Archive for March, 2007
Nordica spa
Fór í Nordica spa í gærkvöldi. Ég ákvað að nýta jólagjöfina frá símanum og fór í nudd og fótsnyrtingu, og inn á milli djúpsteikti ég mig í pottunum á meðan ég fékk herðanudd og fínerí.
Ég kom þarna algjörlega oblivíöss, þar sem ég hef aldrei á æfi minni áður stigið inn á Nordica spa, og mér var sópað inn í næsta klefa, hent í sturtu og pakkað inn í þennann fínasta slopp. Mér fannst þetta nú alls ekki of subbulegt fyrir Krummann, þannig að berfætt og ponsulítið feimin arka ég fram í biðstofu, tilbúin í nuddið. Á meðan ég bíð fæ ég mér vatnssopa og næ að hella niður yfir öll blöðin þarna, enda fannst mér þetta alltof mónótónískt svona án allra útlitsgalla hehe. En svo kemur nuddarinn…. Ég var búin að búa mig undir að lítil og nett kona tæki á móti mér og myndi með sínum álfahöndum leika um líkamann og blása í burtu óþægindin, en sá sem tók við mér var rússneskur karlmaður á fertugsaldri, með þunnt hár, mullet og bumbu….
Hmmm…. Mér leist nú ekki á alveg svona við fyrstu sýn…. Ég tók nú reyndar í krumluna á honum eins og kurteisi í almennu þjóðfélagi krefst af manni, og fann við það að þetta væri nú bara ef til vill sá mýksti karlmannshrammur sem á minni æfi hefði komist í snertingu við hendurnar á mér, og ákvað að gefa honum séns. Ég lagðist á bekkinn og hann byrjaði að nudda og ég frelsaðist!!!! Ég fann streituna gjörsamlega líða út um tærnar á mér og ég sver það, ég komst í það ástand að vera svo afslöppuð að ég prumpaði næstum!!!
Jæja, klunnalegi, en mjúkhenti rússinn lauk sínu starfi með sóma, og ég rauk í pottana þar sem ég sauð við vægann hita á meðan axlirnar voru nuddaðar meira og ég bara hreinlega reis upp á hærra sælustig!!! Eftir pottana arkaði ég frekar stressuð í fótsnyrtingu, þá fyrstu á minni lífslöngu æfi. Ég byrjaði á því að koma með þá yfirlýsingu að tærnar á mér væru örugglega þær ljótustu í bransanum, og spurði hvort hún væri nú ekki örugglega með slípirokk og vírklippur…. En hún fullvissaði mig um að hún hefði séð það verra…
Nú er ég með vellíðunartilfinningu í kroppnum, fínar tær og lakkaðar táneglur, og bara á einhvern hátt betri manneskja eftir að hafa dekrað sjálfa mig í þessum lúxus… Ég mæli með þessu við hvert einasta lifandi mannsbarn sem finnst það eiga eitthvað gott skilið!!!
Hrafnhildur- í alsælu