Archive for December, 2007

30
Dec

Seinasti dagurinn á Íslandi

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Hér sat ég, minding my own, þegar ég fattaði allt í einu að seinustu augnablik mín á Íslandi væru, algjörlega mér að óvörum, að líða…. Allur undirbúningur, allt sem ég hef seinustu mánuði dundað mér við í sambandi við þennan útflutning Íslands á Íllfyglinu Krumma, finnst mér ég hafa verið að gera fyrir einhvern annann… Og svo allt í einu núna, eftir nokkra klukkutíma, mun ég danglast varnarlaus í blikkdós yfir atlandshafinu, á vit nýrra ævintýra í nýju landi. Skrýtið… Mjög skrýtið….

En einhver í efra hefur svo sannarlega verið að dunda sér við að leggja steina í þá götu mína sem liggur til Alabama… Einhver hjátrúarfullur væri nú bara hættur við… Seinustu stórtíðindi eru að þegar ég fór í viðtalið upp í sendiráð 27 desember, var mér umsvifalaust vísað frá með þeim skilaboðum að einhver skanni væri bilaður og engin viðtöl hægt að taka… Á mig komu nú heldur betur vöbblur, og álkulega upplýsti ég þau um það að ég væri að fara út á sunnudaginn. Vorkunnarsvipur kom þá á konugreyið sem gat engann veginn lofað mér því að ég fengi áritun fyrir þann tíma. Mér var úthlutað öðru viðtali, í guðs þökk var ég fyrst á föstudagsmorgun. Föstudagurinn leið í óvissu og vítiskvölum, þangað til hálffjögur þegar ég fékk þá tilkynningu að það væri nú tilbúið til brottfarar…. ÞUNGU FARGI AF MÉR LÉTT…

Nú og svo er núna búið að fresta fluginu um 3 tíma vegna veðurs, þannig að hér sit ég nú í reiðileysi og ennþá í þeirri óvissu sem ég var að vona að hefði yfirgefið mig fyrir jól, og hlæ upp í vindinn, þar sem þetta er náttúrulega löööööngu orðið fyndið bara!!!!

Annars segi ég bara takk fyrir samveruna á Íslandi, og næst munuð þið heyra í mér frá júessoffeij sem mun vera mitt heimili um óákveðinn tíma :)

Fyrir þá sem hafa áhuga er hér heimilisfangið mitt:

3553 B Reserve Circle
Montgomery, AL 36116
U.S.A

Ég ætla að vera dugleg við bréfaskriftir, þeas upp á gamla sniglapóstmátann, og vona að einhver aumki sig nú yfir kellu og sendi svona eins og eitt sendibréf, response guaranteed :)

Hrafhildur- Ást og friður

21
Dec

Lítum nú til baka

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Dec

Letihaugur

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Dec

Fyrir norðan

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

13
Dec

This just in….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

9
Dec

kontakt

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

7
Dec

Komin á krókinn

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus