Archive for September, 2007

26
Sep

Flutningar….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Ég er öryggisfíkill og vanafastari en einhverfur smástrákur. Mér líður best þegar ég er með framtíðina kortlagða fyrir framan mig. Ég gæti svo auðveldlega panikkað þessa dagana að ég get eiginlega ekki annað en hlegið yfir því öllu saman. Leyfið mér að draga upp smá skyssu fyrir ykkur:

1. Ég er að fara að afhenda íbúðina formally known as mine til réttmætra eigenda á mánudaginn, og ég er ekki ennþá komin með stað fyrir allt dótið mitt…. Stað sem það þarf að vera á næstu 3 árin. Who cares segi ég nú bara kæruleysislega og fæ mér kaffi!!!

2. Á næstu 3 mánuðum sé ég fram á að búa á allavega 2 stöðum, svona fyrir utan það að desember er algjörlega óskrifað blað búsetulega séð. Ekki er þetta nú stór biti fyrir öryggisfíkil að kyngja, er það? Who cares segi ég nú bara kæruleysilega og fæ mér sígó!!!

3. Ég er búin að segja upp vinnunni minni, sem ég er búin að vera í í tæp 6 ár, og sé ekki fram á að vinna (nema maður líti á skólagöngu sem vinnu) næstu 3 árin. Ekki er það stór biti fyrir vanafastann andskota að kyngja, er það? Who cares segi ég kæruleysislega enn og aftur, og fæ mér smók!!

En jæja, lítum nú á kostina við þetta allt saman:

1. Mikið assgoddi verður gaman að taka upp úr kössunum aftur eftir 3 ár og skoða aftur allt dótið sem ég var búin að gleyma að ég ætti og koma því fyrir í fínu íbúðinni sem við verðum komin í þá :)

2. Í desember fyndist mér alveg gráupplagt, þar sem hvorugt okkar verður að vinna, að slaka á í faðmi fjölskyldunnar og njóta aðventunnar sem er jú minn uppáhaldstími, þinglýsti jólaálfurinn sem ég hef alltaf verið. Í kristalskúlunni sé ég mikið um sörubakstur, jólakortaskrif með systur minni sem enda alltaf með ósköpum og föndur með Rebekkunni minni á meðan Sylvían mín rífur í sundur krepappír, enda eru þetta nú uppáhaldselskurnar mínar í öllum heiminum.

3. Er ekki fínt fyrir illa haldinn vinnualka að prufa það einusinni að vera eitthvað annað en hermaur, og setjast á skólabekk. Ég get ekki annað sagt en að ég hlakki til að skrifa allar ritgerðirnar, enda veit ég fátt skemmtilegra en að afla heimilda og þruma saman í ritgerð; tómstundagaman sem ég hef litla ástæðu haft til að stunda seinustu ár. Og ekki finnst mér subbulegt að þetta skuli allt fara fram í hinni stóru ameríku, landi tækifæranna :)

Já, framtíðin er skrýtin, en mér líst bara suddavel á þetta allt saman svona þegar á heildina er litið :) Guð hvað ég verð bráðum veraldarvön :)

Hrafnhildur- Öryggisfíkill á cold turkey

P.S.
Finnst ekki úr vegi að auglýsa smá fyrir frænku mína. Hún á snyrtistofuna Snyrtihornið í hafnarfirð, og hún er komin með súkkulaðivax stelpur!!! Þannig að nú skulum við marsera inn á stofu og vaxa og Braza eins og enginn sé morgundagurinn!!!

24
Sep

Helgin…

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

20
Sep

Í dag…

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

11
Sep

Heyrt á röltinu….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus