Archive for February, 2008
Fullt af ást
Vil byrja á þakka fyrir allar hamingjuóskirnar, guð hvað er gott að fá svona ást á internetinu

Ammlisgleðin var vægast sagt skemmtileg. Ég valdi staðsetninguna, og hvaða staður er betri til að halda upp á ammlið sitt en Hooters!!! Eiginmaðurinn var EKKI ósáttur, og mætti ammlissbarnið um níuleytið í fríðu föruneyti. Að sjálfsögðu var byrjað á að tilkynna að innanborðs væri afmælisbarn, og ég var frekar forvitin að vita hvað væri í vændum… Og enginn veit fyrr en allt í einu, þegar læti byrjuðu lengst fram í sal, og þyrptust að mér léttklæddar hootersgellurnar argandi og hlæjandi. Ég var dregin upp á stól, rétt salt og piparstaukar, og fyrirskipað að “shake it like a saltshaker” (þið vitið, taka negradansinn á þetta….) á meðan gellurnar illa klæddu sungu einhvern afmælissöng og slógu í borð og stóla… Við sjáum mynd:

Þar sem ég hef alltaf verið svolítill athyglisdjönkí, fannst mér þetta ekki leiðinlegt og hristi það sem móðir mín skaffaði (eða reyndar í mínu tilfelli Knútur lýtalæknir….) og flissaði eins og lítil skólastelpa…. Þó svo að maturinn á Hooters sé nú ekki sá allra besti, þá fannst mér samt voða gaman að koma þangað. Hootersstelpurnar hérna í Alabama eru samt án efa Hootersstelpur fátæka mannsins, á meðan þær í td LA eru væntanlega meira fyrir augað… Samt ekkert nema gaman að upplifa þetta
Á heimleiðinni kíktum við aðeins á La Jolla (borið fram la hoja) þar sem við bleyttum aðeins betur upp í okkur. Mér finnst La hoja mjög flottur staður, og það besta er að það má reykja þar inni….. Kannski ekki margir sem deila þeim fögnuði með mér… Við sjáum martinimynd:

Eftir La hoja skunduðum við til Arndísar og Binna þar Apple to Apple (SNILLDARSPIL!!) var spilað þangað til klukkan var óvart að ganga fimm…. Við sjáum myndir:

Binni og Arndís

Mikael talaði of mikið….

Ég og Kári… Nei ég er sko ekkert full þarna…..
Niðurstaða: Alveg dásamlega skemmtilegur afmælisdagur, gaman að fara á Hooters þó að það verði nú reyndar kannski ekki alveg á næstunni, maturinn ekki alveg að gera góða hluti….
Og næst á dagskrá: FARA TIL ÍSLANDS!!! Ég hlakka voða mikið til að koma á klakann, þó að ég dauðkvíði fyrir löngu ferðalagi… Ætli það verði ekki þess virði. Ég hef ekki lagt fram langann kröfulista yfir hvað ég vil gera þegar ég kem til Íslands. Fyrir utan það sem ég ÞARF að gera, þá langar mig að:
A) hitta vinina… krossa tékk við það ![]()
B) Fá kaffi hjá Svanhildi… Þar sem ég þarf hvort eð er að fara upp í síma, held ég að mér sé óhætt að krossa tékk
C) Síðast en ekki síst, fá KJÖT Í KARRÝ hjá mömmu minni sem ég hlakka svooooo mikið til að faðma að mér (sko mömmu, ekki kjötið í karrýinu…. Já og alla hina í fjölskyldunni líka
) Þessi krafa hefur verið samþykkt af staðarhaldara, þannig að ég krossa tékk við það líka
Ef ykkur langar að sjá restina af myndunum frá þessu kvöldi, þá getið þið kíkt á myndasíðuna mína hérna til hliðar, sem er undir liðnum “bara jeg sko”
Óver end át
Hrafnhildur- Það er gaman að vera til