Archive for March, 2006

30
Mar

Gemsi

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Ég er orðin ástfangin af litlu gemsakríli sem er ó svo fallegur og fínn og bleikur. Það er reyndar einn lítill hængur á ráðahagnum og það litla smáatriði er að þessi sími er af gerðinni Motorola sem hingað til hefur verið vörumerki satans í mínum huga. En ég er tilbúin að horfa framhjá því litla smáatriði þar sem hann er ó svo gellulegur og fínn og flottur… og bleikur…

Ég viðraði hugmyndina um að verða mér úti um eitt stykki við manninn minn, svona fór samtalið:

Ég: Kristján, ég er að spá í að fá mér nýjann síma

Kristján: Nú hvernig sími er það?

Ég (blíð og undirgefin): Þetta er Motorola razor og hann er…. (komst ekki lengra þar sem óbermið greip fram í fyrir mér)

Kristján: Bíddu.. Motorola, ég hélt að Sony ericsson væri það eina sem er til í þínum huga

Ég: Já ég veit og ég stend við það að þeir séu bestir en þessi er ótrúlega þunnur og þetta er samloku sími og hann er BLEIKUR!!

Kristján: Ætlaru semsagt að fara að svíkja lit!!

Ég (komin í klemmu): já en, ég held þú hafir ekki heyrt í mér… Hann er bleikur!!! og flottur og þunnur…

Kristján (farinn að hafa gaman að klemmunni sem ég er í, kvikindið atarna): já en þú ert samt að svíkja lit…

Ég (farið að þykkna í kellu): Heyrðiru ekki þegar ég sagði að hann væri bleikur eða…?? Það vita allir að það er signature liturinn minn!!
Kristján: Hvað ætlaru að gera við þinn síma?

Ég (Orðlaus yfir svona skilningsleysi): Það vita allir að konur þurfa að eiga síma til skiptanna til að vera gellur!!

Kristján (glottir í kampinn og hefur gaman að): Gerðu það sem þú vilt, en þú ert samt svikari!!

Ég (fúl yfir að geta ekki haldið kúlinu í þessu samtali): Þú getur bara sjálfur verið svikari!!

Þannig að nú er ég að hugsa um að fá mér þennann fallega BLEIKA og flotta síma og una svo glöð við mitt :)

Hrafnhildur- Alvarlega misskilin!!

29
Mar

útlit….

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

23
Mar

Frestunarárátta eina ferðina enn

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

15
Mar

Lúðvík

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

10
Mar

árshátíð nálgast

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

7
Mar

Heman

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

1
Mar

Gemsinn minn

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus