Archive for July, 2004
29 júlí 2004
Þar sem ég er náttúrulega argandi egóisti á powertrippi, ákvað ég að færa þessa bloggsíðu mína skrefi ofar og opna vefverslun samhliða henni þar sem þið getið keypt ýmsar vörur merktar mynd af mér og lógóinu mínu… Þar sem þetta er aðallega til gamans gert og ókeypis að auki, ákvað ég að slá til svo ég gæti nú bætt einhverjum skemmtilegum link hingað inn og mun verslunin öðlast pláss hérna við hliðina. Nú ef ykkur langar að kaupa ykkur eitthvað af vörunum, sem er exsjúllí hægt þar sem þetta er alvöru vefverslun, þá er það alveg sjálfsagt, en ég mun ekkert verða fúl þó þið gerið það ekki en ekki láta ykkur bregða þó að jólagjafirnar í ár verði allar með mynd af mér glápandi á móti ykkur þegar þið opnið pakkann
Þar sem ég er sárlega án fótósjopp eða annara skemmtilegra tækja verður þetta allt með sömu myndunum til að byrja með, en ef ég finn einhvern til að útfæra þetta betur með mér verður þetta kannski fjölbreyttara með tímanum… En ég er nú bara aðallega að þessu vegna þess að mér finnstidda ógisslega gaman tíhí.
En verslunarmannahelgin
Föstudagur: Sukk helgarinnar undirbúið með góðum lúr fram yfir hádegi. Eftir hann verður land lagt undir fót í hina úthrópuðu smáralind þar sem partýboltarnir Rakel og Sæunn munu verða með allskyns uppákomur og afþreyingar, en þó bara fyrir Krummann. Kvöldið verður svo tekið með trukki þar sem Rakel og Krumminn koma saman og trylla lýðinn í heimahúsi í vesturbæ Reykjavíkur.
Laugardagur: Útihátíðin Síminn-Kringlan 2004 formlega sett klukkan tíu um morguninn þar sem Krumminn verður eldhress á kantinum með allskonar skemmtileg tilboð fyrir gesti og gangandi. Þaðan verður haldið beinustuleið á aðra útihátið sem er ekki úr göngufæri, en það er Late night-Pravda 2004. Mun Krumminn vera staðsett í anddyrinu með vatnsglas í annarri og gemsaposa í hinni og sjá um að hlutirnir gangi vel fyrir sig.
Sunnudagur: Útstáelsi og saurlífi Krummans mun
Mánudagur: Búist er við að mannskapurinn verði á þessum tímapunkti orðinn heldur rislár eftir sukk og saurlifnað helgarinnar þannig að ætli tjill verði ekki aðaluppistand þessa dags, jafnvel kíkt við á næstu vídjóleigu og leigt “eina heita” áður en mar lendir heima hjá sér slæptur og þreyttur.
Úff, ég held ég hafi bara aldrei séð jafn spenndandi og viðburðarríka verslunarmannahelgi, þannig að ef einhver hefur áhuga á því að sameinast mér í djammi og sukki helgarinnar, þá endilega hendið inn kommenti hérna fyrir neðan.
Annars bið ég að heilsa í bili.
Hrafnhildur
Ætti að láta foreldra hennar vita afissu??