Archive for May, 2004
31 maí 2004
Í fyrsta sipti á æfinni er mér algjörlega orðavant!!! Korn voru ólýsanlegir!!!! Þetta eru náttlega fyrir það fyrsta nokkurn veginn einu tónleikarnir sem ég hef farið á (fyrir utan skunk anansie ´97 sem mér drulluleiddist á vegna lélegs félagsskaps og fór fljótlega eftir þeir byrjuðu)og ég held að Korn hafi verið fullkomnir til að pop that cherry. Phantomas voru að hita upp fyrir þá og sugu heldur betur konunglegann, “tónlistin” sem þeir voru að spila líktist því helst að þeir væru að stilla hljóðfærin og hita sig upp og þetta var það skrítið að ég er viss um að artí fartí liðið sem hangir á sirkus hefði ekki einusinni fílað þá. Eftir að þeir yfirgáfu sviðið tók svo við næstum klukkutíma bið eftir meisturunum, en biðin var svo sannarlega þess virði. David kom fyrstur á svið og settist bak við trommurnar og húsið ætlaði að springa. Svo komu Munky, Head, Fieldy og loksins hann elsku Jonathan minn og ég missti mig gjörsamlega og sameinaðist minni innri gelgju! Ég argaði og gargaði og fékk hvert gæsahúðakastið á fætur öðru og var við það að bresta í grát inni á milli þess sem ég sat lömuð með hamingjubros á vör. Eitthvað var talað um það að sándið hefði ekki verið nógu gott í höllinni en ég var ekkert að spá í því, ég sá Korn live og ég er sextánhundruðþúsund prósent sátt:) Ég get með sanni sagt að það eina sem toppar þessa lífsreynslu er þegar ég var viðstödd fæðinguna hennar Rebekku, allt annað fellur í skuggann af þessu.
Bött bekk tú ðö ríl vörld. Núna þurfa þeir sem þekkja mig að setjast niður vegna yfirvofandi yfirliðs í kjölfarið af þessari frétt: Krummi litli tók til á svölunum hjá sér!!!! Þetta eru big njús og ég persónulega var sjálf farin að efast um að kassadraslið myndi nokkurn tímann yfirgefa pleisið, en svo greip mig einhver dugnaður og ég lét bara vaða á hrúguna, sem gerir það að verkum að nú eru svalirnar mínar auðar og bíða eftir að ég sitji þar í sólbaði með Hörpudýrinu, Hommakrullunni, Sæunni, Gebbunnni, Rakel eða Giggsternum og njóti mín:)
Svo er DJ Elmó að koma heim á eftir og eftirvæntingin farin að gera verulega vart við sig. Ég fór áðan og þreif drossíuna hans, sem ég hef haft afnot af seinustu viku, skilaði henni og fór svo heim og snurfusaði mig, þannig að nú má kauði barasta fara að láta sjá sig.
Spurning um að setjast bara út á svalir og hafa það gott:)
Hrafnhildur
Orðlaus á Korn tónleikum