Archive for October, 2007

30
Oct

LOKSINS!!!

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Loksins!!!

Fyrir sirka 2 klukkutímum fengum við loksins 100% staðfestingu á því að eiginmaðurinn er kominn inn í skólann í Alabama, en sú staðfesting kom í formi útkomu á TOEFL prófi. Til að fá inn í skólann þurftum við að ná 500 stigum, og náði garmurinn 510 stigum :) Ég aftur á móti bætti um betur og fékk 600 stig af 677 mögulegum og er álíka montin og hani í hænsnabúi :) Með þetta að leiðarljósi erum við semsagt búin að kaupa okkur flugmiða, og þann 30 desember klukkan sautjántuttuguogfimm munum við fljúga á vit ævintýranna í henni stóru ameríku!!!

Við sátum sko ekki með hendur í kjöltu á meðan Alabamaförinni stóð, og get ég stolt montað okkur bæði af því að nú erum við bandarískir bílaeigendur, komin með bandarískann bankareikning (með ávísanahefti, guð hvað ég er fullorðin haha), og leiguíbúð, þannig að næstu 2 mánuðir líta út fyrir að vera óþarflega óbærilegt uppfyllingarefni í mínu lífi :S

Hrafnhildur-Going Americano

22
Oct

Fyndinn gamall kall

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

22
Oct

Alabama

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

19
Oct

Alabama- taka eitt

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

11
Oct

Það sem maður vissi lítið….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus