Archive for January, 2005
26 janúar 2005
Það er svo sannarlega tvíeggja sverð, þetta Ebay!!! Ég er búin að sitja hérna í alla nótt yfir uppboði á DVD safni…. Horfa á sjálfa mig meistaralega eiga hæsta tilboðið í 7 klukkutíma (ég er búin að vera á næturvakt, ég er ekki alveg geðveik sko…) til að taka svo Ísland-Slóvenía á þetta og tapa fyrir einhverju gimpi á seinustu 3 fokkíng sekúndunum!!!! Aldrei hef ég áður haft jafn sterka þörf fyrir að berja hausnum á mér við lyklaborðið af öllu afli, þetta er hreinlega bara ekki sanngjarnt!!
Þetta er þá í þriðja skipti síðan í gær sem ég þarf að lúta lægra haldi fyrir einhverjum öðrum út af þessu dvd safni, en ótrauð held ég áfram og geri eina tilraun í viðbót. Ef ég mun ekki standa uppi sem sigurvegari í kvöld, þá hafa allir einkaleyfi á að kalla mig Snata næstu vikuna.
Hrafnhildur-Með hundshaus