Archive for February, 2007

26
Feb

Sögulegt tækifæri……

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Sögulegt tækifæri gefst

Jahá!!!!

Það er eins gott að við nýtum þetta sögulega tækifæri krakkar!!! Koma sohhhh…. Allir nýta þetta tækifæri til að kjósa manneskju til forsætisráðherra bara af því hún er kona!!! Ekki hugsa um það að þessi tiltekna kona tók sig til og drullaði upp á bak hér um árið þegar hún fyrst sór og sárt við lagði að hún færi EKKI í landsbyggðarpólitík, en var hálfu ári seinna komin á kaf í einmitt nákvæmlega þá pólitík…. Hvahhhh hún er í pólitík, hún má ljúga!! Nei, hugsið frekar um það að ef þið kjósið hana ekki, þá er þjóðin að missa af einstöku tækifæri til að gera KONU að forsætisráðherra!!! Ekki kjósa þann/þá sem ykkur finnst hæfastur/ust, kjósið konuna!!

Ef þetta er ekki kynjamismunun þá heiti ég Chi Gong og er ævagömul, Víetnömsk akuryrkjukerling!!!

Og hvað er eiginlega að gerast í þjóðfélaginu í dag! Það er bara allt að fara til andskotans að því er virðist! Fyrst bönnum við nokkrum saklausum klámhundum að kíkja í ferðamannaheimsókn til landsins… NB… Við erum þjóðin sem sleppir nauðgurum og barnaníðingum úr fangelsi og út í þjóðfélagið, helst nálægt barnaskólum, eftir árs til tveggja ára afplánun, 1/3 af settum dóm en guð forði okkur frá því að veita litlum hóp af dónum hótelvist á Íslandi… Þó svo að þetta tiltekna hótel sé alveg 99% að sýna mynd sem dónarnir leika í á VOD-inu inn á hótelherbergi. Næst situr Steingrímur Sigfússon í Silfri Egils og biður um Netlögreglu… Með öðrum orðum… Ritskoða netumferð…

Kíkjum aðeins á þetta Denni minn:

Ég veit um eitt annað ríki í heiminum sem er með ritskoðun á netumferð. Það er Kína Denni minn. Þegar unglingar í Kína Gúgla upp “torg hins himneska friðar”, þá fá þau upp myndir af torginu, sællegum skólakrökkum og feitum kellingum að gefa dúfum að borða… Þegar ég gúgla upp “Torg hins himneska friðar” Fæ ég þetta. Kínversk ungmenni hafa ekki grænastann grun um hvað gerðist á torgi hins himneska friðar, né nokkuð annað sem er óþægilegt fyrir kínverja, vegna þess að þar er netumferð og allt annað ritskoðað. Við búum í landi þar sem er tjáningar- og málfrelsi (sem ég nýti mér til fullnustu takk fyrir) og þó svo að hugsunin hjá þér sé að ritskoða bara klámið.. Næst gæti Kolbrún Halldórsdóttir látið sér detta í hug að ritskoða allt í sambandi við matargerð á kjöti af því hún er grænmetisæta… Svo gæti Ingibjörg Sólrún látið sér detta það í hug að ritskoða alla karlmenn af því hún er KONA!

Hvar á að draga mörkin?

Við erum farin að ritskoða þá sem koma inn í landið, er það ekki nóg?

Hrafnhildur- og stendur við það!

24
Feb

Confessions tour

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

23
Feb

Klám

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

22
Feb

Taugar

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

22
Feb

Í gær

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

21
Feb

Ammæli

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

14
Feb

Dagar ásta og blóma….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

9
Feb

Jahá…

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

8
Feb

Athyglisvert….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

5
Feb

Idol…

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus