaraldursins ótrúlega sem er hérna voru á lokastigi (hrossaflugur eru náttúrulega ekkert annað en ótíndar köngulær með vængi, og heita því krúttlega nafni daddy long legs hérna…. heimsku kanar!!!). Ég var alveg við það að hætta að taka eftir þeim, enda eru þær bókstaflega allasstaðar, og ferðast aldrei einar takk fyrir! Nú þarf ég að byrja það aðlögunarferli algjörlega aftur, enda hefur þessi reynsla mín í kvöld kennt mér að ALDREI AÐ TREYSTA EINHVERJU SEM ER MEÐ FLEIRI EN 4 FÆTUR!!!!

Hrafnhildur- Dramadrottning af illri nauðsyn!

26
Mar

Sólbað inc

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

25
Mar

Fólkið í ameríkunni

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

19
Mar

As you wish!

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

15
Mar

Nýtt útlit

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

13
Mar

Bloggið

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

11
Mar

Skóli skóli skóli

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus