Archive for November, 2003

29
Nov

29 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus


Mér finnst alveg merkilegt hvað tónlist getur haft mikil áhrif á það hvernig manni líður. Sú tónlist sem hefur sterkustu áhrifin á mig er tónlistin sem ég hlustaði á þegar ég var úti á Florida 1998. Ég held að það sé vegna þess að þegar ég heyri þessa tónlist, þá er ég komin aftur út í huganum og finn aftur þessa óendanlegu ánægjutilfinningu sem umvafði mig allan þann tíma sem ég var þar. Þó að ég hafi upplifað ótrúlega margar hamingjustundir í lífinu, þá held ég að mér hafi aldrei liðið jafn vel með sjálfa mig, eins og þennan mánuð sem ég var þarna úti. Mér persónulega finnst það rosalega mikils virði að þegar maður er eitthvað dán, geti maður bara sett disk í græjurnar og þá upplifir maður einhverja innri hamingju og vellíðan, sem á samt ekkert skylt við þann tímapungt sem maður stendur á. Ástæðan fyrir því að ég fór að hugsa um þetta er sú að ég ligg hérna uppi í rúmi og er að hlusta á “Floridatónlistina” mína og mér líður svo vel…. Ekki það að mér hafi liðið neitt illa en ég varð bara svo ótrúlega róleg eitthvað og sátt við sjálfa mig, allt og alla að ég held að ég hafi bara orðið væmin…..

Hérna er svo listinn yfir “Floridalögin” mín:

Adia-Sarah Mclaughlin
Angel-Sarah Mclaughlin
Me-Paula Cole
Uninvited-Alanis Morissette
Iris-Goo Goo Dolls
It’s hard to say….-Blues traveller
All cried out-Allure
Am-Matchbox 20
Push-Matchbox 20

Ég mæli eindregið með því að þið verðið ykkur út um þessi lög, ég veit að þau eiga nú örugglega ekki eftir að þýða það sama fyrir ykkur og þau gera fyrir mig, en þetta eru rosalega flott lög.

Hrafnhildur
Að drukkna í minningum

29
Nov

29 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

28
Nov

28 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

28
Nov

28 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

27
Nov

27 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

24
Nov

24 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

20
Nov

20 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

17
Nov

17 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

15
Nov

15 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus

14
Nov

14 Nóvember 2003

   Posted by: krummi    in Vort daglegt raus