Archive for July, 2006
4 dagar…
Nú eru 4 dagar í spánarferð… Ég verð nú að viðurkenna að þessir 4 dagar eru hreinlega bara algjörlega að þvælast fyrir mér, ég hef hreinlega ekkert að gera við þá!!!
Þar sem ég hef seint verið talin bera höfuð og herðar yfir aðra í vitsmunalegum yfirburðum náði ég náttúrulega, algjörlega ein og óstudd, að gera mér biðina ennþá þungbærari… Þannig er það að við förum út 2 ágúst. Ég náttlega beit það í mig fyrir löngu að það væri þriðjudagur og undi bara sæl með mitt. Þegar svo kom að því að panta sumarfrí fór ég hnarreist til yfirmanns míns og bað hiklaust um frí frá 1 ágúst, enda mánudagur í mínum bókum….
Svo ekki fyrir svo löngu kemur svo í ljós að 1 ágúst er ekki fyrr en á þriðjudegi, sem gerir það að verkum að ég þarf að mæta í vinnu á mánudeginum og með guð mér til vitnis, þá verður þessa mánudags minnst í ritningum sem MÁNDUAGURINN LANGI!!!! Ég held hreinlega að þetta verði erfiðasti dagur ævi minnar, þó víðar væri leitað…..
En ég bið ykkur vel að lifa
Hrafnhildur- óþolinmóð