Archive for May, 2006

29
May

1 down, 9 to go…

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Jæja… núna, fimm dögum eftir hina alræmdu “Éttla standast átakið” færslu, hef ég náð af mér fyrsta kílóinu… Það er alltaf gaman að sjá árangur, og þó að hann sé bara eitt kíló þá er það samt það pepp sem ég þarf. Í morgun þurfti ég líka að spenna beltið mitt einu gati aftar en ég hef gert hingað til sem er ekki slæmt.

En nú er ég að spá… Þegar maður er í svona átaki, afhverju rennur ummálið fyrst af þeim stöðum sem mega sko bara alveg halda áfram að blómstra?? Ég var að hneppa kápunni minni að mér í morgun og hún var víðari yfir brjóstin en venjulega.. Ekki það að ég fann alveg mun á hinum hnöppunum líka, en mest yfir brjóstin… Aftur á móti virðist rassgatið á mér ætla að halda í alla þá fermetra sem þar hýrast með jötunlími og ég skal lofa ykkur, að 4 mánuðum eftir að ég verð farin að sjá greinilega alla magavöðva, þá mun afturendinn á mér skara aftan úr mér eins og hinn myndarlegasti þyrlupallur!! En nei, ég mun ekki gefast upp, ég ætla!!

Á föstudaginn gerði ég svolítið sem ég lofaði sjálfri mér að ég myndi aldrei gera…. Stúlkan skellti sér svo sannarlega í Brasilískt vax fyrir allann peninginn!!! Ésskalnúbarasegykkur það að þetta var bara ekkert gott. Ég fór í eitthvað spes súkkulaðivax sem á að vera betra fyrir það að það límist ekki við húðina, og það blæðir ekkert (BLÆÐIR!!! Ó MÆ GOD) og nú verður mér á orði: HVERNIG FARIÐ ÞIÐ AÐ ÞVÍ AÐ FARA Í VENJULEGT VAX, TILFINNINGALAUSU KVENSNIFTIR??? (sagt á meðan minningin um sársaukann færist yfir mig og þessvegna með geðvonsku, ég elska ykkur allar í alvöru…) Ég þurfti að berjast við sjálfa mig að ráðast ekki á aumingja stelpuna sem var í góðmennsku sinni að þjónusta mig og biddsslappa hana til Bagdad… En ég get ekki sagt að ég og umrædd stúlkukind eigum mörg leyndarmál fyrir hvor annarri núna þegar ég hef glennt það allraheilagasta framan í hana og leyft henni að work her magic…. Útkoman er samt alveg hreint brilljant og ég er hrikalega ánægð. En guð minn almáttugur samt…

Hrafnhildur- Brasilísk

24
May

Nú er sko kominn tími á það!!

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

16
May

Eldur, ís og dýnamít

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

16
May

Jöss

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

16
May

Rúst!!

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

15
May

KissFm

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

14
May

Karlmennska

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

11
May

Silvía Nótt….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

11
May

Það ólíklegasta hefur gerst…..

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

10
May

Ohhh ég er svo klár….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus