Archive for May, 2007
Já, lífið sko….
Í gær var ég sár og svekkt…. Grét svolítið og var svo krýnd dramadrottning ársins 2007…. Allt yfir einhverju sem var í raun ekki neitt… Tilfinnigar eru náttúrulega alltaf tilfinningar og maður ræður ekkert við það hvernig maður bregst við. Ég skammaðist mín í pínustund þegar ég kíkti inn á veraldarvefinn….
Á meðan ég var að óskapast yfir mínu litla… Ogguponsulitla leiðindamáli, tapaði Ásta Lovísa baráttunni við krabbamein, og dó, lét eftir sig fallegu börnin sín þrjú og unnusta. Hún er búin að takast á við þetta eins og hetja, opnaði hjarta og sál fyrir þjóðinni á netinu og þó ég hafi nú ekki skoðað bloggið hennar fyrr en undir það síðasta, þá setti hún sitt mark á mitt líf…. Jákvæðni, bjartsýni, æðruleysi, hugrekki… Þessi orð fengu öll nýja merkingu í mínum huga þegar ég las bloggið hennar. Skrýtið hvað manneskjur sem maður þekkir ekki geta haft mikil áhrif á mann.
Héðan í frá ætla ég að taka erfiðleikunum með bros á vör. Ég er heil heilsu, á fallegasta og yndislegasta mann sem nokkur kona getur beðið um í lífinu, og er að fara að giftast honum, og á frábæra fjölskyldu og vini. Ég hef verið valin, ég veit ég get það, nú er bara að bíða
(Margrét syss, þú skilur)
Varidda of væmið? Maður verður nú að fá að pústa stundum
Hrafnhildur- æji þið vitið…