Archive for October, 2006

30
Oct

jább….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Meðan laufin sofa, liggja spaðarnir andvaka og þessvegna notaði ég tækifærið um helgina meðan ástmögurinn var sendur í marineringu austur fyrir fjall í sumarbústað með öðrum álíka villtum eintökum, og fékk Sæju Pæju og hommakrulluna í sleepover :) Við byrjuðum á því að fara á Thai matstofuna til að byrgja okkur upp af nauðsynlegri næringu, fórum svo heim til mín þar sem við tók heljarinnar Trivial Pursuit viðureign. Með bros á vör og stolti í hjarta get ég með góðri samvisku sagt að ég RÚSTAÐI þeim og munu þau ekki bera sitt barr hér eftir…. Á meðan á þessari viðureign stóð voru látin niður kynstrin öll af áfengum drykkjum, og þar af leiðandi voru þau strönduð í Hafnarfirðinum og húsmóðirin ekki lengi að hrista fram úr erminni flet fyrir gestina að kúra á :)

Annars er það á planinu að fá systurdóttur mína lánaða yfir helgi núna fljótlega, og þar sem Ronja Ræningjadóttir var stór hluti af minni æsku, ætla ég að innleiða hana inn í æsku minnar heittelskuðu rófustöppu og gera tilraun til að fara með hana á sýninguna í Borgarleikhúsinu. Reyndar er barnið svo ofboðslega mikið ljónshjarta að þegar ástmögurinn fór með hana að sjá Bamba 2 í bíó og leikurinn fór aðeins að kárna (það vita náttúrulega allir að Bambi 2 er alveg skuggalega brútal, miiiiklu grófari en Bambi 1…) fann hún sig alltíeinu knúna til að fara fram undir því yfirskini að “skoða borðin og stólana” en stóð svo á því fastar en fótunum þegar heim var komið að það hafi verið ástmögurinn sem hafði þennann ofuráhuga á innréttingum sambíóa í smáralind….

Þessvegna hef ég gert varúðarráðstafanir, og ætla foreldrar hennar að taka Ronju á leigu og sitja yfir barninu þangað til hún hefur sætt sig við allann óhugnaðinn sem Ronju fylgir, vegna þess að ég hreinlega get ekki beðið eftir því að sjá leikritið en finnst ég þurfa að fá eitthvað barn lánað svo ég sitji nú ekki dáleidd úti í sal, eina fullorðna manneskjan án krakkaorms….

Hrafnhildur- Og meina það fullkomlega

25
Oct

kalt

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Oct

Þunglyndar kisur

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

16
Oct

Átak, enn og aftur

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

16
Oct

Og svo kom mánudagur

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

9
Oct

.

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

5
Oct

Fusss

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

2
Oct

Myndir

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus