Archive for February, 2004
29 febrúar 2004
Orð dagsins:
Hlunkapusa= Feitlagin kona.
Við sjáum dæmi:
Hún Dóra er nú orðin frekar mikil hlunkapusa, hún ætti að fara að slaka á í þynnkufæðinu…..
Svona verður maður nú margs vísari af því að fletta í gegnum orðabækur:)
Ég smellti mér á öldurhús borgarinnar á föstudagskvöldið. Gleðin byrjaði á Glaumbar þar sem þjónustuverið var með getttúgeðer og leyfðu þau litlum einmana spörfugli (mér audda) að fljóta með. Eftir heljarinnar dans á annars galtómu dansgólfinu á glaumbar færðum við (ég, Bergrún og Arna) okkur yfir á Sólon, en þar voru einstaka hræður á stangli og ekkert fútt í liðinu. Sú stemmning var ekki alveg að halda athygli okkar þannig að við fluttum okkur yfir á Felix þar sem við skókum okkar nicely shaped rassa af miklum móð. Ég komst samt alveg að því að ég þarf að fá smá kennslu í djammi, þar sem ég stóð mig að því undir það síðasta að vera farin að fantasera um Nonna bita og ákvað því um tvöleytið að drífa mig bara heim, var ekki að nennissu.
En það var eitt sem ég uppgötvaði á föstudaginn, sem gæti meira að segja gert það að verkum að ég fari að drífa mig oftar út…. Það er byrjað að flytja