Archive for June, 2007
Married life!!

Jæja, þá eru hveitibrauðsdagarnir upprunnir!!!
Þetta verður mín fyrsta færsla sem gift kona, að hugsa sér!
Brúðkaupsdagurinn leið of hratt… ALLTOF hratt! Ég vildi óska þess að ég gæti upplifað hann aftur og aftur og aftur. Það er kannski klisja, en alltof satt að brúðkaupsdagurinn sé einn sá besti í lífi fólks, við eigum bæði eftir að lifa á okkar degi það sem eftir er!
Kærleikurinn sem við upplifðum frá fólkinu í kringum okkur var þvílíkur, og ég hef heyrt því hvíslað að ástin hafi skinið af okkur dúfunum litlu.
Þetta byrjaði allt saman með bröns hérna heima, þar sem vinkonu/frænku/mömmu/tengdamömmu og systrastóðið mætti og borðaði með mér morgunmat áður en ég fór í greiðsluna. Eftir að ég lagði af stað inn í Reykjavík, er eins og einhver hafi ýtt á hraðspólun, og allt í einu stóð ég við hliðina á pabba í hvíta fallega kjólnum og dyrnar inn í kirkjuna að opnast….
Í öllum taugatitringnum hljóp ég víst næstum inn gólfið, dragandi pabba á eftir mér eins og tómann hagkaupspoka, en eruð þið hissa miðað við manninn sem beið eftir mér við altarið
Aftur verður allt blörrí í minningunni, en það næsta sem ég veit er að ástmögurinn kallar krúttlega alltof hátt “JÁ”, og svo aftur “já” nokkrum desibilum lægra… Mér fannst það sætt. Þegar kom að mér, var eins og röddin væri ekki þarna, og ég náði rétt svo að hvísla já. Aftur þurfti ég að segja já, og aftur sveik röddin mig, þannig að ég ræskti mig bara og sagði aftur já hátt og skýrt, svona til að guð heyrði örugglega til mín
Næst- myndataka. Tók helst til langann tíma, og við vorum bæði orðin óþreyjufull að komast til gestanna okkar, en hriiiiikalega skemmtileg samt.
Svo upp í sal! Hápunktar kvöldsins eru SVO margir, að ég get ómögulega talið þá upp. Það var svo SVAKALEGA mikið af fólki sem mig langaði að tala við one on one, en alltof fáar ég, þannig að stærðfræðin á bak við þetta er ekki flókin. Svona það sem stendur mest uppúr í augnablikinu er eftirfarandi:
Pistillinn mömmu og pabba, Margrétar, Tengdó og Halldórs Mása.
Magni að spila Stolt siglir fleyið mitt, og salurinn tók undir þannig að á tímabili hélt ég að þakið ætlaði af húsinu.
Magni spilaði afgan með Bubba (fyrsta lagið sem við dönsuðum nokkurn tímann við, eimmitt á Á móti sól balli) á meðan við dönsuðum fyrsta dans sem hjón.
Davíð Rúnars að syngja lagið sem hann samdi með undirspil á gemsanum sínum.
Elsku frænka mín, hún MR. Silla söng fyrir okkur Never ending story og There must be an angel, og spilaði undir á Ukulele.
OG SVO MIKLU MIKLU MEIRA!!!!!!
Þetta einhvernveginn rennur allt saman, og ég er pottþétt að gleyma einhverju sem var alveg brilljant og verðskuldar að láta tala um, but don’t hold it against me
Og svo gjafirnar, O MY GRAVY!!!! Þvílíkt og annað eins af vönduðum gjöfum og fallegum hlutum. Þegar gjafirnar voru komnar allar hingað inn á gólf settist ég bara og horfði á þær og kafnaði úr valkvíða…. VIÐ VILJUM ÞAKKA ÖLLUM!!! Þetta var frábært frá upphafi til enda, og ég er svo þakklát fyrir að svona margir hafi viljað upplifa þetta með okkur.
TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
P.S
Kem með update þegar ég verð búin að fá DVD diskinn með upptökunni af brúðkaupinu, og segi ykkur meira þá, verð að upplifa þetta aftur til að ná að taka þetta allt inn……..
P.p.s
Er búin að setja fyrstu myndirnar inn á myndasíðuna mína, býst við að fá FUUUUUULLLLT meira. Endilega ef þið eigið myndir, viljiði brenna þær á disk og gefa okkur, við eigum nebbla engar nema þessar eins og er
EN SVAKALEGA ER ÉG HAMINGJUSÖM!!!!
Það á enginn betri mann en ég!!!!!
Hrafnhildur- Gift