Archive for August, 2007

31
Aug

10 ár síðan

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Í dag eru 10 ár síðan Díana prinsessa dó.

Ég man hvað ég var að gera þegar ég frétti að hún væri dáin, ótrúlegt en satt. Ekki ótrúlegt af því það er svo langt síðan, ég held að allir muni hvar þeir voru, og hvað þeir voru að gera þegar þeir fréttu af þessu. Ástæðan fyrir því að það er ótrúlegt, er af því að ég var hálfdrukkin eftir hálfs dags fyllerý…..

Ég og Gebbus deilum semsagt þessari lífsreynslu…. Við fórum í partý snemma um kvöld, drukkum okkur vel ölvaðar, drápumst í rúminu hans Atla Björns, kúrðum með Gumma á hótelinu á milli okkar og hlógum að honum þegar við rönkuðum við okkur úr víndáinu, drukkum meira, hlógum ótrúlega mikið í viðbót, knúsuðum Atla Björn og fleiri sem voru þarna þó ég muni ekki til að bjarga lífi mínu hvaða fólk það var, en við erum þekktar fyrir að knúsa fólk sem okkur þykir vænt um :) Vorum svo loksins að draga okkar sorglegu rassa heim á hlíðarstíginn um hádegið, slompaðar, sjúskaðar og yfirhöfuð frekar lélegar afsakanir fyrir þeim annars þrusupíum sem við vorum (og erum enn).

En gamanið hætti nú ekki þarna, síður en svo… Þegar á hlíðarstíginn var komið var þynnkan heldur betur farin að kikka inn. Öll höfum við okkar siði og venjur í þynnkunni. Mínar venjur eru þær að liggja algjörlega obblivvíöss fyrir heiminum í kringum mig…. Guðný á það oftar en ekki til að skila innbyrslu næturinnar og gott betur.

Við holuðum okkur niður í holinu upp á hlíðarstíg, fyrir framan sjónvarpið, ég í mínu alþekkta ástandi og Guðný græn í framan. Gebbus stekkur á fætur, hendist niður stigann en nær ekki lengra en út á stétt, og um það leyti sem hún stendur augliti til auglitis við það sem hún borðaði 3 mínútum áður, sé ég í fréttunum að prinsessan sé öll. Mér brá heldur betur í brún, en þar sem Guðný er slúðurfíkill 20. aldarinnar fékk ég málið og argaði niður stigann “Guðný, Díana prinsessa er dáin”.

Gebbs tók þetta nú heldur betur með fyrirvara og argaði til baka “hættu þessu rugli illfyglið þitt og láttu mig vera, ég er að einbeita mér að heldur erfiðu verkefni hérna!!” Ég argaði frekar sár yfir að vera ekki trúað: “Ég sverða manneskja, hversvegna í ósköpunum ætti ég, drulluþunn, annars að vera að hugsa um Díönu prinsessu núna”

Alltíeinu var ekkert hljóð. Óhljóð þau er koma frá manneskju í hennar ástandi, og voru farin að vera mér svo kunn á þessum tímapunkti þögnuðu algjörlega. Eftir smá ræskingar heyrði ég lítið og veiklulegt “ha….” og sekúndubroti seinna, mér til mikillar undrunar, þar sem ég vissi ekki betur en að hún væri að sinna verkefni niðri, sat hún kríthvít við hliðina á mér með tárin í augunum, hor í nös og slef út á kinn……

Við lágum allann daginn krullaðar saman í sófanum og horfðum á alla þá þætti sem voru sýndir, og fylgdumst með fjölmiðlasirkusnum verða að villidýri, og vissum að við myndum muna eftir þessum degi alla ævi!

Þó að sumum finnist þetta heldur óhugnaleg lýsing á glamúrgellunum Krummz og Gebbz, og finnist þessar aðstæður heldur ómerkilegar, hefði ég ekki viljað deila þessari minningu með neinum öðrum í heiminum. Ég veit ekki hversu oft síðan við höfum sagt “hey, mannstu þegar Díana prinsessa dó!!!” og ornað okkur við minninguna :)

En hvíldu í friði Díana, og Gebbs, ég elska þig til tunglsins og til baka ;)

Hrafnhildur- Of ung til að vera orðin hálffullorðin fyrir 10 árum….

24
Aug

Finnarnir eru náttlega snilld

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

23
Aug

Sweet home Alabama

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Aug

Breytingar- vonandi

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

14
Aug

Áfram Ísland

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

9
Aug

Hola amigos

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus