Archive for February, 2005

27
Feb

27 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Þá er loksins komið að því…. Óskarinn djösst áörs avei!!! Ég er svo mikil slúðurkélling að uppáhaldið mitt er rauði dregillinn, og allann óskarsdaginn hugsa ég af og til alltaf “Hvað ætli Julia Roberts sé að gera núna” og “Nú er Hilary Swank örugglega í förðun”…. Já já ég veit, ég er geðbiluð, en mér finnst voðalega gaman af þessu öllu. Ég er að vísu ekkert búin að gera það upp við mig hverjir vinna og svo frv, enda eins og ég segi, finnst mér langskemmtilegast að horfa á rauða dregilinn… Reyndar verður extra spennandi að horfa á Óskarinn í kvöld þar sem Chris Rock verður kynnir og alveg trúandi til að gera eða segja eitthvað hneykslanlegt…… en guð hvað ég hlakka til að sjá kjólana og skartið:)

Talandi um kjóla… Kjóllinn góði sem ég keypti fyrir árshátíðina var of stór (og þegar ég segi of stór þá meina ég Anna Nicole á góðum degi of stór) þegar ég fékk hann til landsins þannig að ég þurfti að sendann út aftur, sem ég og gerði fyrir einni og hálfri viku síðan…. Var að fá email frá konunni sem ég keypti kjólinn af og hún ætlar að sendann á morgun!!!! Shéééééééshhhhhh!!!! Þetta verður tæpt!!! Ég sagði henni að setjann í ðí öltímitt express hraðsendingu vegna þess að ég ætlaði að notann 12 Mars….. Býst við að hún kalli út Air force one, enda ekkert minna sem dugir takk fyrir takk!!! Ég held ég eigi það líka skilið frá henni, tæfunni, þar sem ég hringdi út á miðvikudaginn í seinustu viku og þá var kjóllinn kominn út til hennar og það daginn áður nonn ðö less, og ég sagðenni að ég væri on skeddjúöl!!!!

En jæja… Éttla tjúna inn á E! þar sem þau eru byrjuð að telja niður í rauða dregilinn…… Sannkallað slúðurfíklahlaðborð!!!

Hrafnhildur-Ó svo spennt

26
Feb

26 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

23
Feb

23 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

23
Feb

23 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

21
Feb

21 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

21
Feb

21 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

19
Feb

19 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

19
Feb

19 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Feb

17 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

15
Feb

15 febrúar 2005

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus