18
Feb

Ok, here goes :)

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Er kannski kominn tími á nýja færslu?

Seinasta færsla takk fyrir takk skrifuð á seinasta ári!!!
Hérna kemur öppdeit:

*Ég tók mig til í Janúar og lét klippa mig, þannig að núna í staðinn fyrir að vera endalaust að festa hárið á mér í beltinu mínu, þá nær það niður á öxlum. Voða lekker, ég er alveg hæstánægð með þetta og viðtökur hafa verið góðar :)

*Öll mánudags-föstudagskvöld frá 18-22 síðan 5 Janúar hef ég setið niðri í leikhúsi á æfingum fyrir “Stones in his pocket” (Íslensk þýðing: “Með fulla vasa af grjóti”). Ég er aðstoðarleikstjóri og hljóðhönnuður, og það sem ég hef aðallega lært á þessum tíma er að ég er leikkona!!! Ég er ekki þessi týpíska “ábakviðtjöldin” manneskja, ég vil vera í sviðsljósinu, og stundum langar mig svo að stökkva upp á svið á miðjum æfingum og sýna þeim hvernig á að gera þetta haha. Ég er samt sem áður fegin að hafa ekki fengið hlutverk þar sem þetta er hálfpartinn einleikur, og leikararnir þurfa að læra utanað sirka heilt handrit! En þetta er geggjað flott leikrit, frumsýning á fösudaginn og ég er svo stolt að vera partur af þessu!!

*Átakið mitt gengur frábærlega, er búin að ná af mér 18 kílóum, bara tvö eftir og þá er ég sátt :) Og þið sem hugsið: “vó, ætlar hún að missa 20 kíló, verður eitthvað eftir??”, ykkur vil ég minna á að það var orðið af NÓGU AÐ TAKA!! En nú er ég orðin mjög sátt við sjálfa mig, og ætla að halda mér svona- Bikini season verður mjög ánægjulegt þetta árið :) Ég mun þruma inn fyrir og eftir mynd fljótlega :)

*Ég á ammæli á laugardaginn. 29 ára ung, spáið í það!!!! Af hverju líður mér ekki eins og ég sé 29 ára?? Mér líður eins og ég sé ekki degi eldri en 21……

*Við hérna í 3553B höfum verið í óðaönn að taka við herbergispöntunum. 12 Mars koma tengdó í heimsókn og verða hjá okkur í 10 daga (held ég…) og 22 Júní koma Sibbi og Bára í heimsókn til okkar- ég get ekki beðið. Svo hefur Margrét systir boðað komu sína í Júlí… Þar sem mágur minn er sjómaður, þá geta þau ekki strax nelgt niður dagsetning, en hafa LOFAÐ mér að þau komi í júlí- og sú hugsun er gjörsamlega það sem heldur mér gangandi núna!!!!!

*Áheyrnarprufur á mánudaginn fyrir leikrit sem heitir “Mother courage and her children”. Ég ÆTLA að fá hlutverk í þessu leikriti takk *heyriru það, þú þarna uppi!!!*. Æfingar fyrir það verða ekki jafn hektískar og fyrir “Stones”, miklu fleiri hlutverk, og maður þarf ekki að mæta á allar æfingar.

*Örugglega mikið meira að frétta síðan ég bloggaði síðast, en ég man ekki eftir fleiru í bili

Lofa að blogga með styttra millibili héðan í frá :)

Hrafnhildur- Bloggari ársins :)

30
Dec

Jólafrí.is

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Markmið í byrjun jólafrís: Spígspora um á náttfötunum og gera allt sem er svo guðdómlega letilífslegt..
Afrakstur jólafrís: Að hafa náð settu markmiði!!!

Blákalt og samviskubitslaust get ég sagt frá því að mér hefur tekist að halda mér ótrúlega upptekinni við að gera akkúrat ekki neitt í jólafríinu. Að undanskildri möndlugrautsgerð og aðfangadagskvöldi sjálfu ( í hlýjum faðmi Andísar, Binna og Jónasar sem var svo óendanlega vinalegt og yndislegt) þá hef ég gert akkúrat ekki neitt annað en að glápa á sjónvarpið og hanga í tölvunni.

Ég er reyndar dottinn inn í leik sem á eftir að verða bani minn. Leikurinn ætti að vera flestum kunnur, og heitir World of Warcraft… Iðulega hefur leikurinn sá verið nefndur í sömu andrá og orðið “tölvunörd”… En þar sem ég hef hingað til verið óttalegt skápanörd, þá fannst mér ekki úr vegi að prufa gripinn. Datt svona líka fallega inn í hann að ég bara kemst ekki út aftur…

En þetta er það sem er að frétta í bili, fyrir utan óttalegann söknuð eftir ykkur öllum!!!

Ást

Hrafnhildur- Já, ég er tölvunörd!!!

24
Dec

Gleðileg jól!!!

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Héðan frá Alabama sendum við ykkur öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár!
Þökkum allt gamalt og gott.
Drekkið nú nóg af Malti og Appelsíni fyrir okkur, við erum í nettum fráhvörfum hérna :)

Jólamynd

Læt fylgja hérna með uppáhalds jólaljóðið mitt svona í tilefni dagsins :)

‘Twas the night before Christmas, when all through the house

Not a creature was stirring, not even a mouse;

The stockings were hung by the chimney with care,

In hopes that St. Nicholas soon would be there;

The children were nestled all snug in their beds,

While visions of sugar-plums danced in their heads;

And mamma in her ‘kerchief, and I in my cap,

Had just settled down for a long winter’s nap,

When out on the lawn there arose such a clatter,

I sprang from the bed to see what was the matter.

Away to the window I flew like a flash,

Tore open the shutters and threw up the sash.

The moon on the breast of the new-fallen snow

Gave the lustre of mid-day to objects below,

When, what to my wondering eyes should appear,

But a miniature sleigh, and eight tiny reindeer,

With a little old driver, so lively and quick,

I knew in a moment it must be St. Nick.

More rapid than eagles his coursers they came,

And he whistled, and shouted, and called them by name;

“Now, Dasher! now, Dancer! now, Prancer and Vixen!

On, Comet! on Cupid! on, Donder and Blitzen!

To the top of the porch! to the top of the wall!

Now dash away! dash away! dash away all!”

As dry leaves that before the wild hurricane fly,

When they meet with an obstacle, mount to the sky,

So up to the house-top the coursers they flew,

With the sleigh full of toys, and St. Nicholas too.

And then, in a twinkling, I heard on the roof

The prancing and pawing of each little hoof.

As I drew in my hand, and was turning around,

Down the chimney St. Nicholas came with a bound.

He was dressed all in fur, from his head to his foot,

And his clothes were all tarnished with ashes and soot;

A bundle of toys he had flung on his back,

And he looked like a peddler just opening his pack.

His eyes — how they twinkled! his dimples how merry!

His cheeks were like roses, his nose like a cherry!

His droll little mouth was drawn up like a bow,

And the beard of his chin was as white as the snow;

The stump of a pipe he held tight in his teeth,

And the smoke it encircled his head like a wreath;

He had a broad face and a little round belly,

That shook, when he laughed like a bowlful of jelly.

He was chubby and plump, a right jolly old elf,

And I laughed when I saw him, in spite of myself;

A wink of his eye and a twist of his head,

Soon gave me to know I had nothing to dread;

He spoke not a word, but went straight to his work,

And filled all the stockings; then turned with a jerk,

And laying his finger aside of his nose,

And giving a nod, up the chimney he rose;

He sprang to his sleigh, to his team gave a whistle,

And away they all flew like the down of a thistle.

But I heard him exclaim, ere he drove out of sight,

“Happy Christmas to all, and to all a good-night.”

Jólakveðjur
Hrafnhildur, Kristján og hundurinn Grammý :)

23
Dec

Mamma Mía!!!

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Var að enda við að horfa á Mamma Mia og afleiðingarnar voru katastrófískar!!!!

Sat ein í sófanum alla myndina með bros sem lýsti skærar en jólaseríurnar í kringum mig… Alveg þangað til seinasta lagið í myndinni kom…. Alveg í endann syngja þær stöllur Waterloo með miklum tilþrifum og var það nóg til að skrúfa frá krananum. Málið er að Waterloo minnir mig alltaf á mömmu, af því að þegar ég var lítil hélt hún svo mikið upp á það… Allavega, um leið og fyrstu tónarnir skullu á hljóðhimnuna (í eintölu muniði) þá hrúgaðist í einni gusu fram í dagsljósið allur söknuðurinn eftir elsku fallegu mömmu minni, fallegustu systurinni minni í heiminum og besta pabbanum sem nokkur getur beðið um. Blandað saman í þessa romsu var svo nístandi jólasöknuður eftir elsku elsku guðdætrum mínum og pabba þeirra…. Ég rauk inn í herbergi, í fangið á eiginmanninum sem átti á einskins ills von og grét svo sárt og kraftmikið að ég fékk blóðnasir í bolinn hans.. Ég er ekki að grínast, ég fékk í alvöru blóðnasir!!! Ég held að kauði hafi nú samt verið búinn að bíða eftir þessu kasti mínu í nokkra daga núna….

En Mamma Mia er dásamleg mynd- DÁSAMLEG!!! Meril Streep er stórkostleg í henni og manni langar endalust að syngja með. Þessi mynd er sko þokkalega nýja uppáhaldsmyndin mín, ásamt Across the Universe! Það er samt eitt atriði í henni sem er svo algjörlega óvart fyndið að það drap mig næstum úr hlátri. Það er þegar Meril Streep og Pierce Brosnan eru að tala saman og öllum að óvörum brestur á með söng hjá Pierce, og það ekki af lakari endanum! Það er eiginlega ekki hægt að útskýra þetta atriði, þannig að ég gróf upp klippu á youtube. Takið eftir að þarna er Meril búin að tala í kannsi hálfa mínútu, og plís sjáið hvað það er fyndið þegar Dobbúló seven byrjar að syngja- það er alveg á fyrstu sekúndunum bara:

Annars eru jólin að bresta á með látum, öllum að óvörum, bara alveg hreint á morgun sko (tæknilega séð, það er yfir miðnætti 22 des hérna núna). Seinasta vika hefur liðið hjá í þoku bara, þannig að það kom algerlega aftan að mér þegar ég fattaði það fyrr í kvöld að Þorláksmessa er handan við hornið. Einkunnirnar fyrir haustið komnar í hús líka, fékk A fyrir golf, leiklist og sögu, og B fyrir ensku og Spænsku… B reyndar ekki alveg ásættanlegt eins og fyrri daginn, verð að reyna að koma sjálfri mér betur í skilning um að B er sirka 8.5 og að það sé bara fínt!

Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, reyni að blogga aftur annað kvöld (þorláksmessukvöld.. Því það er nú einusinni hátíð út af fyrir sig ;)

Ást og nístandi söknuður til ykkar heima á klaka!!!!

Hrafnhildur- Pínkuponsulítil í sér núna!!!

16
Dec

Kominn tími á nýtt blogg kannski?

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Sorrý hvað ég hef verið ótrúlega löt við að blogga, spurning um að áramótaheitið verði fleiri bloggfærslur per mánuð…..

Allavega, þá á ég að vera að læra undir sögupróf núna, og finn hjá mér sterka þörf fyrir að rífressa feisbúkk og meilinu mínu, og dandalast á internetinu í leit að afsökun til að þurfa ekki að vera að læra… Mér finnst leiðinlegt að segja það, eins og ég er búin að leggja mikinn metnað í þessa önn, að þessir seinustu lokametrar eru alveg að drepa mig, finn enga hvatningu til að læra undir próf… Hverjum er ekki sama um Japanska Shogun og Renaissance humanism hvort sem er!!! Vaknaði klukkan hálfsex í morgun og er búin að fara yfir þetta nokkrum sinnum, ætti að vera með nógann efnivið í 2 ritgerðir og 3 málsgreinasvör í þessu prófi…. Svo er bara enskuprófið seinnipartinn og SVO ERÐA JÓLAFRÍ!!!

Ég er búin að ákveða, að þegar ég er búin í þessu enskuprófi klukkan hálfátta í kvöld mun ég krulla upp malbikið á leiðinni heim, þruma mér beint í náttfötin og ætla ekki að fara úr þeim aftur fyrr en 5 janúar… Nema þá bara rétt yfir hájólahátíðina. Ég ætla að liggja í sófanum, horfa á sjónvarpið og lesa einhverja vellu sem ég þarf engann veginn að muna, og gera lítið annað en það!

Próflestrarfrí notaði ég til að skrifa jólakort, sem fóru svo heim á klaka með einum af íslendingunum. Ég passaði upp á að jólakortin til mömmu og pabba, tengdó, Margrétar og Rögga, og Halldórs mágs og Huldu yrðu seinust, af því þau eru sérstökust… Allavega, svo er ég að tala við Margréti systir í gær og hún spyr mig hvort hún fái nú ekki jólakort, ég sagðist nú heldur betur halda það, hugsaði mig um í smá stund og…. ÓSJITT!!!! Ég semsagt skrifaði jólakort til allra á listanum, nema okkar allra nánustu… Ekki af því þau voru síst, heldur af því þau voru MIKILVÆGUST!!! Í snatri reif ég mig upp úr prófalestri, dreif kortin af og í póst. Vonandi nást þau til Íslands fyrir jól, en bara svo þið vitið það, elsku nánasta fjölskylda, þá gerðist þetta af því þið voruð svo mikilvæg, ekki öfugt…. Ég er bara hreinlega alveg í rusli yfir þessu…..

En ég er semsagt að fara í 2 próf í dag- Sögu og ensku, búin með leiklistarprófið og spænsku. Leiklistarprófið gekk rosalega vel, það var tvíþætt; annarsvegar einnar mínútu einleikur sem ég fór létt með og svo skriflegt próf sem þvældist ekki fyrir mér hið minnsta. Vonandi verður þetta til þess að ég fái A í leiklist. Spænskuprófið var búið að valda mér magasári og svitaböðum í tvær vikur, en svo þegar á hólminn var komið, þá var það ekki svo erfitt… Gæti hugsanlega slefað í B þar, þrátt fyrir að vera með kennara sem gefur orðinu rola nýja merkingu!

Eiginmaðurinn er búinn að vera í fríi í heila viku, hann kláraði prófin sín takk fyrir bara áður en prófavikan byrjaði, þannig að ég er búin að líta hann óvingjarnlegu hornauga síðan- á meðan ég er með sverð prófanna hangandi yfir hausnum hefur hann dundað sér í football manager…. Ekki nett, ekki einusinni ponsulítið nett!!!

Íslendingarnir hérna úti eru óðum að flykkjast heim á Klaka og þar sem ég öfunda þau ekki neitt, þá snertir það mig ekki einusinni þegar ég sé statusbreytingar eins og “Komin til Íslands”, “Fallegur jólasnjór á Íslandi” og “Ísland er land þitt” á feisbúkk… Snertir mig ekki hið minnsta takk…. Afneitunin alveg að fara með mig :) ALMÁTTUGUR HVAÐ ÉG SAKNA FJÖLSKYLDUNNAR MINNAR!!! Reyndar eigum við dásamlega að, tengdó sendu okkur pakka um daginn sem innihélt soðið hangikjöt og hamborgarhrygg, skötustöppu handa Kristjáni og heimabakað rúgbrauð, heimabakaðar piparkökur og Sörur (ójá!!!) og jólapakka. Svo sendu Margrét syss og foreldrar mínir okkur pakka með Íslensku nammi og jólapökkum, og mamma og pabbi sendu okkur Nóa konfekt og suðusúkkulaði þannig að við erum vel sett. Mamma er líka búin að vera dugleg að senda mér nauðsynjar í desember. Hún sendi mér bæði bókatíðindi og plötutíðindi, og svo sendi hún mér alveg ótrúlega sniðugt dagatal sem er með enskar lýsingar á íslensku jólasveinunum og jólasveinaspil sem við getum tekið í á aðfangadagskvöld….

En jæja, ég verð víst að fara að halda áfram að læra, 2 tímar í próf… Ég elska ykkur öll, og söknuðurinn verður meiri með hverjum deginum!!!!

Hrafnhildur- Með próflokaheilaprump

30
Nov

Hommajól

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Mér finnst alveg hreint ótrúlegt hvað ég sé samkynhneigð í öllum karlmönnum hérna úti…. Kannski er ástæðan fyrir því sú að ég sakna hommanna minna heima svo svakalega að ég finn til… En málið er að þetta er ekki fyndið lengur. Mér finnst ég sjá skápatilfelli í öllum hérna. Annarhver bekkjarfélagi minn er að mínu mati á einhvern hátt hýr, og í leikritinu voru allavega 6 strákar sem ég er handviss um að keyri ekki fullkomlega réttu megin á veginum. Reyndar stendur einn af þeim framar hinum með þessa tendensa, á kærustu og allt… Sem er reyndar ekkert annað en hreinræktuð hommahækja þar sem drengurinn er svo djúpt inni í skápnum að hann er staddur í Narniu!! Ég held ég þurfi að fara að leita mér sálfræðiaðstoðar til að hjálpa mér út úr þessu…. Hérmeð sendi ég neyðarkall (ákall, ekki karlmann asnarnir ykkar) á hommana mína heima um að koma í heimsókn áður en ég gef út opinbera yfirlýsingu um að allir karlmenn í Alabama séu þveröfugir!

En allavega, víkjum frá þessari geðveilu spörfuglsins yfir í aðal geðbrestina. Jólin eru svo sannarlega farin að gera vart við sig hérna í 3553 B. Jólatréð hefur staðið skreytt og skemmtilegt í meira en viku á stofugólfinu og jólatónlistin er byrjuð að hljóma úr hverju skúmaskoti. Opinbera ástæða þess að jólatréð var komið svona snemma upp, er að jólakortamyndirnar voru teknar af okkur fyrir framan tréð þannig að það hreinlega varð bara að skreyta það….. Ég eyddi nokkrum dögum í að reyna að velja á milli tveggja af myndunum sem voru teknar áður en formleg ákvörðun var tekin um hvaða mynd færi á kortið. Þegar ákvörðun hafði verið tekin, sendi ég myndirnar í framköllun í gegnum walmart.com (tæknin er æðisleg!) Fór svo í kvöld og náði í þær og opnaði umslagið spennt. Þar sem ég er að sjálfsögðu skærasta peran í seríunni, þá auðvitað sendi ég vitlausa mynd í framköllun, og sit því uppi með ansi mörg eintök af myndinni sem ég ætlaði ekki að nota!!! Þannig að þegar þið fáið jólakortin og veltið því fyrir ykkur hversvegna ég er með skrýtinn svip á myndinni, hafið þá hugfast að ég er fífl!

Annars erum við búin að liggja í Thanksgiving leti hérna. Búin að vera í 10 daga fríi vegna þessarar átveislu og höfum notað tímann vel í að liggja og gera ekki neitt. Okkur var boðið í kalkúnaveislu hjá foreldrum Susan vinkonu á þakkargjörðardaginn og það var ekki fyrr en þá sem ég gerði mér grein fyrir því hversu djúpt í suðurríkjunum ég er! Að sjálfsögðu tóku þau kalkúninn og djúpsteiktu illfyglið í heilu lagi!!! Nema hvað!! En þó ekki fyrr en búið var að sprauta hálfu kílói af bráðnu kryddsmjöri inn í hann. Í alvöru…. Djúpsteiktur kalkúnn! En ég verð nú samt að viðurkenna að þetta var besti kalkúnn sem ég hef nokkurntímann fengið… En samt- DJÚPSTEIKTUR-REALLY!!!

En á mánudaginn tekur svo skólinn við aftur. Reyndar bara í 2 vikur og svo aftur komið frí í 3 vikur. Þetta er ekkert voðalega leiðinlegt líf sko! En vá hvað mig vantar fólkið mitt í kringum mig núna. Margrét, hvernig á ég að fara að því að jólast án þín? Og Davíð, hver á núna að syngja jólalögin með mér? Og Sæunn, ég hef engann til að hrista hausinn yfir jólageðveikinni í mér! Og Guðný, hvernig í ósköpunum á ég að geta fullkomlega verið i jólaskapi án þess að sjá þig borða laufabrauð?? Mér er spurn!

Mér finnst að þið ættuð öll að kíkja á mig, þó ekki sé nema bara yfir helgi í jólafríinu :)

Hrafnhildur- Jólastrumpur

24
Nov

Thanksgiving frí

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Ég græt það ekki að vera komin í 11 daga þakkargjörðarfrí. Búin að vera alltof bissí til að blogga. Getða núna. Leikritið er búið, og var leiklistarpartý á föstudagskvöldið. Ótrúlega gaman og alltof mikið drukkið… Daginn eftir endaði ég sem strandaglópur í hættulegasta hluta Hangoverville, með ekkert far til baka í sjónmáli. Mæli ekki með þeim stað!!

Halldór og Hannesson (litli sonur okkar) mættu svo hingað á laugardagskvöldið og elduðu dýrindis ritzkexkjúlla fyrir gömlu hjónakornin í 3553B. Mæli með því að fá íðilfagra unaðskokka svona í miðja þynnkuna. Við sjáum mynd:

Jólin eru óðfluga að nálgast, og hefur 3553B ekki farið varhluta að því. Eiginmaðurinn stóð á því fastar en fótunum, líkt og síðustu ár, að ég mætti ekki byrja að setja upp jólaskraut fyrr en 15 nóvember. Klukkan var ekki orðin 12 að hádegi þann téða dag þegar jólaskraut var farið að flæða út um hverja einustu glufu. Daginn eftir var jólatrénu svo hent upp, opinbera afsökunin: Jólakortamyndirnar verða teknar fljótlega og þarf tréð að ná að anda fyrst, rétta ástæðan: Geðveila Hrafnhildar Viðarsdóttur!!! Við sjáum mynd:

Ésús hvað ég nenni ekki að blogga meira!!!

Ætla að fara að horfa á Miracle on 34th street með kaddlinum.

Enda þessa færslu á snilldarmyndbandi frá litlu jólajeppunum sem elduðu handa okkur á laugardagskvöldið. Þeir eru duglegir við að finna sér eitthvað að gera hérna í Montgomery:

Hrafnhildur-Jólaálfurinn mikli

17
Nov

Sorg….

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Elsku vinkona!!! Ég hugsa til þín núna, og finnst ofsalega sárt að geta ekki verið hjá þér. Ég sendi samúðarkveðjur, bænir og styrk á þig og elsku fjölskylduna þína. Ég elska ykkur öll.

Ástarkveðjur
Hrafnhildur “litla systir”

7
Nov

Frumsýning

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

Frumsýningin gekk eins og í sögu.

Í allann gærdag var ég með mjög þægileg fiðrildi í maganum og vissi eiginlega ekki hvernig ég ætti að höndla þau. Hringdi í mömmu og hún sagði að það boðaði gott sem það greinilega gerði… Þoli ekki hvað mannekskjan hefur alltaf rétt fyrir sér :)

Þegar ég sat baksviðs og var að bíða eftir að fara inn á sviðið beið ég í óþreyju eftir rosastressinu…. Beið og beið og beið. Svo kom mitt kjú- og ekkert stress! Ég sigldi inn á sviðið, laus við allar taugar og skilaði Ethel af mér- Ekkert stress. Kom út af sviðinu, beið í 5 mínutur…. OG ÞÁ KOM STRESSIÐ!! Ég titraði svoleiðis frá hvirfli til ylja og naut þess að finna adrenalínið þjóta um æðarnar á mér. Þetta var æðislegt!! Sama gerðist fyrir mig í stóra áheyrnarprófinu sem ég fór í um daginn… Ég verð að viðurkenna, að þetta er heldur betur góður eiginleiki, þarf semsagt ekki að hafa áhyggjur af stressi fyrr en eftir að allt er yfirstaðið.

Eiginmaðurinn skemmti sér konunglega í leikhúsi, og aðspurður sagðist hann jafnvel hafa áhuga á að sjá leikritið aftur. Sem þýðir að leikritið er GOTT!! Enda er þetta líka leikrit sem hefur unnið Pulitzer verðlaun, þannig að það ætti að vera gott!!!

Eftir sýninguna var smá veisla með áhorfendum og leikurum, og þó svo að hlutverkið mitt sé með því minna í sýningunni, leið mér eins og ég væri stjarnan!!! Þetta var algjörlega mín stund!!! Ég ELSKA lífið mitt!!! Eftir veisluna fórum við heim, og eiginmaðurinn, þessi yndislegi maður sem ég elska svooooo mikið að stundum finnst mér eins og hjartað á mér sé að springa, hafði bara upp á sitt einsdæmi ákveðið að kaupa blómvönd sem beið mín á eldhúsborðinu þegar ég kom heim. Hann á ekki að kunna svona lagað :) Hann hefur aldrei verið giftur leikkonu áður, og á ekki að hafa hugmynd um að auðvitað langar manni í blóm eftir frumsýningu :) Samt vissi hann það!!! Bogga og Svenni- ÞIÐ STÓÐUÐ YKKUR VEL Í UPPELDINU :)

Ohhh það er svo gott að vera til :)

Hrafnhildur- Ennþá í smá vímu bara, svei mér þá!

6
Nov

Í kvöld…

   Posted by: krummi   in Vort daglegt raus

FRUMSÝNING Á ANGELS IN AMERICA Í KVÖLD!!!!!

Einn…. Tveir… oooooooog… MAGASÁR!!!!

Hlakka til og kvíði fyrir, þetta er mjög skrýtin tilfinning.

Hrafnhildur-Ethel Rosenburg