Archive for August, 2004

29
Aug

29 Ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

Síðustu dagar eru búnir að vera helvíti, vinnulega séð. Það var svo mikið að gera í gær að heill veggur var skrúfaður af festingunum og við tókum ekki eftir því, ekki fyrr en í morgun þegar ég kom í vinnuna og allt draslið sem átti að vera á veggnum var á gólfinu. Ég er búin að vera einn og hálfann klukkutíma að borða eina möffins, og er ekki einusinni hálfnuð með hana og Froppatjínóið mitt er löngu bráðnað og orðið venjulegt kaffi. Þetta er bull finnst mér!!!!! Ég er búin að sjá það að Íslendingar missa vitið þegar þeir heyra eða lesa orðið “tilboð”. Það skiptir ekki máli hvað það er sem er verið að auglýs, það er á tilboði og svo ódýrt að við verðum að eignast það!!!! Mér finnst Íslendingar í verslunarhugleiðingum heimskir og leiðinlegir og ég er flutt til Burkina Fasó:(

Annars er ég búin að brillera í matargerð seinustu daga. Ég tók mig til í gær, hélt heiðri gamallar íslenskrar matargerð í hávegum og töfraði fram þennan dýrindis plokkfisk á núll einni, við frábærar undirtektir matargesta, sem í þessu tilfelli voru Árni minn og Daninn sem býr hjá honum þessa dagana. Daninn var mjög hrifinn af plokkaranum, en var þó hrifnari af steikta fiskinum sem ég gerði um daginn, en hann sagði að sú máltíð væri samboðin konungum (ja eða allavega að þetta hafi verið gott, mar má nú monta sig…). Svo er ég að fara að elda kartöflubollur í kvöld, það er nú meira hvað mar breytist í brjáluðu húsmóðurina svona loksins þegar mar fær að spreyta sig í eldhúsinu:)

Nennissiggi

hrafnhildur
Ofurkokkur með meiru

25
Aug

25 Ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

24
Aug

24 ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

22
Aug

22 ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Aug

17 Ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Aug

17 Ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

14
Aug

14 ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

13
Aug

13 febrúar 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

11
Aug

11 Ágúst 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

8
Aug

8 Febrúar 2004

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus